„Er maður heppinn þótt maður hafi komist úr fátæktinni?“

„Ég skildi ekki af hverju fólk var að kalla mig grjón úti í frí­mín­útum,“ segir Melanie Ubaldo mynd­list­ar­kona, sem vinnur með minn­ing­arnar í verkum sínum. Þegar Melanie var átta ára flutti móðir hennar ein til Íslands og var hér án barn­anna í fimm ár áður en þau gátu fylgt á eftir. Melanie skrifar meist­ara­rit­gerð um það hvernig hún hold­gerir það hvernig sam­fé­lagið hefur hafnað henni. Orð geti aldrei sært hana, en þeim fylgi ábyrgð.

„Er maður heppinn þótt maður hafi komist úr fátæktinni?“

„Minn­ingar hafa svo mikil áhrif á verkin mín núna,“ segir Melanie Ubaldo mynd­list­ar­maður. Sem stendur er hún á öðru ári í masters­námi í mynd­list í Lista­há­skóla Íslands. Hún vinnur að list sinni í skól­anum, enda þarf hún mikið pláss þar sem verk hennar hylja stundum næstum heila veggi. Melanie saumar saman striga­búta sem hún hefur málað á, stundum, en stundum ekki. Stundum er bara blæ­brigða­munur á bút­unum. Oftast er texti með, skrif­aður eða krot­aður á sam­an­saum­aðan strig­ann. Það minnir á veggjakrot þar sem orð eða setn­ing er lesin sem öskur, eða að minnsta kosti mik­il­væg skila­boð sem verða að kom­ast á fram­færi. Stíll Melanie er sér­stakur og auð­þekkj­an­legur, hún hefur líka átt sér­staka ævi og fór ekki hefð­bundna leið í mynd­list­inni.

Melanie ólst upp á Fil­ipps­eyjum en flutti til Íslands þegar hún var þrettán ára. Á Fil­ipps­eyjum bjó hún við fátækt og aðspurð hvort ein­hver list hafi verið í …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • ÁHG
    Árni Hafþór Guðnýjarson skrifaði
    Já því miður er það svo hér á landi ,hér detta engir bitar af borðum ekki einu sinni mylnsa og allur gróði á að færast á sömu hendur.Nöturleg staðreind að lifa við.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hús & Hillbilly

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár