Sex leikmenn karlalandsliðsins sakaðir um kynferðis- og ofbeldisbrot

Aðgerða­hópurinn Öfgar sendi stjórn KSÍ upplýsingar um sex lands­liðsmenn sem sagðir eru hafa beitt kynferðis­ofbeldi og ofbeldi. Hluti leik­mannanna hefur ekki verið nafn­greindur áður í tengslum við slík brot.

Sakaðir um brot
Sakaðir um brot KSÍ fékk upp­lýs­ingar um að sex leik­menn karla­lands­liðs­ins hefðu gerst upp­vísir að kyn­ferði- og ofbeld­is­brotum. Mynd: Golli

Aðgerða­hópurinn Öfgar sendi stjórn Knattspyrnu­sambands Íslands tölvupóst 27. september þar sem greint var frá nöfnum sex lands­liðsmanna sem samkvæmt póstinum hefðu gerst sekir um ofbeldis- og kynferðis­brot.  Dagsetningar þeirra brota sem Öfgar tilgreindu fylgdu einnig í umræddum tölvu­pósti. Arnar Þór Viðarson landsliðs­þjálfari mun ekki hafa getað valið alla þá leikmenn sem hann hugðist velja í lands­liðshóp karla­lands­liðsins sökum þessa. Í pósti Öfga var Arnar Þór ennfremur sagður gera lítið úr þolendum ofbeldis með framgöngu sinni í fjöl­miðlum.

Frá þessu er greint í Morgun­blaðinu. Samkvæmt heimildum blaðsins er mál lands­liðs­mannanna til skoðunar hjá samskipta­ráðgjafa íþrótta- og æskulýðs­starfs ÍSÍ, Sigurbjörgu Sigur­pálsdóttur. Á meðan að svo er eru leik­mennirnir ekki gjald­gengir í landsliðinum.

Þrír af leik­mönnunum sex eru þeir Gylfi Þór Sigurðsson, Aron Einar Gunnarsson og Kolbeinn Sigþórsson samkvæmt frétt Morgun­blaðsins í dag. Þessir þrír hafa allir hafa verið nafn­greindir áður í fjöl­miðlum fyrir meint brot. Gylfi Þór sætir farbanni í Englandi vegna rann­sóknar á kynferðis­broti, Aron Einar hefur óskað eftir því við lögreglu að gefa skýrslu um atvik árið 2010 og Kolbeinn greiddi tveimur konum skaða­bætur vegna áreitni og ofbeldis árið 2017.

Í frétt Morgun­blaðsins segir að hinir þrír leik­mennirnir hafi ekki verið nafn­greindir í íslenskum fjöl­miðlum. Stundin hefur þó heimildir fyrir því að einn þeirra sé Ragnar Sigurðsson, sem greint hefur verið frá að hafi árið 2016, nóttina eftir að lands­liðsmenn komu heim eftir Evrópu­mótið í fótbolta í Frakk­landi, gengið berserks­gang á heimili sínu og haft í hótunum við þáverandi eiginkonu sína.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

KSÍ-málið

FréttirKSÍ-málið

Formaður stjórnar í samskiptum við lögmanninn

Kæra var lögð fram á hend­ur leik­manni FH, Eggerti Gunn­þóri Jóns­syni, ásamt lands­liðs­fyr­ir­lið­an­um. Aron Einar Gunnarsson komst ekki í lands­liðs­hóp­inn vegna máls­ins. Formað­ur að­al­stjórn­ar FH, Við­ar Hall­dórs­son, seg­ist hafa haft vitn­eskju um ásak­an­irn­ar í sum­ar en ekki sé ástæða til að bregðast við á meðan leik­mennirnir hafi ekki verið kallaðir í skýrslu­töku og fé­laginu ekki borist til­kynn­ing frá lög­regl­unni.
FréttirKSÍ-málið

Lögmaður tengdur KSÍ og Kolbeini birti gögn um brotaþola

Gunnar Ingi Jóhannsson, lögmaður Þórhildar Gyðu Arnars­dóttur, segir að birting rann­sóknargagna geti varðað við brot á hegningar­lögum og íhugar að kæra Sigurður G Guðjónsson til lögreglu vegna þess. Rík ástæða sé til að hafa áhyggjur af því að rann­sóknargögn í sakamálum séu notuð í annarlegum tilgangi á opinberum vettvangi og ástæðu til að hafa áhyggjur af því að lögmaður sem hefur ekki aðkomu að málinu sé fenginn til að fronta birtingu slíkra gagna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár