Hæpin gögn og óljósar forsendur réðu ferðinni við einkavæðingu Íslandsbanka

Rík­is­end­ur­skoðun gerir athuga­semdir við flest í einka­væð­ingu 22,5 pró­senta hlutar rík­is­ins í Íslands­banka. Ekki virð­ist hafa verið ástæða til að gefa 4,1 pró­senta afslátt af mark­aðsvirði bank­ans og vís­bend­ingar eru um að til­boð erlends aðila hafi þar ráðið mestu.

Hæpin gögn og óljósar forsendur réðu ferðinni við einkavæðingu Íslandsbanka

Fátt í sölu­ferli rík­is­ins á 22,5 pró­senta hlut í Íslands­banka er hafið yfir gagn­rýni. Rík­is­end­ur­skoðun seg­ist ekki hafa gert tæm­andi rann­sókn á einka­væð­ing­unni en gagn­rýnir þó allt frá fyr­ir­komu­lagi söl­unnar til upp­lýs­inga­gjafar til Alþingis og almenn­ings. Sjálf frum­for­sendan, full­yrð­ingar um að sölu­verðið hafi verið gott og byggt á mati á eft­ir­spurn, er veru­lega málum blandið.

Standa hefði þurft betur að und­ir­bún­ingi og fram­kvæmd söl­unnar, mark­mið og við­mið voru á reiki, hug­taka­notkun og upp­lýs­inga­gjöf voru ekki til þess fallin að gefa skýra mynd af til­högun ferl­is­ins og Banka­sýslan var afar háð utan­að­kom­andi ráð­gjöf og þekk­ingu. Þetta eru meðal meg­in­nið­ur­staðna Rík­is­end­ur­skoð­unar um einka­væð­ing­una, sam­kvæmt skýrslu sem stofn­unin skil­aði stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd í gær, sunnu­dag, og Stundin hefur afrit af. „Eins og til­boðs­fyr­ir­komu­lagið var afmarkað og útfært gat það ekki tryggt fullt jafn­ræði þeirra fjár­festa sem því var beint að,“ segir í skýrsl­unni.

Rík­is­end­ur­skoðun gerir líka athuga­semdir við þær kröfur sem …

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Sigmundur Guðmundsson skrifaði
    "Það er ekkert skrýtið við það að ég seldi föður mínum hlut í ríkisbanka með afslætti."
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Salan á Íslandsbanka

Bjarni segir það Alþingi að kenna að hann hafi ekki gætt að hæfi sínu
FréttirSalan á Íslandsbanka

Bjarni segir það Alþingi að kenna að hann hafi ekki gætt að hæfi sínu

Bjarni Bene­dikts­son, fyrr­ver­andi fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, segir að hann hafi gert ráð fyrir blessun þings­ins á að ekki þyrfti að gæta að hæfi hans gagn­vart hverjum og einum kaup­anda á Íslands­banka í mars 2022. Þinginu hefði átt að vera aug­ljóst að ekki væri hægt að fylgja hæf­is­reglum í sölu­með­ferð­inni sem valin var. Bjarni sat fyrir svörum á opnum fundi stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar í dag.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár