Íslenskur leikmaður veðjaði á eigið lið og hundruð annarra leikja

For­dæma­laust mál er komið upp í íslenskum fót­bolta. Knatt­spyrnu­maður sem lék með Aft­ur­eld­ingu í fyrra veðj­aði á hund­ruð knatt­spyrnu­leikja á þriggja mán­aða tíma­bili síð­asta sumar í gegnum veð­mála­síð­una Pinnacle, sam­kvæmt gögnum sem veð­mála­vef­síðan kom til KSÍ. Fimm leikj­anna voru hjá hans eigin liði, en fjórum leikj­anna tók leik­mað­ur­inn, Sigurður Gísli Bond Snorra­son, sjálfur þátt í.

Íslenskur leikmaður veðjaði á eigið lið og hundruð annarra leikja
Fót­bolta­veð­mál Sigurður Gísli Bond Snorra­son spil­aði með Aft­ur­eld­ingu síð­asta sumar. Mynd: Heimildin

Knatt­spyrnu­maður sem lék með Aft­ur­eld­ingu í næstefstu deild Íslands­móts karla í fyrra veðj­aði á hund­ruð knatt­spyrnu­leikja hér­lendis síð­asta sumar, í hinum ýmsu deildum og flokkum, þar á meðal fimm leiki hjá hans eigin liði. Fjórum þess­ara leikja tók leik­mað­ur­inn, Sigurður Gísli Bond Snorra­son, sjálfur þátt í.

Aga- og úrskurð­ar­nefnd KSÍ er með málið til með­ferðar, í kjöl­far þess að Klara Bjartmarz fram­kvæmda­stjóri KSÍ vís­aði því þangað 13. des­em­ber vegna meintra brota leik­manns­ins á lögum og reglu­gerðum KSÍ. Nefndin sendi sam­dæg­urs erindi á Sigurð Gísla, sem fékk frest til 20. des­em­ber til þess að bregð­ast við með skrif­legri grein­ar­gerð, sam­kvæmt gögnum sem Heim­ildin hefur í sínum fórum.

Sigurður Gísli vildi ekki tjá sig um málið er Heim­ildin náði af honum tali.

Án fordæma hjá KSÍ

Þetta er í fyrsta sinn sem KSÍ fer fram með mál af þessu tagi gagn­vart leik­manni, þó að nokkur umræða hafi á stundum skotið upp koll­inum um að knatt­spyrnu­menn á Íslandi taki þátt í veð­málum á íslenska knatt­spyrnu.

Reglur um þátt­töku í veð­mála­starf­semi eru þó nokkuð skýrar í lögum og reglu­gerðum KSÍ. Í reglu­gerð sam­bands­ins um knatt­spyrnu­mót segir að þeim sem taki þátt í knatt­spyrnu­leikjum á vegum KSÍ sé óheim­ilt að taka þátt í veð­mála­starf­semi, með beinum eða óbeinum hætti, í tengslum við eigin leiki og eigin mót. Því til við­bótar er öllum knatt­spyrnu­mönnum sem samn­ings­bundnir eru íslenskum liðum sam­kvæmt stað­al­samn­ingi KSÍ, eins og Sigurður Gísli var, óheim­ilt að veðja á leiki í íslenska bolt­anum.

Ljóst er af veð­mála­yf­ir­liti sem veð­mála­fyr­ir­tækið Pinnacle sendi til KSÍ að Sigurður Gísli, sem er fæddur árið 1995 og nú skráður í knatt­spyrnu­liðið KFK eftir að hafa leikið 21 leik með Aft­ur­eld­ingu síð­asta sumar, virð­ist hafa þver­brotið reglur sam­bands­ins hvað þetta varðar.

Fór yfir ákveðinn „þröskuld“ hjá veðmálafyrirtækinu

Baksaga máls­ins er rakin í grein­ar­gerð fram­kvæmda­stjóra KSÍ til aga- og úrskurð­ar­nefndar. Þar kemur fram að upp úr miðjum nóv­em­ber hafi starfs­maður heil­inda­mála hjá Evrópska knatt­spyrnu­sam­band­inu UEFA haft sam­band við Ómar Smárason, sem er svo­kall­aður heil­inda­full­trúi KSÍ auk þess að vera sam­skipta­full­trúi sam­bands­ins, og óskað leyfis til að tengja full­trúa veð­mála­fyr­ir­tæk­is­ins Pinnacle við sam­bandið.

PinnacleVeð­mála­vef­síðan Pinnacle gerir starf­semi sína út frá eyj­unni Curaçao, sem liggur undan ströndum Venes­ú­ela í Karí­ba­hafi. Eyríkið er hluti hol­lenska kon­ungs­rík­is­ins, en fékk sjálf­stjórn árið 2010. Töluverð fjár­mála­starf­semi er í höf­uð­staðnum Willemstad, en eyjan hefur löngum verið skil­greind sem skatta­skjól. Pinnacle er ein­ungis ein af ótal­mörgum veð­mála­síðum sem bjóða not­endum sínum upp á að veðja á íslenskan fót­bolta.

Veðmál Sigurðar Gísla höfðu þá komið fram við vöktun við­skipta­vina hjá Pinnacle. Fulltrúi fyr­ir­tæk­is­ins segir í sam­skiptum við full­trúa KSÍ, sem fylgdu grein­ar­gerð­inni til aga­nefndar, að aðgangur Sigurðar Gísla hafi verið tek­inn til skoð­unar af í kjöl­far þess að knatt­spyrnu­mað­ur­inn fór yfir ákveð­inn „þrösk­uld“ hjá veð­mála­síð­unni, sem getur m.a. verið vegna mik­illar virkni eða hárra upp­hæða sem lagðar eru undir í gegnum aðgang­inn.

Heil­inda­full­trúi KSÍ stað­festi við fyr­ir­tækið að Sigurður Gísli væri sann­ar­lega virkur leik­maður í íslenska fót­bolt­anum og í kjöl­farið sendi Pinnacle skrif­stofu KSÍ svo gögn um veð­mál leik­manns­ins frá júlí og fram í sept­em­ber á síð­asta ári, sem starfs­menn KSÍ fóru yfir. 

„Gögnin sem Pinnacle sendi KSÍ sýna hund­ruð veð­mála þessa ein­stak­lings á leiki á Íslandi, í flestum deildum Íslands­móts meist­ara­flokka karla og kvenna, í bik­ar­keppnum meist­ara­flokka karla og kvenna, og í 2. flokki. Mikill fjöldi veð­mála er á leiki hjá ákveðnum félögum (Aft­ur­eld­ing, ÍH, Augna­blik, Dalvík/Reynir) en heilt yfir er nokkuð mikil dreif­ing og ekki hægt að koma auga á sér­stakt mynstur annað en það sem er hér að framan. Þó er rétt að nefna 12 veð­mál á stakan leik (Ísbjörn­inn – Hvíti ridd­ar­inn í 4. deild karla, tapað veð­mál) og 10 veð­mál á annan stakan leik (Dalvík/Reynir – Vængir Júpíters í 3. deild karla, unnið veð­mál),“ segir í grein­ar­gerð­inni frá Klöru Bjartmarz.

Veðjaði aldrei gegn eigin liði

Sér­stak­lega er fjallað um að á meðal leikj­anna sem Sigurður Gísli veðj­aði á hjá Pinnacle hafi verið fimm leikir hjá hans eigin liði, meist­ara­flokki karla hjá Aft­ur­eld­ingu, og að hann hafi sjálfur tekið þátt í fjórum þeirra.

Aft­ur­eld­ingSigurður Gísli skrif­aði undir samn­ing við Aft­ur­eld­ingu fyrir síð­asta sumar og spil­aði alls 21 leik fyrir félagið í 1. deild karla og bik­ar­keppn­inni.

Í öll þau sem skipti sem Sigurður Gísli veðj­aði á leiki Aft­ur­eld­ingar var hann að veðja á fleiri leiki í sama pakka­veð­máli, og lagði til­tölu­lega lágar upp­hæðir undir í hverju veð­máli. Stundum setti hann leiki Aft­ur­eld­ingar inn í fleiri en einn seðil, sem stundum unn­ust og stundum töp­uð­ust.

Í eitt skiptið veðj­aði Sigurður Gísli á að til­tekið mörg mörk yrðu skoruð í leikjum liðs­ins, t.d. að þrjú eða fleiri mörk yrði skoruð í leik gegn Fylki sem fram fór í Árbænum í byrjun sept­em­ber.

Oftast veðj­aði hann þó á Aft­ur­eld­ing hefði sigur, eða gegn Grinda­vík í júlí og gegn HK, Knatt­spyrnu­fé­lagi Vest­ur­bæjar og Þrótti Vogum.

Veðmálaeftirlit UEFA fengið til að skoða leik gegn Fylki

Í grein­ar­gerð Klöru Bjartmarz segir að sam­kvæmt skýrslu virð­ist „ekki vera sér­stakar vís­bend­ingar um hag­ræð­ingu úrslita“, en einnig að KSÍ hafi þó óskað eftir áliti frá veð­mála­eft­ir­liti UEFA um einn leikj­anna sem Sigurður Gísli tók þátt í og veðj­aði sjálfur á.

„Sá leikur fór fram 2. sept­em­ber 2022 í Lengju­deild karla og var á milli Aft­ur­eld­ingar og Fylkis. Leik­mað­ur­inn byrj­aði leik­inn og var tek­inn út af í hálf­leik í stöð­unni 0-2 fyrir Fylki, sem urðu loka­tölur leiks­ins. Nið­ur­stöður álits UEFA eru að engar sér­stakar vís­bend­ingar séu um hag­ræð­ingu úrslita og mynstur veð­mála í kringum leik­inn metin eðli­leg,“ segir fram­kvæmda­stjóri KSÍ í grein­ar­gerð sinni vegna máls­ins.

KlaraFram­kvæmda­stjóri KSÍ seg­ist ekki geta tjáð sig um mál sem séu komin til aga- og úrskurð­ar­nefndar sam­bands­ins.

Aga- og úrskurð­ar­nefnd KSÍ hefur ekki enn komið saman á nýju ári, en við­ur­lög við brotum gegn lögum KSÍ geta meðal ann­ars falist í leik­banni eða banni frá allri þátt­töku í knatt­spyrnu, auk þess sem hægt er að gera leik­mönnum refs­ingu eftir reglu­gerð um aga- og úrskurð­ar­mál eða öðrum reglu­gerðum KSÍ.

KSÍ tjái sig ekki um mál á borði aganefndar

Klara Bjartmarz fram­kvæmda­stjóri KSÍ segir í sam­tali við Heim­ild­ina að hún geti ekki tjáð sig efn­is­lega um mál sem séu til með­ferðar hjá aga- og úrskurð­ar­nefnd sam­bands­ins, sem sé sjálf­stæð í sínum störfum.

Í sam­tali við blaða­mann stað­festir hún þó að KSÍ hafi aldrei áður beint máli sem varði veð­mál til aga- og úrskurð­ar­nefndar sam­bands­ins á þeim grund­velli sem nú er gert.

Dæmi um margra mánaða leikbönn í Englandi

Veðmál knatt­spyrnu­manna hafa verið tals­vert í deigl­unni í Englandi að und­an­förnu. Einn mark­sækn­asti fram­herji ensku úrvals­deild­ar­innar, Ivan Toney leik­maður Brent­ford, var nýlega kærður fyrir að hafa brotið gegn reglum enska knatt­spyrnu­sam­bands­ins um veð­mál. 

Þær reglur eru í stuttu máli þannig að fót­bolta­menn mega ekki veðja á fót­bolta­leiki, hvorki í Englandi né utan lands­ins. Regl­urnar er Toney sagður hafa brotið í alls 262 skipti á árunum 2017 til 2021. Óljóst er hvaða refs­ing bíður Toney af hálfu enska knatt­spyrnu­sam­bands­ins, en almennt er reiknað með því að hans bíði leik­bann.

Leikmenn í Englandi hafa sumir hverjir fengið leik­bönn eða fésektir fyrir að hafa brotið veð­mála­reglur. Árið 2017 var miðju­mað­ur­inn Joey Barton til dæmis dæmdur í 18 mán­aða langt leik­bann, sem síðar var reyndar stytt niður í 5 mán­uði, eftir að í ljós kom að hann hafði veðjað alls 1.260 sinnum á fót­bolta­leiki á árunum 2006-2016.

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár