Ráðherra telur óvíst hvort hvalveiðar eigi sér framtíð á Íslandi

Svandísi Svav­ars­dóttur bíður það verk að ákveða hvort hval­veiðar verði leyfðar á Íslandi eftir árið 2024. Ráð­herr­ann segir að unnin verði úttekt á sam­fé­lags­legum og efna­hags­legum áhrifum hval­veiða sem muni liggja til grund­vallar ákvörð­un­inni. Henni finnst hæpið að hval­veiðar stand­ist lög um vel­ferð dýra.

Ráðherra telur óvíst hvort hvalveiðar eigi sér framtíð á Íslandi
Afar ólík­legt Miðað við orð Svan­dísar Svav­ars­dóttur mat­væla­ráð­herra, sem meðal ann­ars fer með mál­efni sjáv­ar­út­vegs­ins, er afar ólík­legt að hún heim­ili áfram­hald­andi hval­veiðar Hvals hf. eftir næsta ár. Kristján Loftsson og Einar Kr. Guð­finns­son sjást hér saman árið 2007 þegar veiðar á lang­reyðum hófust aftur eftir ára­langt hlé. Mynd: mbl/ÞÖK

„Afstaða ráð­herra er ljós þegar kemur að atvinnu­greinum sem byggja á dýra­haldi eða veiðum, ef ekki er unnt að tryggja mann­úð­lega aflífun dýr­anna eiga þær sér ekki fram­tíð í nútíma­sam­fé­lagi,“ segir Svandís Svav­ars­dóttir, mat­væla­ráð­herra og þing­kona Vinstri grænna, í svari til Stund­ar­innar þar sem hún er spurð að því hvort hún ætli sér að leyfa fyr­ir­tæk­inu Hval hf. að halda áfram að veiða lang­reyðar eftir árið 2024.

Hval­veiði­ver­tíð­inni lauk hér á landi nú í lok sept­em­ber og veidd­ust 148 lang­reyðar. Hvalur hf. hefur heim­ild til að veiða lang­reyðar aftur næsta sumar.

Miðað við svör ráð­herr­ans verður að telj­ast afar ólík­legt að hún muni end­ur­nýja reglu­gerð um áfram­hald­andi leyfi til hval­veiðar við Ísland. Svandís vill hins vegar ekki segja afdrátt­ar­laust að hún muni ekki heim­ila hval­veiðar áfram þegar hún er spurð að því: „Ráðherra hyggst láta fara fram athugun á efna­hags­legum og sam­fé­lags­legum áhrifum slíkrar ákvörð­unar áður …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hvalveiðar

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár