Samherji skipti um endurskoðanda: „KPMG hefur ekkert umburðarlyndi gagnvart mútum“

Í verk­lags­reglum KPMG er tekin skýr afstaða gegn mútu­greiðslum. Hvorki end­ur­skoð­enda­fyr­ir­tækið né Samherji hafa svarað því af hverju útgerðin hætti að skipta við KPMG fyrr á þessu ári.

Samherji skipti um endurskoðanda: „KPMG hefur ekkert umburðarlyndi gagnvart mútum“
13 með stöðu sak­born­inga 13 ein­stak­lingar eru með stöðu sak­born­inga í rann­sóknum yfir­valda í Namibíu og á Íslandi á Sam­herj­a­mál­inu. Tamson Hatuikulipi og Bernhard Esau sjást hér í dóm­sal í Namibíu fyrr á árinu.

End­ur­skoð­anda­fyr­ir­tækið KPMG vinnur sam­kvæmt verk­ferlum sem fela það í sér að félagið líður ekki mútu­greiðslur og spill­ingu í neinni mynd. Um þetta er fjallað í gagn­sæ­is­skýrslum sem KPMG vinnur eftir á Íslandi og alþjóð­lega. 

Fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins, Jón S. Helgason, neitar að svara spurn­ingum um hvernig það atvik­að­ist að KPMG hætti að vera end­ur­skoð­andi félags­ins Samherja Holding ehf, sem heldur utan um erlenda starf­semi Samherja til að mynda í Namibíu, en vísar í umrædda gagn­sæ­is­skýrslu þar sem verk­ferlum KPMG er lýst.  „Fyrir liggur að KPMG var um margra ára skeið end­ur­skoð­andi Samherja. Áður hefur einnig komið fram að KPMG er bundið trún­aði um mál­efni við­skipta­vina sinna,“ segir Jón í svari til Stund­ar­innar um af hverju við­skipta­sam­bandi KPMG og Samherja er lokið. Jón bætir við: „Upp­lýs­ingar um þá ferla sem KPMG starfar eftir má meðal ann­ars finna í gagn­sæ­is­skýrslu KPMG. KPMG fylgir ákvæðum alþjóð­legra end­ur­skoð­un­ar­staðla (ISA) og stað­als um gæði í end­ur­skoðun (ISQC1) um reglu­legt mat á við­skipta­sam­böndum.“

Jón hefur áður sagt við Stundina að Samherji hafi ákveðið að finna sér annan end­ur­skoð­anda en KPMG.  End­ur­skoð­and­inn sem varð fyrir val­inu er lítt þekkt fyr­ir­tæki í Skútu­vogi, BDO ehf.

Ekkert umburðarlyndi gagnvart spillingu

Jón vísar ekki til neinna atriða eða orða í umræddri gagn­sæ­is­skýrslu en meðal þess sem fram kemur í þess­ari skýrslu árið 2018 eru eft­ir­far­andi orð. „Tekið er sér­stak­lega fram að KPMG hefur ekk­ert umburð­ar­lyndi gagn­vart mútum og spill­ingu. Við bönnum þátt­töku í hvaða teg­und af mútum sem er, jafn­vel þó slíkt væri að ein­hverju leyti lög­legt sam­kvæmt lands­lögum. Við höfum heldur ekki neitt umburð­ar­lyndi hvað varðar mútur af hálfu þriðja aðila, þar á meðal við­skipta­vina okkar, birgja eða opin­berra aðila.“

„Við höfum heldur ekki neitt umburð­ar­lyndi hvað varðar mútur af hálfu þriðja aðila“ 

Áhuga­vert er það sem þarna segir um að KPMG taki ekk­ert til­lit til stað­bund­inna laga eða hátta sem kunni að heim­ila spill­ingu. Með þessu er átt við að engu skipti þó að mútu­greiðslur séu kannski að ein­hverju leyti hluti af menn­ingu við­kom­andi ríkja eða landa; KPMG vilji ekki undir nokkrum kring­um­stæðum bendla sig við slíkt. 

Nýjar upplýsingar geta leitt til „slita viðskiptasambands“

Sam­herj­a­málið í Namibíu er nú til rann­sóknar þar í landi og á Íslandi og eru 13 ein­stak­lingar með rétt­ar­stöðu sak­born­inga í lönd­unum tveimur, sjö í Namibíu og sex á Íslandi.

Namib­íu­menn­irnir sjö sitja í gæslu­varð­haldi grun­aðir um mútu­þægni og aðkomu að pen­inga­þvætti; Íslend­ing­anir, núver­andi og fyrr­ver­andi starfs­menn Samherja, eru grun­aðir um aðkomu að því að hafa greitt mútur til Namib­íu­mann­anna. 

Aftur skal und­ir­strikað að Jón hjá KPMG vísar ekki til neinna sér­stakra orða í skýrsl­unni sem hann vísar til og því er ekki hægt að full­yrða að KPMG hafi, með einum eða öðrum hætti, sett Samherja stól­inn fyrir dyrnar á grund­velli þess að fyr­ir­tækið hafi greitt mútur í Namibíu.

Umrædd orð er hins vegar að finna í verk­lags­reglum KPMG og Sam­herj­a­fé­lagið hafði verið við­skipta­vinur KPMG í þrettán ár áður en við­skipta­sam­band­inu lauk nú í sept­em­ber eftir að sagt hafði verið frá Sam­herj­a­mál­inu í Kveik, Stund­inni og Al Jazeera í sam­vinnu við Wikileaks í nóv­em­ber í fyrra. 

Þá segir enn fremur í skýrsl­unni undir liðnum „slit við­skipta­sam­bands“ að nýjar upp­lýs­ingar sem KPMG berst geti leitt til þess að KPMG segi upp sam­bandi við við­skipta­vin: „Ef við fáum upp­lýs­ingar sem gefa til kynna að við ættum að segja okkur frá verk­efni eða sam­bandi við við­skipta­vin höfum við um það sam­ráð inn­an­húss og greinum mögu­leg skref sem taka þarf sam­kvæmt lögum eða reglu­gerðum. Við höfum einnig sam­ráð eftir því sem við á við stjórn­endur við­skipta­vin­ar­ins og önnur við­eig­andi yfir­völd.“

Fyrir liggur að KPMG var end­ur­skoð­andi Samherja á því tíma­bili sem þær gjörðir sem nú eru til rann­sóknar í Namibíu og á Íslandi áttu sér stað og vann KPMG meðal ann­ars fyrir Samherja í Namibíu. Af hverju KPMG er ekki lengur end­ur­skoð­andi Samherja liggur hins vegar ekki fylli­lega fyrir. 

Stundin hefur sent Björgólfi Jóhanns­syni, öðrum for­stjóra Samherja, ítrek­aðar beiðnir um að svara því af hverju Samherji Holding skipti um end­ur­skoð­anda. Þessu hefur ekki verið svarað enn. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

Lögreglan á nýrri slóð: Fundu skilaboð Þorsteins
AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.
Lögmaður namibískra sjómanna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“
RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár