Uppgjör umboðsmanns: Vildi alltaf verða málsvari litla mannsins

Uppgjör umboðsmanns: Vildi alltaf verða málsvari litla mannsins

Tryggvi Gunn­ars­son er hættur sem umboðs­maður Alþingis eftir að hafa verið við­loð­andi emb­ættið í 33 ár. Hann vildi ungur verða „málsvari litla manns­ins“ og hefur þess utan starfað við að veita vald­höfum aðhald. Hann tók á skip­unum dóm­ara, Lands­rétt­ar­mál­inu og leka­mál­inu og þurfti ítrekað að verj­ast ágangi valda­mesta fólks lands­ins. Eitt skiptið hringdi for­sæt­is­ráð­herr­ann í hann með slíkum yfir­gangi að breyta þurfti reglum um sam­skipti ráða­manna við umboðs­mann. „Í mínu starfi hef ég fengið fjölda ábend­inga vegna svona sím­tala,“ segir hann.

Á móti mér situr Tryggvi Gunn­ars­son, umboðs­maður Alþingis til tutt­ugu og þriggja ára. Það er þögn og við mælum hvort annað út, ég, blaða­mað­ur­inn með tveggja ára reynslu í starfi og umboðs­mað­ur­inn sem hefur allt í allt þrjá­tíu og þriggja ára reynslu af emb­ætt­inu og þar að auki er ald­urs­mun­ur­inn á milli okkar um þrjá­tíu og sex ár. 

Hann er klæddur í hvers­dags­lega skyrtu, galla­buxur og prima­loft úlpu. Hann tjáir mér að hann sé vana­lega ekki klæddur á þennan hátt. Ég hafði einmitt hugsað mér Tryggva sem mann sem myndi mæta í við­tal í jakka­fötum og með bindi. „Ég er vana­lega í gúmmí­stíg­vélum,“ segir hann og gerir mér þar með ljóst að hann er ekki allur þar sem hann er séður hann Tryggvi Gunn­ars­son, umboðs­mað­ur­inn sem má gjarnan finna á traktor á sveitabæ sínum, Syðri-Rauðalæk í Rangár­þingi ytra, eða úti í hest­húsi að fara yfir lög­fræði við hrossin og …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár