Munaði hársbreidd að Spaugstofan hætti við þátttöku í Skaupinu

Spaug­stofu­mönnum var til­kynnt af fram­leið­endum Ára­mótaskaups­ins að þeir fengju ekki borgað fyrir þátt­töku sína heldur yrði pen­ingum veitt til Mæðra­styrks­nefndar. Leik­arn­arnir leit­uðu til stétt­ar­fé­lags síns vegna þessa. Fram­kvæmda­stjóri stétt­ar­fé­lags­ins segir það hvernig staðið var að málum „gjör­sam­lega galið“.

Munaði hársbreidd að Spaugstofan hætti við þátttöku í Skaupinu
Næstum hættir við Litlu mátti muna að Spaug­stofu­menn hættu við þátt­töku í Ára­mótaskaup­inu vegna fram­göngu fram­leið­enda þess. Mynd: RÚV

Litlu mátti muna að Spaug­stofan hætti við þátt­töku í loka­lagi ára­mótaskaups­ins. Ástæðan var sú að fram­leið­endur Skaups­ins, S800, til­kynntu Spaug­stofu­mönnum að þeim for­spurðum að þeir fengju ekki greitt fyrir þátt­töku sína heldur yrði upp­hæð látin af hendi rakna til góð­gerð­ar­starfa. Þær upp­hæðir sem greiddar voru til góð­gerð­ar­fé­laga voru langt undir því sem greiða hefði átt þátt­tak­endum sam­kvæmt taxta. Félag íslenskra lista­manna í sviðs­listum og kvik­myndum telur fram­göngu fram­leið­enda Skaups­ins for­kast­an­lega og er í við­ræðum við RÚV um að þátt­tak­endur fái greitt þaðan.

Í síð­asta tölu­blaði Heim­ild­ar­innar var greint frá því að Dóra Jóhanns­dóttir, leik­stjóri Skaups­ins hefði sent RÚV skýrslu um ann­ar­lega fram­göngu fram­leið­enda Skaups­ins meðan á fram­leiðslu­ferli þess stóð. Þegar hún hafi farið að spyrja spurn­inga, eftir að Stundin greindi frá eign­ar­haldi S800, hafi fram­leið­andi og aðstoð­ar­leik­stjóri skorið á sam­skipti við hana, þrátt fyrir að tvö atriði hafi enn staðið útaf, atriðið um kon­una sem gleymdi poka og loka­lagið.

Í frétt Heim­ild­ar­innar var til­greint að Dóra hafi verið ráð­inn leik­stjóri Ára­mótaskaups­ins af RÚV og því hafi hún verið í sam­skiptum við fjöl­mið­il­inn um það sem upp á kom í ferl­inu. Sigurjón Kjart­ans­son, yfir­fram­leið­andi og einn eig­enda fram­leiðslu­fyr­ir­tæk­is­ins S800 birti síð­asta laug­ar­dag færslu á Facebook þar sem hann meðal ann­ars full­yrti að Dóra hefði ekki verið ráðin af RÚV heldur af S800 til að leik­stýra Skaupinu. Það er hins vegar rangt hjá Sig­ur­jóni. Í frétt sem birt­ist á vef RÚV í gær stað­festir Skarp­héð­inn Gunn­ars­son, dag­skrár­stjóri sjón­varps, það sé alltaf í höndum RÚV að velja leik­stjóra Skaups­ins og það hafi RÚV sann­ar­lega gert. Legið hafi fyrir í apríl síð­ast­liðnum að Dóra myndi leik­stýra Skaupinu og síðan hafi S800 verið fengin í fram­leiðsl­una.

Lýsingar Sigurjóns ekki alls kostar réttar

Dóra lýsti því í skýrslu sinni til RÚV flytj­endur loka­lags­ins hafi ekki fengið greitt fyrir fram­komu sína þar. Því svar­aði Sigurjón, í sam­tali við Heim­ild­ina, að búið hafi verið að semja um þeir sem fram kæmu í loka­lag­inu gæfu vinnu sína til góð­gerð­ar­mála, öllum hafi verið kynnt það ræki­lega sem lausn og búið hefði verið að ræða það við alla og ná sam­komu­lagi.

„Okkur fannst skrítið og óeðli­legt að við ættum að koma og vinna vinn­una okkar á þessum for­sendum“
Pálmi Gestsson
um að ákveðið hefði verið að laun Spaug­stofu­manna rynnu til Mæðra­styrks­nefndar.
Vakti úlfúðPálmi Gestsson segir að það hafi komið mjög flatt upp á Spaug­stofu­menn þegar þeim var til­kynnt með hvaða hætti ætti að greiða fyrir þátt­töku þeirra í Skaupinu.

Þetta er hins vegar ekki alls kostar rétt hjá Sig­ur­jóni sam­kvæmt því sem hér kemur fram. Sú leið, að launa­greiðslur myndu renna til góð­gerð­ar­mála, kom Spaug­stofu­mönnum algjör­lega í opna skjöldu. Svo mjög að þeir hugð­ust hætta við að taka þátt í Ára­mótaskaup­inu, enda vakti þessi til­högun undrun þeirra. „Okkur fannst skrítið og óeðli­legt að við ættum að koma og vinna vinn­una okkar á þessum for­sendum og vildum fá á því nán­ari skýr­ingar,“ segir Pálmi Gestsson í sam­tali við Heim­ild­ina. „Við skildum ekki að ein­hver væri búinn að ákveða fyrir okkar hönd til hvaða góð­gerð­ar­mála þetta ætti að renna, ef við ætl­uðum að gera það yfir­leitt.“

Greiðslan langt undir taxta

Það stóð því tæpt að Spaug­stofan yrði með í loka­lagi Skaups­ins. Þeir leit­uðu þannig til Félags íslenskra lista­manna í sviðs­listum og kvik­myndum, FÍL, sem brást hart við. Hrafn­hildur Theo­dórs­dóttir, fram­kvæmda­stjóri FÍL, segir að þrátt fyrir að fram­leiðslu Skaups­ins sé útvi­stað frá RÚV til sjálf­stæðra fram­leið­enda beri engu að síður að greiða fyrir þátt­töku sam­kvæmt kjara­samn­ingi FÍL við RÚV, öllum sem að koma hvort sem þeir séu félags­menn í FÍL eður ei. Enginn afsláttur sé  gef­inn þar á.

Samkvæmt kjara­samn­ingi FÍL við RÚV er greitt ýmist fyrir heilan eða hálfan dag í tökum. Heill dagur er allt að tíu klukku­stundir og hálfur allt að sex klukku­tímum. Ef félagi í FÍL myndi mæta í hálfan dag í tökur á ára­mótaskaup­inu ætti að greiða honum á bil­inu 88.735 til 110.822 krónur og er breyti­leik­inn skýrður með aldri og reynslu við­kom­andi.

Því er ljóst að sú greiðsla sem S800 innti af hendi, 580 þús­und krónur til góð­gerð­ar­starfs, er langt undir því sem hefði átt að greiða þátt­tak­endum í loka­lagi spaugs­ins. „Greiðslan bara til Spaug­stofu­manna hefði átt að vera um 550 þús­und krónur,“ segir Hrafn­hildur. Auk Spaug­stofu­mann­anna fimm tóku Bríet, Páll Óskar, Diddú og Aron Can þátt í atrið­inu og einnig dans­arar, alls ell­efu tals­ins.

Segir um siðferðilega kúgun að ræða

Þegar FÍL fékk vit­neskju um að ákveðið hefði verið fyr­ir­fram og án sam­ráðs við Spaug­stofu­menn að laun þeirra fyrir þátt­tök­una yrðu gefin til góð­gerð­ar­starfs voru strax gerðar athuga­semdir við fram­leið­endur Skaups­ins að sögn Hrafn­hildar. „Ég sendi harð­orðan póst og benti á að bæði væri sú upp­hæð sem áformuð væri sem gjöf til góð­gerð­ar­mála væri langt undir þeim kostn­aði sem væri á bak við atriðið, og sömu­leiðis að þarna væri um sið­ferði­lega kúgun að ræða, að stilla fólki upp við vegg með þessum hætti. Þetta er alveg ómögu­leg staða að vera sett í. Leikarar og lista­menn eru almennt í við­kvæmri stöðu þegar kemur að því að semja um launa­kjör, því að leik­ari vill ekki fá á sig þann stimpil að hann sé með vesen. Svolítið eins og verið er að reyna að mála Dóru upp núna.“

„Ég hef bara aldrei hitt jafn elsku­lega mann­eskju“
Pálmi Gestsson
um Dóru Jóhanns­dóttur, leik­stjóra Skaups­ins

Pálmi kann­ast alls ekki við lýs­ingar af því að Dóra hafi verið erfið í sam­skiptum, eins og fram­leið­andi og aðstoð­ar­leik­stjóri hafa haldið fram. „Ég hef bara aldrei hitt jafn elsku­lega mann­eskju. Við áttum ekki sam­skipti við hana nema á töku­stað og hún var alveg ynd­is­leg, þær báðar hún og Saga.“

Upphæðin kom Spaugstofumönnum í opna skjöldu

Hrafn­hildur segir að lengi vel hafi FÍL engin svör borist frá fram­leið­endum Skaups­ins og hafi þurft að ýta mjög á eftir að þau bær­ust. Loks hafi borist svar, frá Hirti Grét­ars­syni hjá S800, þar sem hann full­yrti að allir væru mjög sáttir við þau mála­lok að góð­gerð­ar­fé­lög fengju greitt í stað þátt­tak­enda í loka­lag­inu. Hrafn­hildur hafi þá haft sam­band við einn Spaug­stofu­manna sem hafi upp­lýst hana um að það hefði náðst lend­ing, þó fólk væri ekki endi­lega ánægt með hana. „Eins og þeir skildu þetta átti fram­leið­andi að greiða 80 þús­und krónur fyrir hvern og einn þeirra til góð­gerð­ar­mál­efnis.“

„Þetta er til skoð­unar hjá RÚV og við lögðum til að RÚV myndi bara greiða við­kom­andi fólki fyrir sína vinnu“
Hrafn­hildur Theo­dórs­dóttir
fram­kvæmda­stjóri FÍL

Miðað við það hefði átt að greiða 400 þús­und krónur til góð­gerð­ar­mála bara vegna þátt­töku Spaug­stof­unnar. „Það kom þeim því í opna skjöldu að lesa í Heim­ild­inni að heild­ar­summan hefði verið 580 þús­und krónur. Þá var þessi for­senda sem þeir töldu sig hafa sam­þykkt sína þátt­töku með ekki lengur fyrir hendi,“ segir Hrafn­hildur.

Hrafn­hildur segir það hvernig staðið var að þessum málum varð­andi upp­tökur á loka­lag­inu sem „gjör­sam­lega galið“. FÍL hafi þegar sett RÚV inn í málið og segir Hrafn­hildur að þar á bæ séu menn einnig mjög ósáttir við þessa til­högun við tökur á loka­lag­inu. „Samkvæmt upp­lýs­ingum frá RÚV þá hélt fram­leið­andi Skaups­ins því fram við RÚV að allir hefðu verið mjög sáttir við að gengið yrði frá málum á þessum for­sendum. Sem auð­vitað er alls ekki rétt. Við vorum á fundi með RÚV síð­ast í morgun og þar voru menn á því að öll aðferð­ar­fræðin við þetta mál hafi verið rang­stæð. Málinu er ekki lokið, þetta er til skoð­unar hjá RÚV og við lögðum til að RÚV myndi bara greiða við­kom­andi fólki fyrir sína vinnu. Það er til skoð­unar.“

Kjósa
51
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Árni Guðnýar skrifaði
    S800 ACT4 þetta er eitt hvað svo kunuglegt er annars ekki 2007 að koma
    0
  • Jóhann Gíslason skrifaði
    Hvernig geta menn sleppt að greiða laun fyrir vinnuframlag og ákveðið að styrkja góðgerðasamtök í staðinn?
    Enn skuggalega verður þetta ef góðgerðasamtökin fá aðeins hluta þeirrar upphæðar sem hefði átt að greiða sem laun. Með þessu sleppur verkkaupinn væntanlega við að greiða í lífeyrissjóð og önnur launatengd gjöld og hvorki skattar eða útvsvar greitt.
    Hvernig getur ríkisútvarpið tekið þátt í svona bókhaldsbrellum og má búast við áframhaldandi viðskiptum við þetta fyrirtæki?
    2
  • Flosi Guðmundsson skrifaði
    Ömurlegt að Sigurjón sé farinn að ljúga á launaum hjá Samherja.
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Átök í Áramótaskaupinu

„Hótuðu því að taka sketsinn úr Skaupinu ef við samþykktum ekki“
FréttirÁtök í Áramótaskaupinu

„Hótuðu því að taka skets­inn úr Skaupinu ef við sam­þykktum ekki“

Söngv­arar sem tóku upp lagið í poka atriði Ára­mótaskaups­ins voru snuð­aðir um greiðslu fyrir. Í stað þess að greiða hverjum og einum rúmar 50 þús­und krónur eins og kjara­samn­ingar gera ráð fyrir hugð­ust fram­leið­endur greiða hverjum söngv­ara rúmar 5.000 krónur. Þegar farið var fram á að greitt yrði sam­kvæmt taxta hót­uðu fram­leið­endur að taka atriðið út úr Skaupinu.
Skaupið í hættu eftir að framleiðendur hættu samskiptum
FréttirÁtök í Áramótaskaupinu

Skaupið í hættu eftir að fram­leið­endur hættu sam­skiptum

Leik­stjóri Skaups­ins kvart­aði til RÚV undan fram­göngu fram­leiðslu­fyr­ir­tæk­is­ins sem gerði ára­mótaskaupið. Þrýst­ingur um að taka Skaupið í nýja mið­bænum á Selfossi, duldar aug­lýs­ingar og falin fjár­hags­á­ætlun varð til þess að upp úr sauð. Reynt var að afmá Ölf­usár­brú út úr senu, eftir að Sigurjón Kjart­ans­son sagði rangt frá um að engar úti­tökur hefðu farið fram á Selfossi.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár