Sigmundur Davíð: Besta aðgerðin í loftslagsmálum að Ísland losi sem mest

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, segir nýja skýrslu Milli­ríkja­nefndar Sam­ein­uðu þjóð­anna um lofts­lags­breyt­ingar skrif­aða af „aktí­vistum“. Stefna íslenskra stjórn­valda í lofts­lags­málum muni fela í sér mestu frels­is­skerð­ingu í ára­tugi og lífs­kjara­skerð­ingu.

Sigmundur Davíð: Besta aðgerðin í loftslagsmálum að Ísland losi sem mest
Segir þá sem benda á lofts­lags­vand­ann vera popúlista Sig­mundur Davíð segir að umhverf­is­mál séu fórn­ar­lamb þess sem hann kallar nýald­ar­stjórn­mál. Mynd: Pressphotos.biz - (Geirix)

Við blasir að stjórn­völd munu freista þess að færa aukin völd sín yfir dag­legum athöfnum og frelsi almenn­ings frá sótt­vörnum og að umhverf­is­málum á næst­unni. Það mun hafa í vör með sér að dregið verði úr lands­fram­leiðslu, skattar og gjöld verði hækkuð og ferða­frelsi heft. Þetta full­yrðir Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, og segir hann að allt ofan­talið muni valda því að lífs­kjör almenn­ings verði lak­ari.

Í grein í Morg­un­blað­inu skrifar Sig­mundur Davíð að hann geri ekki lítið úr mik­il­vægi umhverf­is­mála. Hins vegar séu umhverf­is­mál lík­lega stærsta fórn­ar­lamb hinna „stór­skað­legu nýald­ar­stjórn­mála“ þar sem allt snú­ist um umbúðir fremur en inni­hald. „Er skyn­sam­legt að nálg­ast þetta stóra við­fangs­efni út frá öfga­trú, spá heimsendi, ýta stöðugt undir ótta, ráð­ast af offorsi á gagn­rýnendur og varpa fram yfir­borðs­kenndum lausnum? Ég held ekki. Ég tel umhverf­is­mál mik­il­væg­ari en svo að það sé hægt að eft­ir­láta þau öfga­hyggju nýald­ar­stjórn­mál­anna,“ skrifar Sig­mundur Davíð.

„Ef íslensk stjórn­völd gera það á grund­velli lofts­lags­stefnu und­an­far­inna ára mun það fela í sér mestu frels­is­skerð­ingu um ára­tuga skeið“

Í grein­inni full­yrðir Sig­mundur Davíð að það sé gömul saga og ný að stjórn­völd reyn­ist treg til að gefa eftir völd sem þau hafi tekið sér og að í glímunni við Covid-19 kór­óna­veiruna hafi verið gengið á frelsi ein­stak­ling­anna með þeim rökum að um tíma­bundið ástand væri að ræða. Í ljósi reynsl­unnar blasi hins vegar við að stjórn­völd muni nú vilja nýta aukin völd sín í þeim til­gangi að bregð­ast við lofts­lags­vand­anum. „Ef íslensk stjórn­völd gera það á grund­velli lofts­lags­stefnu und­an­far­inna ára mun það fela í sér mestu frels­is­skerð­ingu um ára­tuga skeið, minnk­andi fram­leiðslu, lífs­kjara­skerð­ingu og skila nákvæm­lega engum árangri í lofts­lags­málum.“

Segir þá sem bendi á tengsl veðurfarshamfara við loftslagsbreytingar vera „popúlista“

Sig­mundur Davíð segir að ný skýrsla Milli­ríkja­nefndar Sam­ein­uðu þjóð­anna um lofts­lags­breyt­ingar (IPCC) sé skrifuð af „aktí­vistum sem berj­ast fyrir til­teknum við­brögðum“. Þá segir hann að skýrslan sé nú sett í sam­hengi við ham­farir tengdar veðri og hún notuð sem rök­stuðn­ingur fyrir heimsenda­spám þeim sem tengdar séu lofts­lags­breyt­ingum „sem nýald­ar­póli­tíkusar vilja nú gefa nýtt nafn að hætti Orwells og kalla „ham­fara­hlýnun,“ skrifar Sig­mundur Davíð og kallar þá sem benda á tengsl veð­ur­fars­ham­fara „popúlista“.

IPCC er, þrátt fyrir full­yrð­ingar Sig­mundar Davíðs, vís­inda­nefnd sem hefur það hlut­verk að taka saman vís­inda­legar, tækni­legar, félags- og efna­hags­legar upp­lýs­ingar um lofts­lags­breyt­ingar af manna­völdum, fjalla um vís­inda­lega þekk­ingu, afleið­ingar breyt­ing­anna og við­brögð til að sporna við þeim. Nefndin byggir sam­an­tektir sínar af greinum sem birtar hafa verið í rit­rýndum tíma­ritum. Hún er með öðrum orðum ekki hópur af „aktí­vistum.“

Forseti lofts­lags­þings Sam­ein­uðu þjóð­anna, Alok Sharma, sagði um liðna helgi að skýrsla IPCC væri alvar­leg­asta við­vörun sem alþjóða­sam­fé­lagið hefði fengið um lofts­lags­vand­ann. Í grein á vef Veð­ur­stofu Íslands eru helstu atriði skýrsl­unnar dregin saman og þar segir meðal ann­ars: „Nú er enn greini­legra en fyrr að athafnir mann­kyns eru meg­in­or­sök marg­vís­legra breyt­inga á lofts­lagi.“ Þá segir einnig að fyrir liggi ítar­leg gögn sem geri það að verkum að ýmsir aftaka­at­burðir verði algeng­ari og afdrifa­rík­ari, til að mynda meiri öfgar í hita­bylgjum og þurrkum. Verði ekki gripið til mik­ils sam­dráttar í losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda muni að með­al­tali hlýna meira en um 1,5 gráður á celsíus, og jafn­vel 2 gráður á celsíus, á öld­inni, meða kata­st­rófískum afleið­ingum.

Segir stefnuna muni skerða lífskjör

Í grein­inni víkur Sig­mundur Davíð svo að stefnu íslenskra stjórn­valda og gagn­rýnir að í lofts­lags­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar sé gert ráð fyrir að Ísland setji met í sam­drætti los­unar gróð­ur­húsa­loft­teg­unda, umfram umsamin mark­mið á alþjóða vett­vangi. Það sé gert þrátt fyrir að Íslend­ingar hafi minna svig­rúm til sam­dráttar en nokkuð annað land þar eð hær sé hæsta hlut­fall end­ur­nýj­an­legrar orku. Þeim mark­miðum verði ekki náð „nema með því að draga úr fram­leiðslu inn­an­lands, hækka skatta og gjöld á almenn­ing og leggja á nýja til að stýra neyslu­hegðun og hefta ferða­frelsi. Minnka land­búnað, draga úr fjölda ferða­manna og fækka ferðum Íslend­inga til útlanda. Minni fram­leiðslu og neyslu má svo aug­ljós­lega end­ur­orða sem lak­ari lífs­kjör.“

Land­vernd og Nátt­úru­vernd­ar­sam­tök Íslands gagn­rýndu upp­færða aðgerð­ar­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar í lofts­lags­málum hafð­lega í umsögnum sínum seint á síð­asta ári, meðal ann­ars sökum þess að kolefn­is­gjald væri of lágt og mark­mið í lofts­lags­málum væru ekki lög­bundin. Þá kom fram í skýrslu Umhverf­is­stofn­unar um losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda hér á landi fyrir árið 2019, sem skilað var í apríl á þessu ári, að þrátt fyrir að losun á gróð­ur­húsa­loft­teg­undum hefði dreg­ist saman um tvö pró­sent milli ára væri vantað veru­lega upp á að mark­mið Íslands með þátt­töku í Par­ís­ar­sam­komu­lag­inu næð­ust.

Vest­ur­lönd hafi, skrifar Sig­mundur Davíð, dregið úr eigin losun með því að færa fram­leiðslu til landa sem fram­leiði vörur með kola­bruna. Því sé raunin sú að best sé fyrir lofts­lags­mál heims­ins að sem mest sé fram­leitt á Íslandi. Ekki sé hægt að hverfa af braut fram­fara. Heim­ur­inn þurfi miklu meiri end­ur­nýj­an­lega orku og þar geti Ísland nýtt tæki­færi sín mun betur. „Það mun þýða að losun lands­ins auk­ist í stað þess að minnka en á heims­vísu mun það draga úr losun, reyn­ast það besta sem við getum gert í lofts­lags­málum og bæta lífs­kjör Íslend­inga.“

Þess ber að geta að 29. júlí síð­ast­lið­inn kláraði mann­kynið allar þær auð­lindir sem jörðin getur end­ur­nýjað á einu ári, sam­kvæmt grein­ingu Global Footprint Network. Síðstu fjórtán daga höfum við því verið að ganga á auð­lind­irnar og munum gera svo út árið, 1,75 sinnum hraðar en vist­kerfi jarðar geta end­ur­nýjað sig. Dagurinn bar upp á sama dag í ár og árin 2018 og 2019 og hefur aldrei verið fyrr á árinu. Á síð­asta ári bar dag­inn upp á 22. ágúst og þurfti að fara aftur til árs­ins 2005 til að finna dæmi þess að dag­ur­inn væri svo seint á árinu. Veru­legur við­snún­ingur hefur því orðið aftur, nú til hins verra, milli ára.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár