Flest vopnanna sem haldlögð hafa verið í rannsókn á hryðjuverkaógn löglega skráð

Rík­is­lög­reglu­stjóri hefur sagt sig frá rann­sókn­inni vegna fjöl­skyldu­tengsla við ein­stak­ling sem hefur verið nefndur í tengslum við rann­sókn lög­reglu á ætl­aðri skipu­lagn­ingu hryðju­verka. Gæslu­varð­halds­úr­skurður yfir öðrum mann­anna sem situr í varð­haldi vegna máls­ins hefur verið fram­lengdur um viku.

Flest vopnanna sem haldlögð hafa verið í rannsókn á hryðjuverkaógn löglega skráð

Hér­aðs­dómur féllst á áfram­hald­andi gæslu­varð­hald yfir öðrum af þeim tveimur mönnum sem setið hafa í gæslu­varð­haldi und­an­farna 7 daga vegna rann­sóknar yfir­valda á ætl­aðri skipu­lagn­ingu hryðju­verka á Íslandi. Gæslu­varð­halds­úr­skurður yfir honum hefði ann­ars runnið út í dag. Hinn mað­ur­inn hafði áður verið úrskurð­aður í tveggja vikna gæslu­varð­hald. 

„Hættu­stig vegna hryðju­verka er enn þá metið lágt,“ sagði Grímur Grímsson, yfir­maður mið­lægrar rann­sókn­ar­deildar lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, á blaða­manna­fundi sem lög­reglan hélt í dag vegna rann­sóknar á meintri skipu­lagn­ingu hryðju­verka hér á landi. Fleiri hafa verið hand­teknir í aðgerðum lög­reglu und­an­farna daga án þess að hafa verið úrskurð­aðir í gæslu­varð­hald. Það eru því bara íslensku menn­irnir tveir sem hand­teknir voru í aðgerðum sér­sveitar rík­is­lög­reglu­stjóra í síð­ustu viku sem sæta varð­haldi vegna máls­ins. 

Ríkislögreglustjóri vanhæf til rannsóknarinnar

Sigríður Björk Guð­jóns­dóttir rík­is­lög­reglu­stjóri óskaði eftir því við emb­ætti rík­is­sak­sókn­ara að segja sig frá rann­sókn máls­ins um ætl­aðan und­ir­bún­ing hryðju­verka. Á það féllst sak­sókn­ari og flutti rann­sókn­ar­for­ræði máls­ins til emb­ættis hér­aðs­sak­sókn­ara. 

VanhæfSigríður Björk hefur sagt sig frá mál­inu vegna fjöl­skyldu­tengsla við ein­stak­ling sem nefndur hefur verið í tengslum við rann­sókn máls­ins.

Ástæðan, sagði Sveinn Ingiberg, eru upp­lýs­ingar um að ein­stak­lingur sem er tengdur rík­is­lög­reglu­stjóra fjöl­skyldu­böndum hefur verið nefndur í tengslum við málið. „Rík­is­lög­reglu­stjóri sagði sig frá mál­inu um leið og þessar upp­lýs­ingar lágu fyrir,“ sagði hann í upp­hafi fund­ar­ins. Starfs­menn emb­ætt­is­ins munu áfram koma að rann­sókn máls­ins.

Til við­bótar hafa gögn verið send til lög­reglu­emb­ætta á Norð­ur­lönd­unum sem og til Europol, sem aðstoðar íslensk yfir­völd við rann­sókn máls­ins. 

Handteknir eftir nokkurra klukkutíma grun

Lög­reglan brást hratt við þegar hana fór að gruna að menn­irnir væru að skipu­leggja hryðju­verk. „Það voru bara örfáar klukku­stundir,“ sagði Grímur og Sveinn Ingiberg tók undir. 

Spurður hvort að sann­anir liggi fyrir um að í raun hafi menn­irnir verið að skipu­leggja hryðju­verka­árásir sagði Grímur að það væri það sem verið væri að rann­saka, en hann myndi ekki upp­lýsa neitt um það á meðan að á rann­sókn stæði. Spurður enn fremur um hvort hafi fund­ist vís­bend­ingar um að menn­irnir hafi átt sér ein­hverja fyr­ir­mynd í þekktum hryðju­verka­mönnum vildi Grímur ekki svara því.

Stundin, og fleiri fjöl­miðlar, hafa greint frá því að rann­sókn lög­reglu bein­ist að því hvort menn­irnir teng­ist nor­rænum og evr­ópskum öfga­hópum. Um það vildi lög­reglan ekki tjá sig á fund­inum. Sveinn Ingi­bergur vildi heldur ekki svara hvort að í raun hafi verið rétt að menn­irnir hefðu slíkar teng­ingar.

Haldlögð vopnHluti vopn­anna og skot­anna sem hald­lögð hafa verið í rann­sókn lög­reglu.

Tugir skotvopna haldlögð

Að rann­sókn­inni koma um 50 lög­reglu­menn frá emb­ætt­unum þremur sem koma að mál­inu, auk sér­sveit­ar­manna og ann­arra lög­reglu­manna sem komu að hús­leitum og hand­tökum. Farið hefur verið í 17 hús­leitir og 60 munir hafa verið hald­lagðir. Tugir skot­vopna eru þar á meðal, svo sem vopn sem gerð höfðu verið hálf­sjálf­virk. 

Hluti vopn­anna voru þrí­vídd­ar­prentuð og einnig fund­ust íhlutir, bæði keyptir og prent­aðir, til fram­leiðslu vopna. Þá fund­ust skot­færi og sveðjur. „Það þarf eng­inn að efast um það að hægt er að fram­leiða hættu­leg vopn með þessum hætti,“ sagði Sveinn Ingiberg Magn­ús­son, yfir­lög­reglu­þjónn hjá hér­aðs­sak­sókn­ara, um hin þrí­vídd­ar­prent­uðu vopn.

„Það eru ekki svo margar þrí­vídd­ar­prent­aðar byssur sem við höfum hald­lagt, þær eru örfáar.“
Grímur Grímsson
yfir­maður mið­lægrar rann­sókn­ar­deildar lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu

„Það eru ekki svo margar þrí­vídd­ar­prent­aðar byssur sem við höfum hald­lagt, þær eru örfáar,“ sagði Grímur. Flest vopn­anna, sem eru fram­leidd með hefð­bundnum hætti, eru skráð í sam­ræmi við lög.

Þau þrí­vídd­ar­prent­uðu vopn sem fund­ust hafa ekki verið prófuð og því ekki ljóst hvort þau virki. Hins vegar segir Grímur að lög­reglan hafi rök­studdan grun um að þau virk­uðu. Prófun á slíkum vopnum færi fram með öðrum hætti en verk­smiðju­fram­leidd vopn, enda krefj­ist það frek­ari örygg­is­ráð­staf­ana. 

Sveinn Ingiberg full­yrti að full ástæða hafi verið til að fara í þær aðgerðir sem farið var í, hús­leitir og hand­tökur auk gæslu­varð­halds. Grímur tók í sama streng. „Við teljum að hættu­á­standi hafi verið afstýrt,“ sagði hann. Undir lok fundar var almenn­ingur svo hvattur til að láta lög­reglu vita hefði það vit­neskju um þrí­vídd­ar­prentuð vopn ein­hvers staðar úti í sam­fé­lag­inu.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hryðjuverkaógn á Íslandi

Skýrslutaka yfir föður ríkislögreglustjóra: „Ef þið bara hefðuð skoðað hver skyldmenni mín eru, þá hefðuð þið ekki komið hingað“
FréttirHryðjuverkaógn á Íslandi

Skýrslu­taka yfir föður rík­is­lög­reglu­stjóra: „Ef þið bara hefðuð skoðað hver skyld­menni mín eru, þá hefðuð þið ekki komið hingað“

Menn sem grun­aðir eru um að hafa verið að skipu­leggja hryðju­verka­árás hér á landi báru við yfir­heyrslur að hálf­sjálf­virkt skot­vopn í þeirra fórum væri fengið frá Guðjóni Valdi­mars­syni, vopna­sala og föður rík­is­lög­reglu­stjóra. Þá hefði Guðjón keypt þrí­vídd­ar­prentað skot­vopn af einum mann­anna. Guðjón sagði við skýrslu­töku að annað hvort hefðu lög­reglu­menn ekki kynnt sér ætt­ar­tengsl hans eða verið væri að reyna að koma höggi á rík­is­lög­reglu­stjóra. Stundin hefur skýrsl­una undir höndum.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
6
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár