Framleiðsla Arnarlax hrundi um 1100 tonn vegna laxadauða

Veruleg skakka­föll urðu í rekstri stærsta lax­eld­is­fyr­ir­tækis lands­ins, Arnarlax, vegna laxa­dauða í upp­hafi árs­ins. Tekjur fyr­ir­tæk­is­ins dróg­ust saman um nærri helm­ing milli ára og fram­leiðslan minnk­aði um 1.100 tonn.

Framleiðsla Arnarlax hrundi um 1100 tonn vegna laxadauða
Tekjutap upp á nærri helm­ing milli Tekjur Arnarlax á milli ann­ars árs­fjórð­ungs 2019 og 2020 nærri helm­ing­uð­ust vegna laxa­dauða fyrr á árinu. Kjartan Ólafsson er stjórn­ar­for­maður Arnarlax.

Laxa­dauð­inn sem átti sér stað hjá lax­eld­is­fyr­ir­tæk­inu Arn­ar­laxi í byrjun árs­ins setur veru­legt strik í reikn­ing­inn hjá fyr­ir­tæk­inu í ár.  Tekj­urnar dróg­ust saman um nærri helm­ing á árs­fjórð­ungnum apríl til júní vegna laxa­dauð­ans og lágs heims­mark­aðs­verðs á eld­is­laxi. Tekjur Arnarlax voru ein­ungis 99 millj­ónir norskra króna, tæp­lega 1,5 millj­arður, á árs­fjórð­ungnum sam­an­borið við 177 millj­ónir norskra króna, 2,6 millj­arðar króna,  í fyrra. Fram­leiðslan hjá Arn­ar­laxi, eld­is­laxi sem var slátrað og seldur, dróst saman um 1.100 tonn á árs­fjórð­ungnum. Á öðrum árs­fjórð­ungi í fyrra var fram­leiðslan 2.800 tonn en í ár var hún 1.700 tonn. 

Þetta kemur fram í árs­hluta­hluta­upp­gjöri móð­ur­fé­lags Arnarlax, Salmar AS, sem er skráð í kaup­höll­ina í Noregi. Árs­hluta­upp­gjörið var gert opin­bert í morgun.

Salmar AS á meiri­hluta hluta­bréfa í Arn­ar­laxi eftir að hafa keypt meðal ann­ars keypt íslenska hlut­hafa eins og Trygg­inga­mið­stöð­ina og Fiski­sund út úr félag­inu. Fyr­ir­tækið er stærsti ein­staki hags­mun­að­il­inn í íslensku lax­eldi þar sem Arnarlax er stærsta lax­eld­is­fyr­ir­tæki lands­ins. 

Laxinn drapst vegna vetrarsára

Stundin greindi frá laxa­dauð­anum hjá Arn­ar­laxi, sem átti sér stað í kvíum í Hrings­dal í Arn­ar­firði, í febr­úar. Samkvæmt síð­ustu tölum sem blaðið greindi frá drápust alls 128.900 eld­is­laxar, sem vógu 774 tonn, í hremm­ing­unum. Þessar tölur komu frá Mat­væla­stofnun. Ástæða laxa­dauð­ans voru vetr­ar­sár á löx­unum sem voru til­komin vegna sjáv­ar­kulda og vegna þrengsla í eld­iskví­unum. Þrengslin urðu meiri en ella þar sem eld­is­lax­inn var kom­inn í slát­ur­stærð og tók því meira pláss en minni fiskur. 

Þettta tvennt gerði það að verkum að lax­inn leit­aði neðar í kví­arnar í Arn­ar­firði og nudd­að­ist fisk­ur­inn í auknum mæli við netið í kví­unum sem leiddi til þess að sár mynd­uð­ust á hreistri lax­anna sem svo dró þá til dauða. Þegar eld­is­fiskur fær sár á hreystrið aukast líkur á sjúk­dómum og þar með dauða. 

„Mér virð­ist þetta vera svipað og í fyrra en er þó heldur fyrr á ferð­inni“

Arnarlax kall­aði á skip frá Vest­manna­eyjum sem sigldi vestur í Arn­ar­fjörð til að hreinsa dauðan lax upp úr kví­unum og eins fékk fyr­ir­tækið norska slát­ur­skipi Norwegian Gannett til lands­ins til að slátra upp úr kví­unum þar sem ástandið var sem verst. Þetta gerði fyr­ir­tækið til að reyna að bjarga verð­mætum með því að slátra sem mest af lax­inum sem fyrst áður en hann dræp­ist. 

Fyrst eftir að laxa­dauð­inn kom upp reyndi Arnarlax að gera lítið úr vanda­mál­inu.  Kjartan Ólafsson, stjórn­ar­for­maður í Arn­ar­laxi og hlut­hafi í fyr­ir­tæk­inu, sagði við Stundina eftir að vanda­málið kom upp að lík­lega væri um að ræða álíka mik­inn laxa­dauða og hjá fyr­ir­tæk­inu í fyrra. „Mér virð­ist þetta vera svipað og í fyrra en er þó heldur fyrr á ferð­inni,“ sagði Kjartan. 

Sú upp­lýs­inga­gjöf um málið sem veitt var á heima­síðu Arnarlax var einnig  önnur en þær upp­lýs­ingar sem fram koma í upp­gjörum norska móð­ur­fé­lags­ins. Ástæðan er sú að það hvílir ekki sama upp­lýs­inga­skylda á Arn­ar­laxi og Salmar AS vegna þess að síð­ar­nefnda félagið er skráð í norsku kaup­höll­ina og verður að greina frá slíkum skakka­föllum í rekstr­inum und­an­bragða­laust. 

Eitt stærsta vanda­málið sem steðjar að lax­eldi í sjó­kvíum við Íslands­strendur er ann­ars vegar sjáv­ar­kuld­inn við landið og hins vegar mögu­leik­inn á vonsku­veðri yfir vetr­ar­mán­uð­ina sem skemmt getur kví­arnar og valdið tjóni. 

Eitt það versta á Vest­fjörðumGísli Jónsson, yfir­maður fiski­sjúk­dóma hjá Mat­væla­stofnun, sagði í fjöl­miðlum í febr­úar að ástandið í sjó­kvíum Arnarlax væri með því versta sem hann hefði séð á Vest­fjörðum.

Tjónið kom fram í apríl og maí

Í árs­hluta­upp­gjöri Salmar segir um laxa­dauð­ann: „Eins og síð­asta árs­hluta­upp­gjör benti til var rekstr­ar­nið­ur­staða Arnarlax mjög léleg á árs­fjórð­ungnum. Hann ein­kennd­ist af háum kostn­aði og lágum verðum á tíma­bil­inu. Sá lax sem var fram­leiddur á öðrum árs­fjórð­ungi kemur fyrst og fremst frá eld­is­svæðum þar sem mik­ill laxa­dauði hefur átt sér stað. Samtímis hefur lágt fram­leiðslu­magn leitt til þess að notk­unin á verk­smiðju Arnarlax á Bíldudal hefur verið lítil. Þar að auki var mest af eld­is­lax­inum slátrað og hann seldur í apríl og maí, þegar verð voru mjög lág.“

Í árs­hluta­upp­gjör­inu kemur fram að nú sé að búið að tæma þau eld­is­svæði Arnarlax þar sem laxa­dauð­inn átti sér stað. Þar kemur einnig fram að þrátt fyrir þetta tjón félags­ins ætli Arnarlax sér að fram­leiða 12 þús­und tonn af eld­is­laxi á þessu ári. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Laxeldi

SFS gagnrýnir breytingu á gjafakvóta í laxeldi og talar um hann eins og eign
FréttirLaxeldi

SFS gagn­rýnir breyt­ingu á gjafa­kvóta í lax­eldi og talar um hann eins og eign

Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi hafa skilað gagn­rýnni umsögn um laga­frum­varp mat­væla­ráð­herra um lagar­eldi. Einn af rauðu þráðunum hjá SFS er að rekstr­ar­leyfin í grein­inni séu eign lax­eld­is­fyr­ir­tækj­anna og að ef breyta eigi hug­mynd­inni um ótíma­bundin leyfi í frum­varp­inu þurfi að draga úr og milda margt annað í því.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár