Enginn velur afa sinn. Eða hvers vegna fastakúnninn á ekki að reka barinn

Stein­grímur J. Sig­fús­son tók að sér að bjarga Íslandi, en náði ekki að bjarga Vinstri grænum. Fram­halds­saga Karls Th. Birg­is­sonar af for­seta og ald­urs­for­seta Alþingis heldur áfram.

Enginn velur afa sinn. Eða hvers vegna fastakúnninn á ekki að reka barinn

Ágætu les­endur. Við röktum í síð­ustu grein um Stein­grím J. Sig­fús­son hversu mikið hann lagði á sig til þess að kom­ast í rík­is­stjórn með Sjálf­stæð­is­flokknum eftir kosn­ingar árið 2007.

Hann dró sjálfur að vísu mjög úr því síðar, en allt liggur það fyrir stað­fest af mörgum vitn­is­burðum, þar á meðal hans eigin.

Stað­reyndin var sú að Stein­grími leidd­ist í eilífri stjórn­ar­and­stöðu, þar sem hann hafði verið síðan 1991. Lái honum hver sem vill. Árin þar urðu átján.

Þá tók við án efa við­burða­rík­asti og erf­ið­asti kafl­inn í per­sónu­legri og póli­tískri sögu Stein­gríms.

Það er synd að gera honum skil í stuttu máli, en þetta er ekki ævi­saga Stein­gríms, heldur svip­mynd í stórum dráttum.

En Stein­grímur komst sem­sagt loks­ins aftur í rík­is­stjórn. Árið 2009.

Tvær minnihlutastjórnir

Reyndar urðu þær tvær. Sú fyrri var minni­hluta­stjórn Sam­fylk­ingar og Vinstri grænna undir for­ystu Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur. Hún naut hlut­leysis Fram­sókn­ar­flokks­ins, en nýr for­maður hans …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár