Ólíklegt að Marek geti greitt þolendum sínum bætur

Guðbrandur Jóhannesson, réttar­gæslumaður brotaþola brunans á Bræðra­borgar­stíg, segir ólíklegt að Marek Moszczynsk hafi tök á því að greiða brota­þolum þær bætur sem þeir fóru fram á. Ríkið mun hins vegar greiða hluta af bótunum sem Marek þarf svo að greiða ríkinu til baka.

Bruninn á Bræðraborgarstíg
Bruninn á Bræðra­borg­ar­stíg Mynd: Davíð Þór

Marek Moszczynski var í gær fundinn ósakhæfur og því sýknaður af refsikröfu í Héraðs­dómi Reykja­víkur, fyrir að hafa kveikt í byggingu á Bræðra­borgar­stíg og þar með orðið þremur að bana og ollið fleirum tjóni. 

Samkvæmt dómnum eru honum þó gert að greiða brota­þolum tæplega 30 milljónir króna í bætur fyrir brot sín þrátt fyrir að hann var metinn ósakhæfur. Dómurinn byggir bæturnar á grund­velli lagabálks úr Jónsbók frá árinu 1281. „Ef óðr maðr brýst ór böndum ok verðr hann manns bani, þá skal bæta af fé hans … ef til er … En ef óðr maðr særir mann, þá skal arfi uppi láta vera sárbætr ok læknisfé af fé hins óða,“ segir í Jónsbók.

Guðbrandur Jóhannesson, réttar­gæslumaður brotaþola, segir þetta vera sanngirnis­reglu sem kveði á um að þó svo að einstaklingur sé dæmdur ósakhæfur eigi þeir að bæta fyrir það tjón sem þeir hafa valdið.  

Ríkið …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Bræðraborgarstígur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár