Berdreymi verðlaunuð á Berlinale hátíðinni

Ný kvik­mynd Guð­mundar Arnars Guð­munds­sonar var valin besta evr­ópska kvik­myndin úr svoköll­uðum Panorama flokki hátíð­ar­innar í Berlín af Samtökum evr­ópskra kvik­mynda­húsa, Europa Cinemas.

Berdreymi verðlaunuð á Berlinale hátíðinni
Ber­dreymi hóp­ur­inn á Berl­inale Guð­mundur Arnar Guð­munds­son (til hægri) fær lof fyrir nálgun sína á líf ung­menna í Reykja­vík. Mynd: Brigitte Dummer

Ný íslensk kvik­mynd, Ber­dreymi, hefur hlotið verð­laun á Berl­inale kvik­mynda­há­tíð­inni sem nú stendur yfir. Samtök evr­ópskra kvik­mynda­húsa, Europa Cinemas, völdu mynd­ina sem bestu evr­ópsku kvik­mynd­ina í Panorama flokki kvik­mynda­há­tíð­ar­innar í Berlín.

Myndin var frum­sýnd á hátíð­inni síð­asta föstu­dag og er hún önnur mynd Guð­mundar Arnars Guð­munds­sonar leik­stjóra í fullri lengd, en hann leik­stýrði mynd­inni Hjarta­steinn sem kom út árið 2016. Leik­ara­hóp­ur­inn úr mynd­inni var við­staddur hátíð­ina, mikið til ungt fólk sem var að stíga sín fyrstu skref í leik­list­inni. Anton Máni Svansson, fram­leið­andi mynd­ar­innar, tók á móti verð­launum í Berlín fyrir hönd hóps­ins. 

Í til­kynn­ingu frá fram­leið­endum mynd­ar­innar segir að verð­launin séu þýð­ing­ar­mikil þar sem Samtök evr­ópskra kvik­mynda­húsa muni styðja við dreif­ingu mynd­ar­innar um alla Evrópu eða í allt að 1143 kvik­mynda­húsum í 44 löndum sem eru hluti af sam­tök­unum. Á ensku hefur myndin fengið tit­il­inn Beauti­ful Beings.

Úr Ber­dreymiMyndin fer í dreif­ingu í fjölda kvik­mynda­húsa erlendis.

„Önnur mynd Guð­mundar veitir sann­ar­lega harða sýn á hóp ung­lings­drengja sem reyna að finna veg­inn áfram þrátt fyrir að tengja illa við brotnar fjöl­skyldur sínar,“ segir meðal ann­ars í orðum dóm­nefnd­ar­innar. „En það er hlýjan, sam­hliða ofbeld­inu, sem gerir þetta að mynd sem fólk verður að sjá.“

Fjallar um ofbeldi og vináttu ungmenna

Ber­dreymi segir frá Adda, ung­lings­strák í Reykja­vík sem alinn er upp af móður með skyggni­gáfu. Einn dag­inn ákveður Addi að taka ein­elt­is­fórn­ar­lamb undir sinn vernd­ar­væng og inn í vina­hóp slags­mála­hunda. Án eft­ir­lits, leika strák­arnir sér að eyði­legg­ingu og ofbeldi en kynn­ast einnig sannri vin­áttu. Þegar hegðun strák­anna stig­magn­ast yfir í lífs­hættu­lega atburði, fer Addi að upp­lifa eigin skynj­anir.

Guð­mundur Arnar skrif­aði hand­ritið og með aðal­hlut­verk fara ungst­irnin Birgir Dagur Bjarka­son, Áskell Einar Pálmason, Viktor Benóný Bene­dikts­son, og Snorri Rafn Frí­manns­son, ásamt þeim þaul­reyndu Anítu Briem, Ólaf Darra Ólafs­syni og Ísgerði Gunn­ars­dóttur. Fram­leið­andi mynd­ar­innar er Anton Máni Svansson fyrir hönd Join Motion Pictures, en myndin er sam­starfs­verk­efni fimm landa með með­fram­leið­endur frá Danmörku, Svíþjóð, Hollandi og Tékk­landi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár