Tannhjólin í áróðursvél Samherja

Þrír ein­stak­lingar gegna lyk­il­hlut­verki í þeirri áróð­urs­vél sem stjórn­endur útgerð­ar­innar Samherja ræstu eftir upp­ljóstr­anir um mútu­greiðslur til namibískra stjórn­mála­manna. Þetta eru Þorbjörn Þórð­ar­son almanna­teng­ill, Arna Bryndís McClure Bald­vins­dóttir lög­maður og Páll Stein­gríms­son skip­stjóri. Sá síð­ast­nefndi hefur látið birta í sínu nafni fjölda greina sem Þorbjörn og Arna hafa ýmist skrifað eða rit­stýrt. Öll eru þau í beinu sam­bandi við Þorstein Má Bald­vins­son, for­stjóra Samherja, Björgólf Jóhanns­son, sem tíma­bundið var for­stjóri útgerð­ar­innar, og Jón Óttar Ólafsson, rann­sak­anda fyr­ir­tæk­is­ins.

Frá því að Sam­herj­a­skjölin voru afhjúpuð í Kveik, Stund­inni og Al Jazeera í sam­starfi við Wikileaks, hafa við­brögð Samherja einna helst snúið að því að gera frétta­menn og þá miðla sem fjöll­uðu um málið tor­tryggi­lega. Liður í því hafa verið greina­skrif skip­stjór­ans sem um ára­bil hefur starfað hjá Samherja eða dótt­ur­fé­lögum. Til­gangur greina­skrif­anna hefur einna helst verið að ráð­ast á blaða­mann­inn Helga Seljan og trú­verð­ug­leika hans. Hann var lyk­il­maður í afhjúpun Sam­herj­a­skjal­anna sem frétta­maður Kveiks og einn höf­unda bók­ar­innar Ekkert að fela: Á slóð Samherja í Afríku, sem fjallar um málið. 

Sam­skipti sem Stundin hefur séð sýna hvernig Þorbjörn og Arna ýmist skrifa eða í raun hand­stýra þessum skip­stjóra, Páli Stein­gríms­syni, í skrifum sínum til varnar Samherja. Hann bauð fram aðstoð sína í þessum til­gangi strax 20. nóv­em­ber árið 2019, átta dögum eftir birt­ingu Sam­herj­a­skjal­anna. Boð sem Margrét Ólafs­dóttir, aðstoð­ar­maður Þor­steins Más Bald­urs­sonar, for­stjóra útgerð­ar­ris­ans, segir í tölvu­pósti til Þor­björns að sé „ef við þurfum nafn á ein­hver skrif“. Þorbjörn svarar um hæl með orð­unum: „Frábært að vita af þessu. Ég vista núm­erið hans og net­fang. Mér finnst mjög lík­legt að þetta nýt­ist.“ 

Og það varð raunin.

Hjálpast að við að fela slóðina

Fjölmörg tölvu­skeyti fara á milli Þor­björns og Páls þar sem Þorbjörn ýmist skrifar heilu grein­arnar eða rit­stýrir þeim. Páll býður honum til að mynda að „mat­reiða“ greinar eins og honum „best þyki“; greinar sem eru síðar birtar í nafni skip­stjór­ans. Það boð þiggur Þorbjörn. Ein þessa greina, Saklaus uns sekt er sönnuð, tekur til að mynda svo stór­kost­legum breyt­ingum í með­förum hans að í rúm­lega 900 orða grein eru aðeins 88 komin frá Páli. Öll hin skrifar Þorbjörn. Það er líka raunin með grein­arnar Rit­sóð­inn Helgi Seljan númer I og II. Þær fær Páll sendar frá Þorbirni full­búnar, þótt hann fái tæki­færi til að hafa skoðun á grein­unum sem birtar eru í hans nafni. 

„Hvernig fannst þér síð­asti kafl­inn um skrif á sam­fé­lags­miðlum almennt? Kannski full dramat­ískur? Svo erum við þarna aðeins að velta fyrir okkur and­legri líðan Seljan. Það verður áhuga­vert að sjá við­brögðin við því,“ skrifar Þorbjörn. Í þessum síð­asta kafla er gengið langt í að ýja að því að geð­heil­brigði Helga sé ábóta­vant og að hann glími við van­líðan og mikla þörf fyrir við­ur­kenn­ingu. Í grein­inni segir meðal ann­ars að það sé „kannski verk­efni fyrir aðra en skip­stjóra sem hefur ekki sér­þekk­ingu á geð­heil­brigði“ að velta fyrir sér lund­ar­fari og and­legri líðan Helga. Þetta þykir Páli  ekki of langt gengið, eða eins og hann segir í skila­boðum til Þor­björns: „Nei, við skulum alls ekki sleppa drama­tík­inni, er svo í anda Helga Seljan finnst mér.“

Upp hafa þó komið skipti þar sem ekki ríkir ein­hugur eða sátt um greinar. Páll ber á end­anum ábyrgð á að senda greinar til birt­ingar og hefur því ákvörð­un­ar­rétt hvort nafn hans sé notað. Það er ljóst af sam­skipt­unum að hann á hins vegar ekki að senda neitt nema með sam­þykki Samherja. „Kíktu á þetta en ekki senda neitt inn til birt­ingar fyrr en þú færð grænt ljós frá mér. Ég á eftir að láta menn­ina lesa þetta yfir,“ skrifar Þorbjörn til að mynda um áður­nefnda grein, Rit­sóð­inn Helgi Seljan. Ekki fylgir hverjir „menn­irnir“ eru. En þeir virð­ast mik­il­vægir, því á öðrum stað segir Þorbjörn að þeir hafi gefið „grænt ljós“ á að áfram verði birtar greinar í nafni Páls. Eitthvað sem skip­stjór­inn er sáttur við; enda seg­ist hann vera „bara eitt tann­hjól í góðri vél“.

Í þessum sam­skiptum Þor­björns leið­beinir hann líka Páli hvernig hann þurfi að vista text­ann sem hann sendi í nýju skjali áður en greinin er send til birt­ingar á frétta­vefnum Vísi. Það er gert til að fela skrán­ing­ar­upp­lýs­ingar, svo­kall­aðar meta­data upp­lýs­ingar, sem finna má í skjölum sem geta vísað á raun­veru­lega höf­unda þess; sem í til­felli greina Páls er Þorbjörn sjálfur. Því næst útskýrir Þorbjörn nákvæm­lega hvernig Páll á að bera sig að til að fá grein­ina birta, við hverja eigi að tala innan frétta­stofu Sýnar og að óska þurfi eftir að starfs­tit­ill hans komi fram: Höfundur er skip­stjóri hjá Samherja hf.

Í fjöl­mörgum til­vikum sendir Þorbjörn svo Páli athuga­semdir til birt­ingar við stöðu­upp­færslur á Facebook. Svör til Kristins Hrafns­sonar, rit­stjóra Wikileaks, til Björns Leví Gunn­ars­sonar, þing­manns Pírata, til Helgu Völu Helga­dóttur, þing­konu Sam­fylk­ingar, og Svavars Hall­dórs­sonar, eig­in­manns Þóru Arn­órs­dóttur, rit­stjóra Kveiks. Gert til að svörin og athuga­semd­irnar hafi ásýnd þess að koma frá öðrum en Samherja. 

Þorbjörn sendir svo Páli færslu til að setja inn á Facebook-hóp­inn Fjöl­miðlanörda til að kynna fyrsta mynd­bandið sem Samherji fram­leiddi og aug­lýsti á Youtube. Myndband sem hafði þann eina til­gang að ráð­ast að trú­verð­ug­leika Helga Seljan með ásök­unum um að hann hefði ýmist falsað eða átt við skýrslu sem átti að hafa verið grunn­ur­inn að rann­sókn gjald­eyr­is­eft­ir­lits Seðla­bank­ans á hendur Samherja. Mál sem vísað var frá dómi sökum form­galla á heim­ildum bank­ans. 

Leið­tog­innÞor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, er í beinu sam­bandi við þá sem leika lyk­il­hlut­verk í áróðri Samherja.

Kalla sig skæruliða

Þessi óform­legi hópur sem virð­ist pott­ur­inn og pannan í málsvörn Samherja kallar sig svo skæru­liða­deild­ina. Í sam­skiptum þeirra á milli er ítrekað vísað til þessa nafns. „Skæru­liða­deildin er alltaf á vakt­inni 😉“ segir í einum þess­ara skila­boða. Aðrir sam­fé­lags­miðla­not­endur sem hafa talað máli Samherja eru svo sagðir til­heyra „skugga­deild­inni“ og að þeir fái reglu­lega upp­lýs­ingar frá Páli til að nýta. Upp­lýs­ingar sem virð­ast gjarnan eiga upp­runa sinn hjá Örnu, Þorbirni eða öðrum starfs­mönnum Samherja. 

Orðfærið sem notað er í sam­tölum innan hóps­ins er líka í anda skæru­hern­aðar. Ítrekað er talað um að stinga og sparka í fólk. Að stinga Jóhannes eða blaða­menn. 

„Vona að Óskar, Bubbi og Þorbjörn standi við það sem þeir hafa sagt við þig, að gefa ekki eftir. Við erum búin að stinga. Nú þarf að snúa og svo salta í sárið,“ skrifar Arna í skila­boðum. „Ef þið Þorbjörn eruð að spá í að stinga Jóhannes þá er hug­mynd hér,“ segir hún í öðrum. Páll notar sama orð­færi líka. „Við verðum alla­vega klár og munum nota hvert tæki­færi til að stinga svo mikið er víst 😇😇“ skrifar hann til Örnu, sem og eftir sam­tal við Björgólf Jóhanns­son, þáver­andi for­stjóra Samherja: „Komdu með þína hug­mynd, var að leggja á Bubba og hann vill stungu.“

Skæru­hern­að­ur­inn virð­ist auk Jóhann­esar Stef­áns­sonar, upp­ljóstr­ara í Sam­herj­a­mál­inu, helst bein­ast gegn blaða­mönnum. Sam­skiptin sýna til að mynda hvernig Þorbjörn og Arna reyndu að sverta orð­spor tveggja fær­eyskra blaða­manna á Kringvarp­inu eftir að heim­ild­ar­mynd þeirra, Hinir óseðj­andi, birt­ist. Það eru þau Jan Lamhauge og Barbara Hólm. 

Myndin, sem unnin var í sam­starfi við frétta­menn Kveiks, afhjúpaði hvernig Samherji hafði mis­notað heim­ild í fær­eyskum lögum til að fá skatta sjó­manna sinna end­ur­greidda. Það gerðu þeir með því að skrá íslenska starfs­menn á verk­smiðju­tog­urum undan Afr­íku­ströndum sem far­menn á frakt­skipum. Ólíkt öðrum upp­ljóstr­unum í tengslum við starf­semi Samherja og hugs­an­leg lög­brot brást Samherji ekki við með til­kynn­ingu á vef­síðu sinni heldur end­ur­greiddi dótt­ur­fé­lag Samherja – Fram­herji – fær­eyska skatt­inum 17 millj­ónir danskra króna, jafn­virði um 350 millj­ónir íslenskra króna. Færeyski skatt­ur­inn hefur kært málið til lög­regl­unnar. 

Leggur línurnar

Sam­an­tektir sem súmmera upp hvaða sjón­ar­horni Samherji vill varpa á þau mál sem afhjúpuð hafa verið und­an­farið eitt og hálft ár eru svo skrif­aðar og sendar völdum ein­stak­lingum innan Samherja. Óljóst er í hvaða til­gangi nákvæm­lega það er gert. Í skrán­ing­ar­upp­lýs­ingum skjala sem Stundin hefur skoðað kemur fram að Arna – eða í það minnsta tölvan hennar – sé höf­undur þeirra. Þessar sam­an­tektir hafa svo end­u­r­ómað í skrifum sem birt hafa verið í nafni ann­arra ein­stak­linga, þá sér í lagi skip­stjór­ans Páls. 

Þó ekki ein­göngu.

Stundin hefur séð sam­skipti Örnu og Þor­björns við Eyþór Eðvarðs­son, sem skrif­aði grein­ina Kynni mín af ís­lenskri út­gerð í Namibíu til varnar Samherja. „Hér er komið upp­kast að grein­inni, hún er ekki í tracking, en þín input eru þarna nán­ast óskert utan þess hluta þar sem mér fannst ég vera að tala sem einn Sam­herj­a­manna. Með fullri virð­ingu fyrir þeim, þá var þetta ekki hugsað þannig,“ skrifar Eyþór til Þor­björns. Greinin er einnig send Örnu til yfir­lestrar. 

Arna á líka í sam­skiptum við Jónas Sig­ur­geirs­son, sem gaf út bók­ina Gjald­eyr­is­eft­ir­litið – vald án eft­ir­lits?, þar sem fjallað var með nei­kvæðum og gagn­rýnum hætti um rann­sókn Seðla­bank­ans á Samherja. Sam­skiptin við Jónas eru vegna greinar til varnar útgerð­inni sem virð­ist óbirt, í það minnsta opin­ber­lega. 

Arna hefur á síð­ustu árum verið lyk­il­starfs­maður útgerð­ar­innar en hún er inn­an­hússlög­maður Samherja. Upp­haf­lega kom hún til starfa hjá útgerð­ar­ris­anum í kjöl­far þess að Seðla­banki Íslands hóf rann­sókn á fyr­ir­tæk­inu fyrir grun um brot á gjald­eyr­is­lögum. Auk þess er hún ræð­is­maður Kýpur á Íslandi en á Mið­jarð­ar­hafs­eyj­unni hefur Samherji notað sem mið­stöð fjár­mála­starf­semi sinnar. Arna hefur verið full­trúi útgerð­ar­innar víðs vegar um heim, svo sem í Namibíu þar sem hún sat meðal ann­ars í stjórn Arcticnam Fishing, félags sem Samherji átti til móts við namibíska kvóta­leyf­is­hafa. Þeir hafa lýst yfir og látið rann­saka sér­stak­lega brot Samherja í þeirra garð. Nafn Örnu er meðal þeirra sex sem greint hefur verið frá frá að hafi rétt­ar­stöðu grun­aðra í rann­sókn hér­aðs­sak­sókn­ara á Sam­herj­a­mál­inu. 

Hún er nú hætt störfum, sam­kvæmt þeim gögnum sem Stundin hefur séð.

Úr fréttum á „fréttastofu“ Samherja

Þorbjörn var ráð­inn til starfa sem utan­að­kom­andi ráð­gjafi eftir að Sam­herj­a­skjölin voru afhjúpuð. Ekki liggur fyrir hvort hann hafi verið kom­inn til starfa fyrir eða eftir birt­ingu Kveiks­þátt­ar­ins en hann hefur leikið lyk­il­hlut­verk í árásum Samherja á blaða­menn. Eftir að hafa hætt í fjöl­miðlum setti hann á fót lög­manns­stof­una LPR, sem stendur fyrir Legal and PR, eða lög­fræði og almanna­tengsl, í sam­vinnu við Halldór Reyni Hall­dórs­son. Það er á þeim vett­vangi sem hann ræður sig til starfa í þjón­ustu Samherja. 

Til við­bótar við að vera höf­undur eða rit­stjóri margra greina sem birtar hafa verið í ann­arra nafni hefur hann tekið þátt í að búa til áróð­urs­mynd­bönd sem útgerðin hefur látið fram­leiða og birt í formi aug­lýs­inga á YouTube. Meðal ann­ars hafði hann milli­göngu um að afla myndefnis sem keypt var af RÚV til nýt­ingar í þessum mynd­böndum. Sjálfur er hann fyrr­ver­andi frétta­maður og starf­aði um ára­bil á Morg­un­blað­inu og frétta­stofu Stöðvar 2 og Bylgj­unnar. Þorbjörn var svo einn þeirra sem sá um að kemba sam­fé­lags­miðla­síður starfs­manna RÚV áður en þeir voru kærðir til siða­nefndar fjöl­mið­ils­ins. Málið end­aði með því að öllum ummælum var vísað frá eða sýknað í nema þremur ummælum Helga sem þóttu bera vott um hæðni í garð for­svars­manna Samherja. 

Nið­ur­staðan varð efni enn eins mynd­bands­ins sem Samherji lét fram­leiða og aug­lýsti á YouTube og vef Morg­un­blaðs­ins. 

Leita víða fanga

Sam­herjar virð­ast hafa vaktað fleiri ein­stak­linga en þá frétta­menn sem kærðir voru til siða­nefndar RÚV. Kjarninn greindi á síð­asta ári frá umsátri Jóns Óttars Ólafs­sonar, fyrr­ver­andi rann­sókn­ar­lög­reglu­manns, sem starfar fyrir Samherja í dag. Gögn sem Stundin hefur séð sýna hins vegar líka að aðrir hafi verið í sigti Samherja; svo sem rit­höf­und­ur­inn Hall­grímur Helgason. 

Í tölvu­póst­sam­skiptum Þor­björns við Pál koma fram hug­myndir þess síð­ar­nefnda að svara grein Hall­gríms, Skilið þýf­inu, sem fjallar um Samherja, með því að spyrja hvort hann hafi „farið í neðstu skúff­una og fundið sam­visk­una sína eins og Jóhannes, og ætli að skila öllum lista­manna­laun­unum sem hann hefur þegið í gegnum árin, fengið sam­visku­bit eftir að hafa bónað Tesluna sína og hlustað á fréttir af raf­magns­leys­inu á lands­byggð­inni um leið, batn­andi mönnum er best að lifa.“ Hann ætti hins vegar eftir að fá „stað­fest að Hall­grímur eigi tesl­una en ekki nágranni hans, er að bíða eftir svari um það“. Það sagð­ist Þorbjörn geta gert, ver­andi með aðgang að fast­eigna- og bif­reiða­skrá. Eitthvað sem Páli þótti ánægju­legt og tveggja broskalla virði: „Glæsi­legt :D þú ert rétti mað­ur­inn fyrir okkur hjá Samherja :D“ 

Nið­ur­staðan var að Hall­grímur átti ekki Tesluna, heldur nágrann­inn, og ekk­ert varð af grein­inni.

Í beinu sambandi

Allt virð­ist gert með vilja og vit­und Þor­steins Más Bald­vins­sonar for­stjóra og Björg­ólfs Jóhanns­sonar sem leysti hann af tíma­bundið. Talað er um að „menn­irnir“ þurfi að gefa grænt ljós og eru fjöl­mörg dæmi um að greinar og athuga­semdir hafi verið sendar þeim til yfir­lestrar fyrir birt­ingu. Í sam­skiptum á milli þess­ara ein­stak­linga kemur fram að Þor­steinn og Björgólfur séu ánægðir með hóp­inn og það sem þau gera. Sjálfur er Þor­steinn í beinum sam­skiptum við þennan hóp. Vísað er til sím­tala, sam­tala og funda með Þor­steini og ánægju hans með það sem fram fer. Hann hefur þó líka sett fót­inn niður. Þannig lýsir Arna því að hún sé að skrifa sam­an­tekt sem hún viti ekki hvernig Þor­steinn muni bregð­ast við. 

Páll seg­ist halda Þor­steini upp­lýstum. „En ég átti smá spjall við þmb í gær­kvöldi,“ skrifar hann og heldur áfram: „Eins ræddum við að ég myndi halda áfram að setja fram þessa pósta af Wikileaks sem við höfum verið að setja fram, ég sagð­ist bara vera upp­tekin í vinn­unni og þá hló hann bara, svo það liggur vel á honum,“ skrifar hann til Örnu.

Margrét Ólafs­dóttir, aðstoð­ar­kona Þor­steins Más, heldur svo efni að Páli, svo sem myndum af Þor­steini Má að sleppa endum með orð­unum „hann passar alltaf að skyrpa á kað­al­inn.“ Þetta eru myndir sem síðan rata á Facebook-síðu Páls þar sem for­stjór­inn er teikn­aður upp sem mik­ill dugn­að­ar­forkur. 

Kraft­legar myndirAðstoð­ar­kona for­stjóra Samherja, Margrét Ólafs­dóttir, sendi Páli myndir af Þor­steini Má í jákvæðum aðstæðum, sem hann síðan birti á Facebook.

Björgólfur er líka í beinum sam­skiptum við Pál og hvetur hann áfram. „Neglum þá,“ skrifar hann til Páls og á við þá sem gagn­rýna fyr­ir­tækið og flytja af því fréttir. 

Það er þó ekki full­komin sátt um málsvörn­ina innan Samherja. Sumir vilja ganga lengra en þeir sem taka loka­á­kvörðun um hvað er gert. Óskar Magn­ús­son, stjórn­ar­maður í Samherja, á ekki upp á pall­borðið hjá Örnu. „Stra­teg­ian hans Óskars sökkar big time,“ segir hún og vísar til þess að engin við­brögð hafi verið til­búin vegna kröfu namibískra stjórn­valda um kyrr­setn­ingu eigna fyr­ir­tæk­is­ins í Afríku. Þá virð­ist Björgólfur hafa stöðvað birt­ingu fleiri Sam­herj­a­mynd­banda á YouTube, eitt­hvað sem Örnu og fleirum sveið. 

Takk fyrir

Hópurinn sem er í sam­bandi við „skæru­liða­deild­ina“ er Þor­steinn Már, Óskar Magn­ús­son, stjórn­ar­maður í Samherja, Björgólfur Jóhanns­son, tíma­bund­inn for­stjóri Samherja, Valur Ásmunds­son, sölu- og mark­aðs­stjóri Icefresh, sölu­fé­lags Samherja, Baldvin Þor­steins­son, erf­ingi Sam­herj­a­veld­is­ins, móðir Þor­steins og Helga Steinunn Guð­munds­dóttir, fyrr­ver­andi eig­in­kona Þor­steins og áður einn aðal­eig­andi fyr­ir­tæk­is­ins. „Ja og Jóni Óttari, má ekki gleyma honum,“ skrifar Páll þegar hann ræðir við Örnu um þá sem hafa verið í sam­bandi við sig vegna greina­skrif­anna. Hann tekur sér­stak­lega fram að Valur, Baldvin, Helga Steinunn og móðir Þor­steins biðji ekki um neitt og að bæði Arna og Þor­steinn „gædi“ sér að fólki til að tala við en „segið ekki meira en nauð­syn­legt er“. Aðrir lýsa ánægju sinni fremur en að stýra og leið­beina. Því stuðn­ing­ur­inn virð­ist Sam­herjum kær­kom­inn. Í það minnsta var skálað fyrir Páli í ára­móta­boðum Sam­herj­a­manna og skila­boð send til hans: „Takk fyrir ómet­an­legan stuðn­ing í ár“.

Stundin leit­aði við­bragða Páls, Örnu, Þor­björns, Þor­steins Más, Björg­ólfs, Eyþórs og Jónasar. Páll vildi ekki láta hafa neitt eftir sér og Eyþór sagð­ist upp­tek­inn en sagð­ist ótengdur Samherja. Aðrir höfðu ekki svarað erindum blaðs­ins fyrir prentun. Berist svör síðar verður þeim gerð skil í vef­út­gáfu. 

Fyr­ir­vari: Höfundur þess­arar greinar er einn blaða­mann­anna sem afhjúpaði Sam­herj­a­skjölin og hefur verið til umfjöll­unar í áróð­urs­mynd­böndum og -skrifum þre­menn­ing­anna, auk ann­arra blaða­manna Stund­ar­innar. 

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

„Skæruliðar“ Samherja

„Þetta eru glæpamenn og hegða sér eftir því“
ViðtalSamherjaskjölin

„Þetta eru glæpa­menn og hegða sér eftir því“

Jóhannes Stef­áns­son, upp­ljóstr­ari í Sam­herj­a­mál­inu, er sáttur við gang rann­sókn­ar­innar hér á landi og segir að fátt geti komið í veg fyrir að málið endi með dómi. Hann gagn­rýnir þó aðgerð­ar­leysi yfir­valda við því þegar Sam­herj­a­menn hafa áreitt, njósnað um eða reynt að hræða hann frá því að bera vitni. Fátt í við­brögðum Sam­herj­a­fólks hafi þó komið honum á óvart, enda fái þau að ganga mun lengra en öðrum lið­ist.
Þorsteinn svarar engu um dylgjur í afsökunarbeiðni
Fréttir

Þor­steinn svarar engu um dylgjur í afsök­un­ar­beiðni

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, seg­ist ekki ætla að svara um efni afsök­un­ar­beiðni sem fyr­ir­tæki hans birti óund­ir­rit­aða á vef­síðu sinni um helg­ina. Stundin beindi til hans sömu spurn­ingu og lög­maður fyr­ir­tæk­is­ins hafði krafið Lilju Dögg Alfreðs­dóttur mennta­mála­ráð­herra svara um nokkrum vikum fyrr. Í afsök­un­ar­beiðn­inni er full­yrt að umfjöllun hafi verið „ein­hliða, ósann­gjörn og ekki alltaf byggð á stað­reyndum“.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár