„Í myrkri aktívisma og fákunnáttu“

Sænsk yfir­völd hafa breytt við­miðum sínum kyn­þroska­bælandi lyfja­gjafir og horm­óna­með­ferðir til trans­barna og -ung­menna undir 18 ára aldri. Með­ferð­irnar eru taldar vera of áhættu­samar þar sem vís­inda­legan grund­völl fyrir þeim skorti. Ekki stendur til að breyta með­ferð­unum á Íslandi segir Land­spít­al­inn, sem neitar að gefa upp fjölda þeirra barna sem hafa fengið lyfin sem um ræðir.

„Í myrkri aktívisma og fákunnáttu“
Myrkur, akti­vismi og fákunn­átta Björn Hjálm­ars­son, sem nýtek­inn er við sem yfir­læknir á Barna- og ung­linga­geð­deild Land­spít­al­ans, sagði í tölvu­pósti að með­ferðir við kynama væru byggðar á „myrkri“, „akti­visma“ og „fákunn­áttu“. Mynd: MBL / Eggert Jóhannesson

Dæmi eru um að íslensk börn hefji lyfja­með­ferðir vegna kynama fyrir átján ára aldur. Kynami er sú hug­mynd eða upp­lifun að ein­stak­lingur sé ekki af því kyni sem við­kom­andi fékk úthlutað við fæð­ingu og geta lyfja­með­ferð­irnar leitt til kyn­leið­rétt­ing­ar­að­gerðar. Börn geta byrjað að upp­lifa þessa hug­mynd um sjálf sig þegar þau eru að hefja grunn­skóla­nám. Ráðgjafi hjá Sam­tök­unum 78 þakkar fyrir þessar lyfja­með­ferðir og segir þær geta bjargað lífum barna og ung­linga með kynama.

Hins vegar er tek­ist á um hvort lyfja­með­ferðir við kynama standi á nægi­lega traustum vís­inda­legum grunni til að hægt sé að rétt­læta þær. Finnsk og sænsk yfir­völd hafa breytt við­miðum sínum um þessar lyfja­með­ferðir vegna þess að þær hafa ekki verið rann­sak­aðar nægi­lega vel og eru taldar of áhættu­samar. Íslensk yfir­völd hafa hins vegar ekki breytt þessum við­miðum sínum og ætla ekki að gera það sam­kvæmt svari frá Land­spít­ala – háskóla­sjúkra­húsi og þrátt fyrir að æðsti …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Af hverju stendur þessi grein ennþá? Af hverju hafið þið enn ekki beðist afsökunar á að deila lífshættulegum og transfóbískum áróðri? Eða er ykkur bara skítsama um líf og heilsu trans fólks?
    15
    • Baldur Ás skrifaði
      Stundin flytur fréttir:

      ,,Tekist er á um hvort lyfjameðferðir við kynama standi á nægilega traustum vísindalegum grunni til að hægt sé að réttlæta þær. Finnsk og sænsk yfirvöld hafa breytt viðmiðum sínum um þessar lyfjameðferðir vegna þess að þær hafa ekki verið rannsakaðar nægilega vel og eru taldar of áhættusamar."

      Ef þetta er rétt, þá eigum við rétt á að vita það. Ef íslenskur læknir er í þessu efni sammála Svíum og Finnum, þá hefur það líka fréttagildi. Við eigum rétt á að heyra allar skoðanir, líka þær sem við þolum ekki.
      4
    • Bára Halldórsdóttir skrifaði
      Til Baldurs. Efni fréttarinnar er ekki málið heldur framsetning hennar. Hvergi er farið nánar í þær rannsóknir sem til eru og styðja hina hlið málsins og einnig ranghermingar eins og sú að Sigga Birna segi: "Ljóst er út frá orðum hennar að hún telur að nauðsyn geti brotið lög". Frekar mætti segja að hún telji að aukaverkanir séu ekki eins þungvægar og afleiðingar aðgerðaleysi. Öll þau rök sem nefnd eru hér eru foreldrum vel þekkt og fylgst er með og unnið með aukaverkanir ef upp koma. Landsspítala stefnan miðar við læknisfræðileg rök byggð á vísindum hvers tíma en Svíar og Finnar velja annað. Svíar völdu líka afdrifaríka stefnu í Covid sem við erum líklega sátt við að ekki var fylgt hér. Við lestur greinarinnar situr lítið eftir af upplýsingum um áralanga reynslu af notkun blokkara fyrir cis börn sem eru til gildar rannsóknir um. Grein um svona eldfimt málefni, einkum þegar ekki er liðin vika frá umfjöllun um aukið aðkasti gegn hinsegin börnum og unglingum þarf að fara dýpra í málið og fjalla skýrt um á hverju er byggt á núna og vægi andlegrar heilsu. Ég er foreldri trans barns og svona fréttir eru áhyggjuefni þegar ekki er unnið almennilega úr.
      4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Heilbrigðisþjónusta transbarna

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár