Mynd: Davíð Þór

Þúsundir tonna endurvinnanlegs úrgangs urðuð í þjóðlendu

Allt að fimm þús­und tonn af end­ur­vinn­an­legu gleri er nú urðað árlega í Bolöldu. Fyr­ir­tækið End­ur­vinnslan hf. sparar sér tugi millj­óna króna með þessu í stað þess að end­ur­vinna það.

Gríð­ar­legt magn af alls kyns úrgangi er losað í þjóð­lend­unni Bolöldu í nágrenni Blá­fjalla. Að nafn­inu til er svæðið ein­ungis ætlað undir jarð­vegs­efni en er nú líkt við eft­ir­lits­lausan gam­al­dags ösku­haug, spöl­korn frá vatns­vernd­ar­svæðum höf­uð­borg­ar­innar. Allt gler sem skilað er til End­ur­vinnsl­unnar, um fimm þús­und tonn á ári, er urðað á svæð­inu.

Lítið eft­ir­lit er með úrgangslosun og herma heim­ildir Stund­ar­innar að því sé lítið mál að „taka séns­inn“ og losa þar meng­andi úrgang sem ann­ars þyrfti að greiða fyrir. Einn maður hefur að auka­starfi að sinna eft­ir­liti með losun allt að 300 vöru­bíls­farma af úrgangi á svæð­inu dag hvern. 

For­sæt­is­ráð­herra heim­sækir BolölduFor­sæt­is­ráðu­neytið tók form­lega við þjóð­lend­unni árið 2019

Forsætisráðherra tekur við Bolöldu 

Þann 6. nóv­em­ber 2019 tók Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra form­lega við gamla námu­svæð­inu í Bolöldu. Þennan dag gekk for­sæt­is­ráð­herra um svæðið ásamt Elliða Vign­is­syni, …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Brynjúlfur Sæmundsson skrifaði
    Óprúttnir menn finna alltaf leið framhjá slöku eftirliti.
    1
  • SSS
    Sigurjón Smári Sverrisson skrifaði
    Hvaða flokksskirteini hefur þessi vesælingur Helgi Lárusson, framkvæmdastjóri Endurvinnslunnar hf upp á vasann?
    0
  • Þuríður Þráinsdóttir skrifaði
    Þið hjá Stundinni eigið heiður skilið fyrir að skrifa um þetta mál
    4
  • Anna Óskarsdóttir skrifaði
    Hversu lengi er hægt að bíta höfuðið af skömminni og maka krókinn i umhverfissóðaskapnum?
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Endurvinnsla á Íslandi

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár