Sjálfstæðisflokkurinn missir fylgi

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist stærsti flokkur lands­ins en fylgi við flokk­inn hefur þó dalað um tæp fjögur pró­sentu­stig milli mán­aða. Helm­ingur lands­manna styður rík­is­stjórn­ina.

Sjálfstæðisflokkurinn missir fylgi
Missa fylgi Marktæk breyt­ing er á fylgi við Sjálf­stæð­is­flokk­inn milli mán­aða, sam­kvæmt könnun MMR. Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra er for­maður flokks­ins. Mynd: Kastljós - skjáskot

Fylgi Sjálf­stæð­is­flokks­ins mælist tæpum fjórum pró­sentu­stigum lægra nú en það mæld­ist í síð­asta mán­uði, sam­kvæmt nýrri skoð­ana­könnun MMR. Fylgi við Vinstri græn stendur því sem næst í stað en Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn mælist með tæp­lega tveggja pró­sentu­stiga hærri stuðn­ing en nú en var í síð­ustu könnun fyr­ir­tæk­is­ins, 23. sept­em­ber síð­ast­lið­inn. Breyting á fylgi Sjálf­stæð­is­flokks­ins er töl­fræði­lega mark­tæk en ekki er mark­tæk breyt­ing á fylgi Fram­sókn­ar­flokks­ins.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist eftir sem áður með mest fylgi flokka á land­inu, 21,9 pró­sent. Í síð­ustu könnun MMR mæld­ist fylgi við flokk­inn 25,6 pró­sent. Sam­fylk­ingin mælist næst stærsti flokkur lands­ins, með 15,2 pró­senta stuðn­ing, og eykur við sig fylgi en flokk­ur­inn mæld­ist með 12,8 pró­senta stuðn­ing í síð­asta mán­uði. Fylg­is­breyt­ingin er þó innan skekkju­marka.

Píratar njóta sam­kvæmt könn­un­inni stuðn­ings 13,5 pró­senta kjós­enda sem er 1,5 pró­sentu­stigum lægra en í fyrri mán­uði og er sú breyt­ing ekki mark­tækt töl­fræði­lega. Mið­flokk­ur­inn bætir lít­il­lega við sig, 0,8 pró­sentu­stigum, og mælist nú með 11,6 pró­senta fylgi borið saman við 10,8 pró­sent síð­ast. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn bætir sem fyrr segir við sig, mælist nú með 10,2 pró­senta stuðn­ing en mæld­ist síð­ast með 8,3 pró­senta stuðn­ing. Í báðum til­fellum er fylg­is­breyt­ingin innan marka.

Stuðn­ingur við Viðreisn er því sem næst óbreyttur, flokk­ur­inn mælist nú með 9,7 pró­senta stuðn­ing en mæld­ist síð­ast með 9,4 pró­senta stuðn­ing. Hið sama má segja um Vinstri græn, óveru­leg breyt­ing er á fylgi við flokk­inn, nú mælist flokk­ur­inn með 8,3 pró­senta stuðn­ing en mæld­ist síð­ast með 8,5 pró­senta stuðn­ing. Hið sama er uppi á teng­ingnum með fylgis­tölur bæði Sós­í­alista­flokks­ins og Flokks fólks­ins, litlar breyt­ingar hafa orðið þar á. Sós­í­alistar mæl­ast nú með 4,6 pró­sentu­stiga stuðn­ing í stað 4,3 pró­senta síð­ast og Flokkur fólks­ins mælist nú með 3,8 pró­senta stuðn­ing borið saman við 3,6 pró­sent síð­ast. Í öllum til­vikum er breyt­ingin ekki mark­tæk töl­fræði­lega. Stuðn­ingur við aðra mæld­ist 1,3 pró­sent sam­an­lagt.

Samtals gáfu 79,3 pró­sent aðspurðra upp afstöðu til flokka, 6,3 pró­sent kváð­ust óákveðnir, 6,6 pró­sent svör­uðu því til að þau myndu skila auðu og 5,9 pró­sent gáfu ekki upp afstöðu. 933 ein­stak­lingar tóku þátt í könn­un­inni.

Þá mælist stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina því sem næst óbreyttur, 50,3 pró­sent kváð­ust styðja hana nú en voru 51 pró­sent 23. sept­em­ber síð­ast­lið­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
5
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
6
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár