Kirkjan telur sig eiga land Múlavirkjunar

Stykk­is­hólms­kirkja lætur reyna á fyrir dóm­stólum hvort land Múla­virkj­unar til­heyri kirkj­unni. Smá­virkj­anaris­inn Arctic Hydro á helm­ings­hlut. Félag eins eig­enda Arctic Hydro sem á nálæga jörð hefur beitt sér gegn lögum sem tak­marka upp­kaup á jörðum.

Kirkjan telur sig eiga land Múlavirkjunar
Jónas Hagan Guð­munds­son Einn eig­enda Arctic Hydro, sem á jarðir og veiði­rétt á svæð­inu, hefur mót­mælt nýjum lögum um jarða­kaup. Deilan um land Baulár­valla fer fyrir dóm­stóla. Myndin er sam­sett. Mynd: Stella Andrea / Veiðikortið

Sókn­ar­nefnd Stykk­is­hólms­kirkju hefur höfðað mál gegn aðstand­endum Múla­virkj­unar á Snæ­fells­nesi til að fá úr því skorið hvort kirkjan sé lög­legur eig­andi að land­inu sem virkj­unin og miðl­un­ar­lón hennar eru á. Verði fall­ist á kröfur kirkj­unnar gæti það haft fjár­hags­legar afleið­ingar fyrir fyr­ir­tæki sem stefnir á bygg­ingu vatns- og vind­orku­virkj­ana víða um land.

Félagið Arctic Hydro á helm­ings­hlut í Múla­virkjun á móti Eggerti Kjart­ans­syni, bónda á Hofs­stöðum. Arctic Hydro er með fjölda virkj­ana um land allt í vinnslu sem flestar telj­ast til smá­virkj­ana og þurfa því öllu jöfnu ekki að fara í umhverf­is­mat. Félagið er í fjórð­ungseigu franska olíu­ris­ans Total, að því er virð­ist, en aðrir eig­endur eru Benedikt Ein­ars­son athafna­maður, sem er af Eng­eyj­a­rætt­inni svoköll­uðu, og margir þeirra aðila sem voru lyk­il­menn hjá fast­eigna­fé­lag­inu GAMMA. Stefnir félagið einnig að því …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Virkjanir

GreiningVirkjanir

Bjarni gerði ekki „nokkra til­raun“ til sátta

Ráðherra orku- og umhverf­is­mála ætl­aði ekki að ganga gegn til­lögum verk­efn­is­stjórnar ramma­á­ætl­unar í þings­á­lykt­un­ar­til­lögu sinni að flokkun átta virkj­un­ar­kosta. Tillagan var ekki afgreidd úr rík­is­stjórn þar sem ráð­herrar Vinstri grænna töldu að afmarka þyrfti virkj­ana­kosti sem lagt var til að vernda. Í stað þess að leiða ráð­herra flokk­anna til sam­ráðs um málið sleit for­sæt­is­ráð­herra rík­is­stjórn­ar­sam­starf­inu.
FréttirVirkjanir

Leggja Zephyr skýrar línur varð­andi áform um risa­vaxið vind­orku­ver

Vind­orku­ver sem áformað er á Fljóts­dals­heiði yrði líkt og aðrar slíkar virkj­anir án for­dæma á Íslandi en sker sig að auki úr að því leyti að upp­sett afl þess yrði tvö­falt meira en í öðrum fyr­ir­hug­uðum vind­orku­verum. „Hér er því um að ræða mjög umfangs­mikla fram­kvæmd sem krefst mik­ils fjölda vind­mylla og getur haft mikil umhverf­is­á­hrif í för með sér,“ segir í áliti Skipu­lags­stofn­unar á verk­efn­inu.

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
3
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár