Lifir, hrærist og lærir í listinni

Ólöf Nordal var valin borg­ar­lista­maður Reykja­víkur og sýnir nú í Kompunni, Alþýðu­hús­inu á Siglu­firði.

Lifir, hrærist og lærir í listinni

Þegar Hill­billy bar að garði á vinnu­stofu Ólafar Nordal upp­lýsti hún hana um að hún væri að flytja sig um set. Það vantar greini­lega meira pláss. Á miðju gólfi stóð risaskúlp­túr. Skúlp­t­úr­inn var í vor afhjúp­aður í Mennta­skól­anum við Hamra­hlíð og sér til þess að nem­endur ofþorni ekki. Skúlp­t­úr­inn, sem nefn­ist Auga, er nefni­lega líka vatns­brunnur. „Já ég hef bara verið heppin og fengið verk­efni. Ég er ekk­ert alltaf með verk­efni en mér finnst mjög gaman að gera verk í almanna­rými, alveg rosa­lega gaman,“ segir Ólöf. Hill­billy er minn­is­stæður Geirfugl (1997) Ólafar, sem stendur stundum í fjör­unni og stundum í sjónum í Skerja­firði. Að eigin sögn er Ólöf mikið á vinnu­stof­unni, „en ekki alltaf“. Ólöf vinnur list­rann­sóknir í sinni praktík þvert á miðla, skúlp­túr, ljós­myndir, vídeó svo eitt­hvað sé nefnt ásamt því að vinna stundum með tón­listar- og leik­hús­fólki. Hún bjó lengi í Banda­ríkj­unum og það sést í verkum hennar …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hús & Hillbilly

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár