Orkusalan harmar að vera til umræðu en svarar engu

Fram­kvæmda­stjóri Orku­söl­unnar, Magnús Krist­jáns­son, svarar engum spurn­ingum um hvað stjórn­endur vissu um tengsl nýráð­ins fjár­mála­stjóra við Samherja og Namib­íu­málið. Til að mynda ekki því hvort stjórn­endur hafi vitað af því að namibíska lög­reglan hafi grunað fjár­mála­stjór­ann um lög­brot.

Orkusalan harmar að vera til umræðu en svarar engu
Tjáir sig ekki Magnús seg­ist ekki tjá sig um mál ein­stakra starfs­manna og því svari hann engum spurn­ingum um ráðn­ingu nýs fjár­mála­stjóra. Mynd: Orkusalan

„Orku­salan harmar mjög að félagið sé dregið inn í umræð­una með þessum hætti enda ekk­ert sem félagið hefur til saka unnið,“ segir Magnús Krist­jáns­son, fram­kvæmda­stjóri Orku­söl­unnar, í svari við spurn­ingum er varða ráðn­ing­ar­ferli nýs fjár­mála­stjóra, Elísa­betar Ýrar Sveins­dóttur.

NýráðinElísabet Ýr fór frá Samherja til Orku­söl­unnar nýlega. Tilkynnt var um ráðn­ing­una í byrjun þess­arar viku.

Hún er meðal þeirra sem namibíska lög­reglan bað Interpol um að hafa uppi á vegna rann­sóknar á mútu­greiðslum Samherja til namibískra áhrifa­manna.

Stundin beindi því til Magnúsar hvort stjórn­endur hefðu verið með­vit­aðir um aðkomu Elísa­betar Ýrar að milli­færslum frá Kýp­ur­fé­lögum Samherja til leyni­fé­lags James Hatuikulipi, stjórn­ar­for­manns namibísku rík­is­út­gerð­ar­innar Fishcor, í Dúbaí. James hefur setið í gæslu­varð­haldi síðan í lok árs 2019 vegna máls­ins. Magnús svar­aði engri af þeim spurn­ingum sem Stundin beindi til hans en sagði þess í stað að „[f]aglega var staðið að ráðn­ing­unni í sam­vinnu við ráðn­ing­ar­stofu okkar VinnVinn“. 

„Orku­salan harmar mjög að félagið sé dregið inn í umræð­una með þessum hætti enda ekk­ert sem félagið hefur til saka unnið“

Upp­lýs­ingar um áhuga namibískra lög­reglu­yf­ir­valda á Elísa­betu Ýr komu fram í skjölum sem lögð fyrir fyrir dóm­ara á síð­asta ári. Í beiðn­inni til Interpol sagð­ist lög­reglan gruna hana og níu aðra nafn­greinda starfs­menn Samherja um lög­brot. Hún er þó ekki meðal þeirra þriggja sem sak­sókn­ari í Namibíu hefur viljað ákæra í því máli sem nú er til með­ferðar fyrir dóm­stólum. Það er aftur á móti Ingvar Júl­í­us­son, en þau tvö sam­þykktu milli­færsl­urnar til Dúbaí-félags­ins Tunda­vala.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

Lögreglan á nýrri slóð: Fundu skilaboð Þorsteins
AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.
Lögmaður namibískra sjómanna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“
RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár