„Hann heilaþvoði mig algjörlega“

Frænka Jóhannesar Tryggva Sveinbjörns­sonar kærði hann árið 2018 fyrir ítrekuð kynferðsbrot gegn sér, frá 15 ára aldri og þar til hún var orðin 19 ára. Í skýrslu­tökum lýsir hún því hvernig Jóhannes hafi brotið margoft á henni í félagi við fjölda annarra karlmanna og hvernig hann hafi átt frumkvæði að þeim brotum. Þá ber hún að Jóhannes hafi einnig brotið á henni þegar hann veitti henni hnykk­meðferð líkt og á annan tug kvenna kærði hann fyrir.

Ætlar ekki láta kyrrt liggja
Ætlar ekki láta kyrrt liggja Konan vill ekki koma fram undir nafni eða mynd af ótta við hvaða áhrif það myndi hafa á fjöl­skyldu sína. Hún er hins vegar stað­föst í því að skila skömminni þangað sem hún á heima og ætlar ekki að gef­ast upp í bar­átt­unni fyrir því að sækja rétt sinn. Mynd: 329171514027101

Ung kona lagði árið 2018 fram kæru á hendur Jóhannesi Tryggva Sveinbjörns­syni fyrir að hafa ítrekað og um margra ára skeið brotið gegn sér kynferðis­lega þegar hún var á unglings­aldri, frá því hún var fimmtán ára gömul og þar til hún varð nítján ára. Í skýrslu­töku hjá lögreglu greindi hún frá því að Jóhannes hefði í fjölmörgum tilfellum brotið gegn henni og ítrekað gert það í félags­skap með öðrum mönnum. Lagði hún einnig fram kæru á hendur vini Jóhannesar sem hún sagði einnig hafa brotið gegn sér í tvígang í félagi við Jóhannes. Greindi hún frá því að það Jóhannes hefði borið ábyrgð á því að ótilgreindur fjöldi karlmanna hefði brotið gegn sér, með því að lokka hana til sín undir því yfirskini að biðja hana afsökunar á fyrri brotum gegn henni.

Í skýrslu lögreglu sem tekin var af konunni vegna kærunnar kemur fram að hún hafi ekki …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Meðhöndlari kærður

FréttirMeðhöndlari kærður

Fann fyrir mikilli sektar­kennd vegna hinna kvennanna

Ragnhildur Eik Árna­dóttir kærði Jóhannes Tryggva Svein­björnsson fyrir að hafa brotið gegn sér kynferðis­lega í tvígang. Hún er óánægð með vinnu­brögð lögreglu við rannsókn málsins og óar við því að Jóhannes sé enn að meðhöndla ungar konur. Það að fjöldi kvenna lýsi sams konar brotum af hálfu Jóhannesar hljóti að eiga að hafa eitthvað að segja við máls­meðferðina.

19 mín. lestur

FréttirMeðhöndlari kærður

Fjöldi kvenna lýsir ítrekuðum og alvarlegum kynferðis­brotum Jóhannesar

Fimmtán konur kærðu Jóhannes Tryggva Svein­björnsson fyrir nauðganir og önnur kynferðis­brot sem samkvæmt vitnis­burði áttu sér stað allt frá árinu 2005 og til ársins 2017. Yngsta stúlkan var aðeins 14 ára þegar hún kærði Jóhannes. Hann hefur nú verið ákærður fyrir fjórar nauðganir. Þrjár kvennanna sem kærðu Jóhannes stíga fram í Stundinni og segja sögu sína. Sjálfur neitar hann að hafa brotið gegn konunum og segir þær ljúga.

13 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár