Kvika leppaði fyrir Bakkavararbræður vegna orðsporsáhættu

Kvika banki lepp­aði kauptil­boð á hluta­bréfum í eign­ar­halds­fé­lag­inu Klakka fyrir Bakka­var­ar­bræður árið 2016. Fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri hjá Kviku við­ur­kenndi þetta fyrir dómi í lok jan­úar og vís­aði til þess að stemn­ingin í sam­fé­lag­inu hafi verið þannig að Bakka­var­ar­bræður hafi ekki getað átt banka. Þá var einnig rætt að haga við­skipt­unum þannig að Fjár­mála­eft­ir­litið þyrfti ekki að sam­þykkja þau.

Reyndu að nota Kviku til að kaupa eftirlitsskylt fyrirtæki
Reyndu að nota Kviku til að kaupa eft­ir­lits­skylt fyr­ir­tæki Bræð­urnir Lýður og Ágúst Guð­munds­synir, sem kenndir eru við mat­væla­fyr­ir­tækið Bakkavör, reyndu að nota Kviku banka til að leppa fyrir sig kaup á hlut í eign­ar­halds­fé­lag­inu Klakka. Mynd: Pressphotos

Kvika banki reyndi að leppa fyr­ir­huguð kaup félags í eigu Lýðs og Ágústs Guð­munds­sona, sem kenndir eru við mat­væla­fyr­ir­tækið Bakkavör, á hlutafé og kröfum í eign­ar­halds­fé­lagið Klakka af íslenska rík­inu árið 2016. Klakki átti á þessum tíma fjár­mögn­un­ar­fyr­ir­tækið Lýsingu, sem síðar var end­ur­nefnt Lykill og lýtur eft­ir­liti Fjár­mála­eft­ir­lits­ins. Þetta kom fram í máli Ásgeirs Reyk­fjörðs Gylfa­sonar, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóra fyr­ir­tækja­sviðs Kviku banka, í mál­flutn­ingi í skaða­bóta­máli félags Bakka­bræðra, Frigusar II ehf., í Lind­ar­hvols-mál­inu svo­kall­aða í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur í lok jan­úar.  

Um leppun Kviku á kauptil­boð­inu fyrir Frigus sagði Ásgeir: „Það var þannig í huga ansi margra sem unnu í grennd við Borg­ar­túnið á þessum árum að þeir aðilar sem voru mjög áber­andi fyrir fall bank­anna – þeir voru framan á dag­blöðum, þeir voru atyrtir í spjall­þáttum og þess háttar – og eins og ég segi: Við töldum það ekki hjálpa mál­inu og við vildum að þessi við­skipti myndu falla þeirra …

Kjósa
21
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Hlynur Jörundsson skrifaði
    Vondu karlarnir eru ekki vandamálið framkvæmdarvaldið og Alþingi eru það.
    0
  • Hlynur Jörundsson skrifaði
    Bara meira meikup og hárkolla og allir sáttir ? Íslensku regluverki er ekki við bjargandi.
    0
  • Hlynur Jörundsson skrifaði
    Það gekk með Dekhill og Bank Júlíus Bayer svo af hverju ættu blekkingarleikur ekki að vera löglegur áfram ? Gargandi snilld að ekkert hefur breyst
    0
  • Monika Bereza skrifaði
    Ljót viðskipti og ekkert eftirlit? Hvað er þetta eiginlega? Ekkert af þessu átti að leyfa.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár