Eftir spreng­ing­una Þrjú þús­und tonn af sprengi­efnum voru geymd í sex ár í vöru­húsi við höfn­ina í Beirút. Mótmæl­end­ur krefj­ast nú rót­tækra breyt­inga á stjórn­kerf­inu. Mynd: AFP

Þeirri þjóð er vorkunn

Líbanska þjóðin stendur á kross­götum en á litla von um að bjart­ari fram­tíð sé á næsta leiti að mati frétta­skýrenda. Hörm­ung­arnar í Beirút á dög­unum und­ir­strika getu­leysi yfir­valda, sem hafa af veikum mætti reynt að halda þjóð­inni saman eftir að borg­ara­styrj­öld­inni lauk. Mót­mæl­endur takast nu á við óeirð­ar­lög­reglu í höf­uð­borg­inni eftir spreng­ing­una og krefj­ast rót­tækra breyt­inga á stjórn­kerf­inu.

Það virð­ist ekki eiga af Líbönum að ganga. Þessi stolta þjóð rekur sögu sína allt aftur til Fönik­íu­manna langt fyrir krists­burð og elstu mann­vist­ar­leifar þar eru meira en sjö þús­und ára gamlar. Þjóðin hefur þó orðið fyrir hrinu áfalla síð­ustu ára­tugi sem sýna að ríkið sjálft stendur á brauð­fótum.

Það voru nýlendu­herrar í Frakk­landi sem teikn­uðu upp landa­mæri Sýrlands og Líbanons á milli­stríðs­ár­unum. Voru þau hönnuð gagn­gert í þeim til­gangi að ala á sundr­ung meðal inn­fæddra og veikja þannig mót­stöð­una við yfir­ráð Frakka. Svæðinu var skipt upp í mörg aðskilin ríki og var mis­mun­andi ætt­bálkum og trú­ar­hópum skipt á milli þeirra og gert að keppa sín á milli um lands­ins gæði.

Það fór ekki fram­hjá Frökkum að í Líbanon var á þessum tíma að finna eitt stærsta kristna sam­fé­lag Araba­heims­ins; svo­nefnda Maróníta. Þegar Frakkar höfðu sig loks á brott frá land­inu eftir seinni heims­styrj­öld­ina skildu þeir eftir sundrað …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár