Stjórnmálaflokkar skila auðu í stórum málaflokkum

Í fleiri til­vikum en færri eru kosn­inga­á­herslur stjórn­mála­flokk­anna sem bjóða fram til Alþingis almennar og óút­færðar. Kostn­að­ar­út­reikn­ingar fylgja stefnu­málum í fæstum til­fellum og mikið vantar upp á að sýnt sé fram á hvernig eigi að fjár­magna kosn­inga­lof­orðin. Hluti flokk­anna hefur ekki sett fram kosn­inga­stefnu í stórum mála­flokkum. Almennt orð­aðar stefnu­skrár gætu orðið til þess að liðka fyrir stjórn­ar­myndun.

Stjórnmálaflokkar skila auðu í stórum málaflokkum
Margt óljóst Í kosn­inga­stefnu­skrám stjórn­mála­flokk­anna eru kosn­inga­lof­orðin almennt orðuð og færri en fleiri útfærð. Sumir flokk­anna hafa enga stefnu birt í stórum mála­flokkum.

Stefnu­mál stjórn­mála­flokk­anna sem bjóða fram í alþing­is­kosn­ing­unum 25. sept­em­ber næst­kom­andi eiga það í stórum dráttum sam­eig­in­legt að vera lítt fjár­magn­aðar og fátt er um stefnu­mál sem aug­ljóst er að afli rík­is­sjóði tekna. Óvíða er að finna útreikn­inga á kostn­aði við að hrinda málum í fram­kvæmd og almennt er mikið um almennt orð­aðar áherslur en minna um útfærð og skil­greind kosn­inga­lof­orð.

Stundin hefur greint kosn­inga­stefnur þeirra níu flokka sem ljóst má vera að bjóði fram í öllum kjör­dæmum í kom­andi þing­kosn­ingum og eigi raun­hæfa mögu­leika á að fá full­trúa kjörna á þing. Átta þeirra buðu fram í síð­ustu alþing­is­kosn­ingum og fengu kjörna full­trúa á Alþingi. Níundi flokk­ur­inn er Sós­í­alista­flokkur Íslands sem ekki bauð fram við síð­ustu alþing­is­kosn­ingar.

Auk þess sem um er að ræða almennar áherslur í mörgum mála­flokkum hjá flokk­unum er það einnig svo að sumir flokk­anna skila bein­línis auðu í stórum mála­flokkum. Þannig er ekk­ert að finna í mál­efna­á­herslum …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Alþingiskosningar 2021

Inga Sæland vill ekki bregðast við ásökunum á hendur frambjóðanda Flokks fólksins
FréttirAlþingiskosningar 2021

Inga Sæland vill ekki bregð­ast við ásök­unum á hendur fram­bjóð­anda Flokks fólks­ins

Inga Sæland, for­maður Flokks fólks­ins, seg­ist ekki vilja bregð­ast við tölvu­pósti þar sem fram­bjóð­andi flokks­ins er sak­aður um að hafa brotið ítrekað á konum í gegnum tíð­ina. Hún seg­ist ekki vita um hvað málið snýst og ætli því ekki að aðhaf­ast. Hún seg­ist þó hafa fengið ábend­ingu um sama mál nokkrum dögum fyrir kosn­ingar. Mis­mun­andi er eftir flokkum hvaða leiðir eru í boði til þess að koma á fram­færi ábend­ingu eða kvörtun um með­limi flokks­ins. Flokkur fólks­ins er til að mynda ekki með slíkar boð­leiðir.
Meðlimur í kjörstjórn kærir vegna „gruns um kosningasvik“ í Suðvesturkjördæmi
Fréttir

Meðlimur í kjör­stjórn kærir vegna „gruns um kosn­inga­svik“ í Suð­vest­ur­kjör­dæmi

Geir Guð­munds­son, með­limur í kjör­stjórn Kópavogs, hefur lagt fram kæru til lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu vegna fram­kvæmd kosn­inga í Suð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann vill að lög­regla rann­saki kjör­gögn áður en þeim er eytt, vegna full­yrð­inga umboðs­manns Sós­í­alista­flokks­ins um mis­mun­andi stærð kjör­seðla.
Þrír starfsmenn Hótels Borgarness tóku myndir í tómum talningasal
Fréttir

Þrír starfs­menn Hótels Borg­ar­ness tóku myndir í tómum taln­inga­sal

Starfs­menn Hótel Borg­ar­nes höfðu óheftan aðgang að óinn­sigl­uðum atkvæðum í auðum sal hót­els­ins meðan yfir­kjör­stjórn var ekki á staðnum eftir að fyrstu taln­ingu lauk. Lög­reglan getur ekki stað­fest hvort að starfs­menn­irnir hafi farið að svæð­inu sem kjör­gögnin voru geymd vegna þess að starfs­menn­irnir hverfa úr sjón­ar­sviði eft­ir­lits­mynda­véla. Þrír starfs­menn tóku myndir af salnum og þá atkvæðum.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár