Rússar ráðast á það sem gerir sjálfstæði Íslands mögulegt

Vladimir Pútín hefur kom­ist upp með of margt, segir Baldur Þór­halls­son stjórn­mála­fræð­ingur, sem sér­hæfir sig í stöðu smá­ríkja, eins og Íslands, sem er ógnað af breyttri heims­mynd Pútíns.

Rússar ráðast á það sem gerir sjálfstæði Íslands mögulegt
Mót­mæl­endur í Edinborg Mót­mæl­endur komu saman í Skotlandi í gær, líkt og í öðrum Evr­ópu­ríkjum. Mynd: AFP

Sjálf­stæði Íslands og ann­arra smá­ríka byggir á því heims­kerfi sem Rússar ráð­ast gegn með inn­rás sinni í Úkraínu. Baldur Þór­halls­son, stjórn­mála­fræð­ingur og sér­fræð­ingur í stöðu smá­ríkja, segir að þeirri heims­mynd sé ógnað með fram­ferði Rússa.

„Nú þegar rúss­nesk stjórn­völd end­an­lega sýna fram á að þau virða einskis sjálfs­á­kvörð­un­ar­rétt ríkja, þá eru örygg­is­mál í Evrópu komin í upp­nám,“ segir Baldur í sam­tali við Stundina. „Sér­stak­lega fyrir smá­ríki - sem byggja til­veru­rétt sinn á vilja stórra ríkja til þess að við­ur­kenna sjálf­stæði og full­veldi þeirra - vegna þess að hern­að­ar­lega og efna­hags­lega eru stór ríki miklu öfl­ugri heldur en smærri og geta valtað yfir þau ef þau vilja gera það.“

Tilvist smáríkja byggir á viðhorfi

Baldur segir til­vist smá­ríkja, eins og Íslands sem hefur verið sjálf­stætt frá seinna stríði, byggja á grund­vall­ar­við­horfi sem var inn­leitt eftir að banda­menn sigr­uð­ust á Adolf Hitler og öðrum ein­ræð­is­herrum í Seinni heims­styrj­öld.

Baldur Þór­halls­sonHefur gagn­rýnt íslenska sér­fræð­inga í mál­efnum Úkraínu, sem sögðu stríð ekki yfir­vof­andi.

„Smáríki eru í raun­inni til vegna vilja stórra ríkja að við­ur­kenna þau. Lög og grund­vall­ar­við­mið í núver­andi alþjóða­kerfi byggja á sjálfs­á­kvörð­un­ar­valdi þjóða. Sjálf­stæði og full­veldi ríkja, eru grund­völlur fyrir til­vist smá­ríkja. Þetta laga­lega umhverfi, sem sett var á fót, innan Sam­ein­uðu þjóð­anna, eftir síð­ari heims­styrj­öld, hefur gert það að verkum að smá­ríkjum í heim­inum hefur stór­fjölgað. Vegna þess að stór ríki eru viljug til að við­ur­kenna þetta grund­vall­ar­við­mið sem er ríkj­andi í alþjóða­kerf­inu.“

„Smáríki eru í raun­inni til vegna vilja stórra ríkja að við­ur­kenna þau.“

Baldur vill ekki ganga svo langt að segja ástandið beina ógn við stöðu Íslands. „Öryggi borg­ara Nató-ríkja er ekki ógnað með beinum hætti. Vegna þess að Nató ætlar ekki að verja Úkraínu. Hvort þessi átök vindi upp á sig og það geti orðið mis­tök og menn lendi í átökum, það er næsta skref. Í augna­blik­inu lítur ekki út fyrir að þessi átök breið­ist út fyrir landa­mæri Úkraínu. En eigi að síður, þrátt fyrir það er þetta ógn við örygg­is­kerfi Evrópu sem mótað var eftir Seinni heims­styrj­öld og fall Sov­ét­ríkj­anna. Öllum þeim ríkjum í Mið- og Austur-Evrópu, sem ekki hafa gengið í Nató, stendur bein ógn af Rúss­landi. Ef Rússland vill taka þau yfir hern­að­ar­lega og með valdi, þá mun það gera það.“

Pútín líkt við HitlerMót­mæl­endur fyrir utan bygg­ingu Nató í Haag í Hollandi líktu Pútín við Adolf Hitler, eins og gert var víða ann­ars staðar.

Íslendingar reyndu að hætta við refsiaðgerðir

Íslenskir stjórn­mála­menn hafa tekið seinna við sér en flestir evr­ópskir í aðdrag­anda þess að Vladimir Pútín fyr­ir­skip­aði inn­rás í Úkraínu. Þannig heyrð­ist ekk­ert frá for­sæt­is­ráð­herra Íslands fyrr en inn­rásin var orðin að veru­leika.

Baldur segir íslensk stjórn­völd hafa reynt að bakka út úr refsi­að­gerðum sem settar voru á Rússa eftir að þeir inn­lim­uðu Krím­skaga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jóhannes Ragnarsson skrifaði
    Getur verið að hann Baldur fræðingur og sérfræðingur sé dálítið hlutdrægur í fræði- og sérfræðiiðkan sinni? Það er hreinlega farinn að læðast að mér grunur um að svo sé.
    1
  • Sigurður Þórarinsson skrifaði
    Það mætti raunar alveg koma fram að þessi hr. Baldur þagði þunnu hljóði er ,,siðuð" vesturveldi þverbrutu alla sömu alþjóðlegu lagabálkana og Rússaveldi er að gera nú með ólögmætum hernaðaraðgerðum sínum gegn Írak í byrjun árs 2003. Man nú ekki til þess að þeim þjóðum er að því stóðu hafi verið meinuð þátttaka í Euro eða þá að úrslitaleikur meistaradeildarinnar hafi verið tekin af Bretaveldi í kjölfarið (sá leikur fór raunar fram í Manchester, Englandi, tveimur mánuðum eftir að Bretinn hafði ráðist á Írak). Og ef við ætlum að tala um að ,,ganga of langt," þá eiga nú Bandaríki N - Ameríku eflaust heimsmetið í því:

    http://www. informationclearinghouse. info/48634.htm

    Og talandi um að ,,snúa hlutum á hvolf"

    https://scheerpost. com/2022/02/24/hedges-the-chronicle-of-a-war-foretold/
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Úkraínustríðið

Mest lesið undanfarið ár