Megum við tala við þig um Jesúm Krist?

Á lýta­lausri íslensku bjóða þrír bandarískir mormónar Reyk­víkingum upp á samtal um Jesúm Krist. Hvað fær þrjá unga menn um tvítugt til að hætta að hlusta á tónlist og skoða Instagram og fara í tveggja ára trúboð?

„Hæ, ég heiti öldungur Grant Richards, ég kem frá Utah-ríkinu í Banda­ríkjunum. Ég er á Íslandi sem trúboði fyrir Kirkju Jesú Krists hinna síðari daga heilögu. Hvað er Jesús fyrir þér?“ Þetta er það sem þú getur búist við að heyra þegar trúboðar, eins og hinn nítján ára Grant Richards, banka upp á hjá þér. Flestir kalla Kirkju Jesú Krists hinna síðari daga heilögu Mormóna­kirkjuna eða bara Mormóna. Félögum í kirkjunni virðist þó mislíka það. Í það minnsta var það annað af tveimur skilyrðum fyrir því að ég mætti fylgja þremur bandarískum trúboðum eftir í einn dag, að ég kallaði kirkjuna réttu nafni. Hitt var það að ég mætti ekki skipta mér af. 

Grant er búsettur í miðbæ Reykja­víkur þar sem hann leigir litla íbúð ásamt makkernum sínum í kirkjunni. Það er manninum sem hann dvelur öllum vöku­stundum með. Þeir eru aldrei án hvor annars í trúboðinu og passa …

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár