Kristján Loftsson í sendinefnd Svandísar en hvalaðskoðunarfyrirtækin snupruð

Samtök hvala­skoðunar­fyrirtækja fengu ekki fulltrúa í sendi­nefnd Íslands á fundi Alþjóða­hvalveiði­ráðsins. Samtökin fóru fyrst fram á slíkt árið 2018 en var neitað um aðkomu. Á sama tíma var Kristján Loftsson, forstjóri Hvals hf., skipaður í sendi­nefndina.

Aktívur þátttakandi
Aktívur þátt­tak­andi Kristján Loftsson kom fund­ar­gestum fyrir sjónir sem aktívur þátt­tak­andi í störfum sendi­nefndar Íslands. Hann sést hér lengst til vinstri á fundi Alþjóða­hval­veiði­ráðs­ins. Við hlið hans sitja Guðjón Már Sig­urðs­son, Jón Þrándur Stef­áns­son og Stefán Ásmunds­son, nefnd­ar­menn Íslands. Mynd: Micah Garen/Last Whaling Station

Kristján Loftsson, forstjóri Hvals hf., sem er eina fyrir­tækið á Íslandi sem veiðir stórhveli, var hluti af sendi­nefnd Íslands á ársfundi Alþjóða­hvalveiði­ráðsins sem fram fór í Slóveníu á dögunum. Að sama skapi var enginn fulltrúi frá íslenskum hvala­skoðunar­fyrirtækjum hluti af sendi­nefndinni, þrátt fyrir beiðni þeirra þar um. Vekur það athygli í ljósi þess að samkvæmt svari matvæla­ráðuneytisins hefur í ráðuneytinu, og forverum þess, „verið fylgt þeirri megin­reglu að heimila beinum hagsmuna­aðilum þátttöku í sendi­nefndum Íslands á alþjóð­legum fundum varðandi sjávar­útveg“.

Samkvæmt svari matvæla­ráðuneytisins við fyrir­spurn Stundarinnar sátu fjórir einstaklingar í sendi­nefnd Íslands á fundi Alþjóða­hvalveiði­ráðsins. Það voru Jón Þrándur Stef­ánsson úr matvæla­ráðuneytinu, sem var formaður sendi­nefndarinnar, Stefán Ásmundsson úr utan­ríkis­ráðuneytinu, Guðjón Már Sigurðsson frá Hafrannsókna­stofnun og Kristján Loftsson frá Hval hf.

Í fyrir­spurn Stundarinnar var spurt hvernig fulltrúar í sendi­nefndinni hefðu verið skipaðir. Svarið við því var ekki skýrt en ráðuneytið svaraði því þó til, sem fyrr …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jón Ragnarsson skrifaði
    Enn eru VG liðar að sýna okkur að þeir ættu að vera í sjálfstæðisflokknum , og taka þátt í kosningu á nýjum formanni ?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hvalveiðar

Mest lesið undanfarið ár