Sögðu fáheyrt að ráðherrar lýstu ekki stuðningi við samráðherra

Stjórn­ar­and­stöðu­þing­menn köll­uðu eftir því að Sigurður Ingi Jóhanns­son kæmi fyrir þingið og svar­aði fyrir rasísk ummæli sín. Forseti Alþingis kvaðst ekki ætla að breyta dag­skrá þings­ins.

Sögðu fáheyrt að ráðherrar lýstu ekki stuðningi við samráðherra
Sam­þykkti ekki að kalla á Sigurð Inga Birgir Ármanns­son, for­seti Alþingis, féllst ekki á kröfu stjórn­ar­and­stöð­unnar um að Sigurður Ingi kæmi fyrir þingið og stæði fyrir máli sínu.

Þingmenn stjórn­ar­and­stöð­unnar kröfð­ust þess í dag að Sigurður Ingi Jóhann­son inn­við­a­ráð­herra og for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins kæmi fyrir Alþingi og gerði grein fyrir máli sínu, er varðar rasísk ummæli sem hann lét falla í lið­inni viku. Forseti Alþingis varð ekki við því. Ekki hefur borist form­leg kvörtun til for­sætis­nefndar Alþingis vegna hugs­an­legs brots Sigurðar Inga á siða­reglum þing­manna.

Sigurður Ingi ját­aði í gær að hafa haft óvið­ur­kvæmi­leg orð um Vigdísi Häsler, fram­kvæmda­stjóra Bænda­sam­tak­anna, í boði Fram­sókn­ar­flokks­ins síð­ast­lið­inn fimmtu­dag. Áður hafði Vigdís birt yfir­lýs­ingu um að Sigurður Ingi hefði við­haft mjög sær­andi orð­færi. Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar vís­aði Sigurður Ingi til Vigdísar sem „þeirrar svörtu“.

Halldóra Mogensen, þing­flokks­for­maður Pírata, fór fram á að ræða fund­ar­stjórn for­seta Alþingis við upp­haf þing­fundar í dag. Vakti hún þar máls á því að Sigurður Ingi hefði orðið upp­vís að hegðun sem væri „ólíð­andi fyrir ráð­herra í rík­is­stjórn og for­mann stjórn­ar­flokks.“ Hann hefði farið undan í flæm­ingi aðspurður um málið og neitað að svara því með hvaða hætti hann hygð­ist axla ábyrgð.

Halldóra benti á að til stæði að ræða á Alþingi fjár­mála­á­ætlun þar sem Sigurður Ingi ætti að vera við­staddur og svara fyrir sín mál­efna­svið. „Það gengur ekki, for­seti, að Alþingi haldi bara áfram eins og ekk­ert hafi í skorist, enda starfar rík­is­stjórnin í umboði meiri hluta þings­ins. Ég fer því fram á að ráð­herra komi fyrir þingið, geri grein fyrir máli sínu í yfir­lýs­ingu sam­kvæmt 61. grein þing­skapa og í kjöl­farið gef­ist þing­mönnum kostur á að eiga orða­stað við ráð­herra. Ráðherra verður að gera hreint fyrir sínum dyrum gagn­vart þing­inu og almenn­ingi áður en lengra er haldið.“

„Við hér inni hljótum að gera ský­lausa kröfu um að hann svari fyrir fram­göngu sína en sýni ekki fjöl­miðlum bara aft­ur­end­ann á sér“
Jóhann Páll Jóhanns­son
þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar um Sigurð Inga.

Þingmenn allra stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna tóku undir með Halldóru. „Við hér inni hljótum að gera ský­lausa kröfu um að hann svari fyrir fram­göngu sína en sýni ekki fjöl­miðlum bara aft­ur­end­ann á sér,“ sagði Jóhann Páll Jóhanns­son, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar í umræð­unum.

Forseti vildi ekki breyta dagskrá

Birgir Ármanns­son for­seti Alþingis tók þá til máls og greindi frá því að hann hefði átt fundi með þing­flokks­for­mönnum um dag­skrá þings­ins. Ósk um að Sigurður Ingi kæmi fyrir þingið og gerði grein fyrir máli sínu hefði ekki komið þar fram og því hyggð­ist for­seti ekki gera breyt­ingar á dag­skránni.

Þingmenn stjórn­ar­and­stöð­unnar voru ekki sáttir við þá afstöðu Birgis og ítrek­uðu ein­dregið stuðn­ing sinn við kröfu Halldóru. „Ég set spurn­inga­merki við það hversu ein­læg og hversu ærleg sú afsök­un­ar­beiðni var sem hæst­virtur ráð­herra setti fram þegar hann gerði það í því sam­hengi að hann var kom­inn algjör­lega upp að vegg. Það er nauð­syn­legt að þetta sam­tal fái að eiga sér stað hér inni í þessum sal,“ sagði Þorbjörg Sigríður Gunn­laugs­dóttir, þing­kona Við­reisnar.

Bjarni sagði rangt farið með orð sín

Þá var á það bent í ræðum þing­mann­anna Sigmars Guð­munds­sonar, áður­nefndra Jóhanns Páls og Þor­bjargar og Andrésar Inga Jóns­sonar, að sam­ráð­herrar Sigurðar Inga, þau Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, og Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, háskóla-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra, hefðu ekki treyst sér til að lýsa yfir stuðn­ingi við Sigurð Inga þegar Rík­is­út­varpið spurði þau út í málið.  Var meðal ann­ars verið að vísa til ummæla Bjarna þegar hann var spurður hvort hann teldi Sigurði Inga sætt í emb­ætti vegna máls­ins. „Það er alfarið mál þess sem á í hlut hverju sinni að leggja mat á það og ég ætla ekki að leggja neitt á mig til þess að hjálpa til við það,“ sagði Bjarni í við­tali við Rík­is­út­varpið.

„Ef þú styður rík­is­stjórn­ina sem ráð­herra þá seg­irðu: Já, mér finnst hann ekk­ert eiga að segja af sér“
Andrés Ingi Jónsson
þing­maður Pírata um svör Bjarna Bene­dikts­sonar

„Er ástandið í stjórn­ar­ráð­inu orðið það við­kvæmt, eins og end­ur­spegl­ast í því til dæmis að for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, þegar hann er spurður hvort hann styðji inn­við­a­ráð­herra, segir ekki já. Það er eina svarið sem er í boði þegar þú ert ráð­herra í rík­is­stjórn. Ef þú styður rík­is­stjórn­ina sem ráð­herra þá seg­irðu: Já, mér finnst hann ekk­ert eiga að segja af sér,“ sagði Andrés Ingi í umræð­unum um fund­ar­stjórn for­seta.

Bjarni kom þá í ræðu­stól og sagði rangt farið með orð sín þegar því hafi verið haldið fram að hann hafi neitað að veita Sigurði Inga stuðn­ings­yf­ir­lýs­ingu. „Þetta er bara alrangt. Það sem ég var að bregð­ast við var beiðni frétt­manns um það að taka afstöðu með því hvort að annar stjórn­mála­maður ætti að segja af sér. Það er bara mín skoðun að það fer ekk­ert sér­stak­lega vel á því að einn stjórn­mála­mann segi annan ætti að segja af sér.“

Umræðum um fund­ar­stjórn for­seta lauk án þess að orðið yrði við kröfu um að Sigurður Ingi mætti fyrir þingið.

Fyrr í dag hafði Stundin sam­band við Birgi Ármann­sons þing­for­seta og innti hann eftir því hvort kvörtun vegna hugs­an­legs brots Sigurðar Inga á siða­reglum þing­manna hefði komið inn á borð for­sætis­nefndar. Svaraði Birgir því til að svo væri ekki, svo honum væri kunn­ugt um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ásgeir Överby skrifaði
    Það eru í raun þrjár ríkisstjórnir í landinu. Þetta mál opinberar með skýrum hætti valdleysi Katrínar Jakobsdóttur.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
6
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
6
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár