Skráðu eign í Icelandair ekki í hagsmunaskrá

Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðis­flokks, og Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, skráðu hvorugt hlutabréf sín í hagsmuna­skráningu alþingis­manna eins og reglur kveða á um. Um yfirsjón var að ræða, segja þau bæði.

Jón Gunnarsson og Inga Sæland
Jón Gunn­ars­son og Inga Sæland Þing­menn­irnir hafa ekki skráð eign sína í Icelandair í hags­muna­skrá, en þrír aðrir þing­menn eru einnig hlut­hafar.

Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðis­flokks, og Inga Sæland, þingmaður og formaður Flokks fólksins, eiga bæði hluti í Icelandair Group hf. sem þau hafa ekki skráð í hagsmuna­skrá alþingis­manna eins og reglur segja til um. Markmið reglnanna er að upplýsa kjósendur um fjárhags­lega hagsmuni þingmanna.

Jón á 1.252.257 hluti í Icelandair samkvæmt hluthafalista félagsins sem birtur var með samstæðu­reikningi Icelandair. Í lok árs 2020 var markaðs­virði þeirra 2.053.701 kr. og bar Jóni að skrá eignina í hagsmuna­skrá þingmanna. Jón situr í umhverfis- og samgöngu­nefnd, en í henni eru málefni sem varða Icelandair og flug­rekstur á Íslandi reglulega til umræðu.

Inga átti í lok árs 769.231 hlut í Icelandair, sem voru virði 1.261.539 króna á þeim tíma­punkti. Situr hún einnig í umhverfis- og samgöngu­nefnd sem áheyrnar­fulltrúi.

Reglur um skráningu á fjárhags­legum hagsmunum alþingis­manna og trúnaðar­störfum utan þings tóku gildi 2019, en samkvæmt þeim ber þing­mönnum að skrá eign sína í …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár