„Enginn hefur áhuga á að mæta Rússum“

Formaður KKÍ segir allar líkur á að sam­bandið muni gefa út yfir­lýs­ingu um að lands­lið Íslands í körfuknatt­leik muni ekki mæta Rússum. Stutt er í leik kvenna­lands­liðs­ins í knatt­spyrnu gegn Hvít-Rússum.

„Enginn hefur áhuga á að mæta Rússum“
Munu vænt­an­lega ekki mæta Rússum Hannes Sig­ur­björn Jónsson segir lík­legt að KKÍ gefi út yfir­lýs­ingu um að lands­lið Íslands muni ekki mæta þeim rúss­nesku. Hann vill þó sjá að Alþjóða­körfuknatt­leiks­sam­bandið vísi Rússum hrein­lega úr keppni. Mynd: KKÍ

Íslensk lands­lið í knatt­spyrnu og í körfuknatt­leik ættu að mæta bæði Rússum og Hvít-Rússum á næstu mán­uðum, í und­ankeppni heims­meist­ara­móta og í þjóða­deild­inni. Eftir inn­rás Rússa í Úkraínu, og stuðn­ings Hvít-Rússa við hana, er vax­andi þungi á sér­sam­bönd að úti­loka Rússa frá keppni auk þess sem skorað er á lands­lið ann­arra ríkja að neita að taka þátt í fyr­ir­hug­uðum leikjum við rúss­nesk lands­lið. Þannig hafa Pól­verjar til að mynda gefið út að þeir muni ekki mæta til leiks gegn Rússum í mars­mán­uði. Enn hafa engar slíkar yfir­lýs­ingar verið gefnar út hér á landi.

Íslenska karla­lands­liðið í körfuknatt­leik á að mæta Rússum hér heima 4. júlí næst­kom­andi í und­ankeppni heims­meist­ara­móts­ins. Hannes Sig­ur­björn Jónsson, for­maður Körfuknatt­leiks­sam­bands Íslands, segir að enn hafi ekki verið rætt form­lega innan sam­bands­ins hvaða afstöðu það taki varð­andi leik­inn, enda var karla­lands­liðið í verk­efni nú um helg­ina þegar það mætti Ítalíu, fyrst á fimmtu­dags­kvöld hér heima og svo úti á Ítalíu í gær. Því hafi öll orka farið í það verk­efni. Hins vegar hafi menn rætt óform­lega á milli sín.

„Enginn hefur áhuga á að mæta Rússum eins og staðan er núna. Það á ekki bara við um okkur Íslend­inga, Norð­ur­landa­þjóð­irnar eru að tala saman og ég heyri að þar hefur eng­inn áhuga á að spila við Rússa,“ segir Hannes í sam­tali við Stundina.

„En það eru allir í kringum okkur sem hafa óbeit á þessum stríðs­rekstri Rússa“
Hannes Sig­ur­björn Jónsson
Formaður KKÍ

Boðaður er stjórn­ar­fundur hjá KKÍ á mánu­dag­inn eftir viku og segir Hannes að hann geri ráð fyrir að þá verði tekin ákvörðun um að íslensk lands­lið ætli ekki að mæta til leiks gegn lands­liðum Rúss­lands. Í öllu falli verði ákveðið að skora á Alþjóða körfuknatt­leiks­sam­bandið (FIBA) að úti­loka Rússa frá keppnum sam­bands­ins. „Það hefur ekki verið tekin ákvörðun en eins og staðan er núna munum við ábyggi­lega gefa út yfir­lýs­ingu um að við munum ekki mæta þeim. Við erum þó að pressa á FIBA um að taka þá ákvörðun að vísa Rússum úr keppn­inni. Þetta eru ennþá óform­lega sam­töl, þó veit ég að ein­hver lönd hafa sent þeim form­leg erindi um það. Við munum senda FIBA erindi þess efnis og það hefur komið til tals að Norð­ur­löndin gera það sam­eig­in­lega.  Ég vona að FIBA taki aðra ákvörðun en FIFA, mér finnst alls ekki nógu langt gengið hjá FIFA.“

Hannes segir að hann hafi ekki rætt sér­stak­lega við leik­menn lands­liðs­ins, þeir hafi enda haft hug­ann allan við leik­inn gegn Ítalíu. „En það eru allir í kringum okkur sem hafa óbeit á þessum stríðs­rekstri Rússa. Ég greini það mjög vel.“

KSÍ segir stöðuna gjörbreytta

Íslenska kvenna­lands­liðið í knatt­spyrnu á úti­leik gegn Hvíta-Rúss­landi þann 7. apríl og karla­lands­liðið mætir Rússum að óbreyttu ytra 10. júní. Alþjóða­knatt­spyrnu­sam­bandið, FIFA, ákvað að víkja Rússum ekki úr keppnum FIFA. Þess í stað var látið duga að setja Rússum skil­yrði. Rússar megi ein­göngu leika heima­leiki sína á hlut­lausum völlum án áhorf­enda, engir fánar verði leyfðir og þjóð­söngur Rúss­lands ekki leik­inn. Þá fái liðin ekki að leika undir merkjum Rúss­lands heldur undir merkjum knatt­spyrnu­sam­bands Rúss­lands. FIFA hefur þó sagt að ekki sé enn úti­lokað að Rússum verði vikið alfarið úr keppnum.

Þegar hafa nokkur knatt­spyrnu­sam­bönd gefið það út að þau muni ekki leika gegn Rússum. Pólska karla­lands­liðið á leik gegn þeim 24. mars í Moskvu en hefur gefið út að liðið muni ekki mæta í þann leik. Enska knatt­spyrnu­sam­bandið hefur gefið út að ensk lands­lið muni ekki mæta rúss­neskum. Þá hafa leik­menn í ein­hverjum til­fellum gefið út sam­svar­andi yfir­lýs­ingar.

Vanda Sig­ur­geirs­dóttir, nýend­ur­kjör­inn for­maður KSÍ,  gat ekki svarað fyr­ir­spurn Stund­ar­innar sökum veik­inda. Klara Bjartmarz fram­kvæmda­stjóri segir að verið að sé að skoða málin, einkum varð­andi leik­inn gegn Hvíta-Rúss­landi sem er styttra í. „Staðan hefur gjör­breyst eftir inn­rás­ina, við erum að safna gögnum en það er ekk­ert ljóst ennþá.“

„Mér finnst það þurfa að koma sterk­lega til skoð­unar, það er ekk­ert leynd­ar­mál“
Haf­steinn Pálsson, 2. vara­for­seti ÍSÍ
um hvort sam­bandið eigi að beita sér fyrir því að íþrótta­kapp­leikir gegn Rússum verði snið­gengnir.

Haf­steinn Pálsson, 2. vara­for­seti Íþrótta- og ólymp­íu­sam­bands Íslands (ÍSÍ), hefur á sinni eigin Facebook-síðu lýst mik­ill sam­stöðu með Úkraínu og and­stöðu við inn­rás Rússa. Spurður hvort það hafi farið fram umræða innan ÍSÍ um málið, og hvort komi til greina að gefa út yfir­lýs­ingu þar sem sér­sam­bönd verði hvött til að snið­ganga íþrótta­kapp­leiki gegn Rússum svar­aði Haf­steinn því til að boð­aður sé stjórn­ar­fundur á fimmtu­dag­inn. Ekki sé komin dag­skrá fyrir þann fund svo hann viti ekki hvort málið komi þar til umræðu. Spurður hvort hann sé þeirrar skoð­unar að ÍSÍ ætti að beita sér með þeim hætti svar­aði Haf­steinn: „Mér finnst það þurfa að koma sterk­lega til skoð­unar, það er ekk­ert leynd­ar­mál.“

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár