„Ég heyri barnið mitt segja: „Mér líður svo illa í skólanum að mig langar að deyja““

Móðir 11 ára drengs í Sjá­lands­skóla í Garðabæ lýsir ein­elti sem fær dreng­inn hennar til að vilja deyja.

„Ég heyri barnið mitt segja: „Mér líður svo illa í skólanum að mig langar að deyja““
Sigríður Elín Heyrði son sinn lýsa því að hann hefði misst lífs­vilj­ann. Mynd: Facebook / Úr einkasafni

„Þeir geta ekki hætt að hata mig mamma,“ sagði Óliver, ell­efu ára gam­all sonur Sigríðar Elínar Ásmunds­dóttur, við hana, þegar hún loks­ins fékk leyfi hans til að til­kynna alvar­legt ein­elti gegn honum í Sjá­lands­skóla í Garðabæ.

Eitt sinn sögð­ust allir krakk­arnir, sem voru við­staddir, hata hann. Nema einn vinur hans. Annað skipti buðu strák­arnir Óliver í sund. „Hann var glaður og dreif sig af stað en þegar hann kom ofan í laug­ina þótt­ust þeir ekki þekkja hann, svör­uðu honum ekki þegar hann kall­aði á þá.“ Og svo er það beint, lík­am­legt ofbeldi.

„Ég þurrka tárin og reyni að halda aftur að mínum þegar hann segir mér að sér líði svo illa í skól­anum að hann geti ekki hugsað, geti ekki lært og kvíði fyrir að mæta alla daga.“

Eftir að ein­eltið var til­kynnt fékk hann frið í nokkra daga, þar til allt byrj­aði á ný. Sigríður Elín lýsir við­var­andi nið­ur­broti á syni hennar í Facebook-færslu í kvöld. Þar lýsir hún því hvernig sonur hennar hefur komið grát­andi og jafn­vel blóð­ugur heim eftir ein­eltið. 

„Ég hef fengið ótal sím­töl frá elsku stráknum mínum þar sem hann er grát­andi inni á kló­setti í skól­anum og biður mig að koma og sækja sig því strák­arnir hafa hótað honum, hreytt í hann sær­andi athuga­semdum eða lamið hann. Ég hef sótt hann grát­andi í skól­ann, oft. Ég hef sótt hann blóð­ugan í skól­ann eftir hnefa­högg í and­litið, hann fékk blóð­nasir.“

Hún hefur reynt að styrkja son sinn, segja honum hvað hann er frá­bær. En þetta var alvar­legra en svo að orðin nægðu.

Sagði honum að vera hugrakkur

„Ég hef reynt að stappa í hann stál­inu, sagt honum að vera sterkur, vera grjót­harður og láta ekki þessi stráka kom­ast upp með að láta honum líða illa. Þeim líði illa og láti það bitna á honum. Ég þurrka tárin og reyni að halda aftur að mínum þegar hann segir mér að sér líði svo illa í skól­anum að hann geti ekki hugsað, geti ekki lært og kvíði fyrir að mæta alla daga. Ég segi stráknum mínum að vera hug­rakkur, hann sé frá­bær, snill­ingur í hand­bolta og fót­bolta og með risa­stórt og fal­legt hjarta sem muni koma honum langt í líf­inu. Ég reyni að gera allt sem ég get til að byggja upp sjálfs­traustið og „plástra“ laskaða sál­ina.“

Hún átt­aði sig ekki fylli­lega á afleið­ing­unum fyrr en hún heyrði hann ræða við vin sinn í síma.

Sagðist missa lífsviljann

Svo heyrði hún son sinn tala í síma við vin sinn á lands­byggð­inni. „Það var svo kvöld eitt fyrir stuttu að ég heyrði að hann var að tala við vin sinn sem býr úti á landi; var að segja honum frá strák­unum í bekknum og hvað þeir séu grimmir við sig. Ég legg við hlustir og þegar ég heyri barnið mitt segja „mér líður svo illa í skól­anum að mig langar að deyja“ brestur hjartað mitt. Elsku strák­ur­inn minn. Ég sem segi honum alltaf að vera bara sterkur, þetta muni lag­ast. Þarna átt­aði ég mig á því hversu slæmt ein­eltið var orðið; þegar barn seg­ist ekki vilja lifa lengur er ein­eltið orðið dauð­ans alvara!“

Vill opna umræðuna

Í sam­tali við Stundina í kvöld segir Sigríður Elín skóla­kerfið virð­ast eiga erfitt með að taka á ein­elt­is­málum. Að hennar sögn er heim­ild fyrir því í Olweusaráætlun gegn ein­elti að víkja ger­endum úr skóla þegar önnur ráð þrjóta og skylda þá til þess að mæta með for­eldrum. Sjá­lands­skóli fylgi hins vegar ekki Olweusaráætlun heldur sér­stakri ein­eltis­á­ætlun fyrir grunn­skóla í Garðabæ. Kennarar upp­lifi mik­inn van­mátt gegn ein­elt­is­málum og gef­ist jafn­vel upp. Það þýði ekk­ert að ávíta börn eða hringja heim, það þurfi alvar­legra inn­grip til að eitt­hvað breyt­ist. 

Hún hefur ákveðið að rjúfa þögn­ina um ein­eltið í von um að það hafi áhrif.

Einelti sé mein­semd í sam­fé­lag­inu sem þurfi að upp­ræta. Því miður sé ein­elti enn allt of mikið tabú, vegna þess að þolendur upp­lifi skömm en skömmin sé ekki þeirra. Mik­il­vægt sé að ræða ein­elti opin­skátt því það á ekki að þríf­ast í íslensku sam­fé­lagi. Þá seg­ist hún líka alltaf hafa rætt opin­skátt um að sonur sinn sé með ADHD-grein­ingu og hvernig bregð­ast skuli við því.

Einkenni sem gott er að veita athygli 

Rétt er að taka fram að fréttin byggir á frá­sögn Sigríðar Elínar og ekki hefur verið rætt við for­eldra ann­arra barna í bekknum. Samkvæmt yfir­lýs­ingu skóla­stjórn­enda og stjórn­enda á fræðslu­sviði í Garðabæ hefur verið unnið eftir ein­eltis­á­ætlun vegna máls­ins, kenn­arar hafa sótt nám­skeið til að sækja verk­færi til að efla félags­færni og þeirri vinnu verði haldið áfram.  

Samkvæmt upp­lýs­ingum á heima­síðu um Olweusaráætluna við­ur­kennir einn af hverjum þrjá­tíu nem­endum að hann leggi aðra í ein­elti, oftar drengir en stúlkur.

Brýnt fyrir for­eldrum að vera vak­andi fyrir því ef barnið þeirra virð­ist hafa gaman af að hæð­ast að, brjóta gegn rétti ann­arra, stjórna, meiða eða gera lítið úr öðrum börnum. Ef barnið hefur þörf fyrir að ráða yfir og ráðskast með fólk. Er árás­gjarnt, frekt, þrjóskt og setur sig almennt upp á móti öllu og öllum. Þó að það sé fyrst og fremst á ábyrgð skól­ans að stöðva ein­elti hvíli engu að síður ábyrgð á for­eldrum ger­enda og mik­il­vægt að þeir taki þátt í aðgerðum. „Það gagn­ast ekki barni þínu ef þú afsakar hegðun þess eða gerir lítið úr fram­komu þess. Það er þvert á móti full ástæða til að taka sem fyrst á mál­inu. Þetta er mik­il­vægt, ekki bara til að hjálpa þol­and­anum, heldur líka vegna barns þíns og fram­tíðar þess. Eins og áður hefur komið fram eru börn og ung­lingar sem sýna ofbeld­is­hneigð gegn félögum sínum í áhættu­hópi,“ segir í leið­bein­ing­ar­bæk­lingi um áætl­un­ina. 

Þar kemur einnig fram að þolendur séu gjarna annað hvort und­ir­gefnir eða ögrandi, sýni annað hvort merki um óör­yggi eða séu álitnir erf­iðir. Einelti sem bein­ist að  ögrandi börnum er að hluta frá­brugðið þeim vanda sem aðgerð­ar­lausir þolendur standa frammi fyrir, af þeim sökum að oft tekur hópur nem­enda og jafn­vel allur bekk­ur­inn þátt í ein­elt­inu. 

Samkvæmt ein­eltiskönnun segir fjórði hver nem­andi í 5. til 10. bekk sem lagður er í ein­elti segir engum frá því. Strákar enn síður en stelpur.

Fann fyrir létti 

Óliver var létt þegar hann frétti frá móður sinni að hann þyrfti aldrei aftur að mæta í þennan skóla. „Ég lof­aði honum að hann þyrfti aldrei aftur að mæta í skól­ann, við myndum finna góðan skóla. Honum var létt, mér var létt. Hann frétti svo frá vini sínum að þegar skóla­stjór­inn hafi sagt bekknum að Ólíver væri hættur í skól­anum vegna ein­eltis hafi sumir þeirra fagnað! Það segir allt um ástandið.“

Samkvæmt Olweusaráætlunni fel­ast slæm skila­boð í því að flytja þol­and­ann úr skól­anum, þess eðlis að ein­eltið sé honum að kenna og að vand­inn leys­ist þegar hann er fjar­lægður. Þess vegna ætti eftir fremsta megni að reyna frekar að leysa vand­ann innan skól­ans, en ef það kemur til álita að flytja ein­hvern ætti að flytja þá sem leggja aðra í ein­elti. Þar sem ein­elti er gjarna hóphegðun gæti verið skyn­sam­legt að dreifa þeim á fleiri bekki og jafn­vel fleiri skóla, í sam­ráði við for­eldra. Það geti orðið þeim hvatn­ing til að breyta hegð­un­inni.

Sigríður Elín er sam­mála því að það sé ekki lausnin að þolendur ein­eltis þurfi að víkja. „Þolendur ein­eltis þurfa alltof oft að flýja skól­ann sinn, ger­endur halda áfram í skól­anum, þeir kom­ast upp með að rústa sálum skóla­fé­laga sinna. Einelti má ekki vera tabú, það má ekki vera skömm að verða fyrir ein­elti. Opnum umræð­una, segjum frá og skilum skömminni til þeirra sem eiga hana.“

Yfirlýsing skólastjórnenda

Uppfært þann 23. októ­ber. 
Stjórn­endur Sjá­lands­skóla og stjórn­endur á fræðslu­sviði Garða­bæjar sendu frá sér eft­ir­far­andi yfir­lýs­ingu, þar sem fram kemur að unnið hafi verið eftir ein­eltis­á­ætlun vegna máls­ins. Einelti sé alltaf tekið alvar­lega:

„Við hörmum þá stöðu sem upp er komin vegna ein­elt­is­máls sem fjallað hefur verið um á opin­berum vett­vangi. 

Unnið hefur verið eftir ein­eltis­á­ætlun Garða­bæjar síðan til­kynn­ing til skól­ans barst um þetta til­tekna mál.

Einelti er alltaf tekið alvar­lega og lögð er rík áhersla á að leysa slík mál.

Skólinn getur ekki tjáð sig um mál ein­staka nem­enda en mik­il­vægt er að það komi fram að unnið hefur verið með nem­endum skól­ans í félags­færni og vin­áttu­þjálfun um langt skeið. Meðal ann­ars hafa allir kenn­arar skól­ans sótt nám­skeið hjá KVAN þar sem kenn­arar geta sótt í verk­færakistu til að efla og þjálfa félags­leg sam­skipti. Þeirri vinnu verður haldið áfram í skól­anum í sam­vinnu við fræðslu­svið Garða­bæjar.

Skólinn hefur lagt sig fram um að vinna öll ein­elt­is­mál og sam­skipta­mál sem upp koma fag­lega og af festu.

Við biðlum til allra að huga að því að hér er um að ræða börn og mik­il­vægt að sýna aðgát í orð­ræðu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár