Skiptar skoðanir um myndband KSÍ: „Þetta er hámark heimskunnar“

Margir lýstu því að mynd­bandið hefði kallað fram gæsa­húð af hrifn­ingu. Pró­fessor við Lista­há­skól­ann, Goddur, segir aftur á móti að mynd­bandið sé veru­lega ógeð­fellt og upp­fullt af þjóð­rembu.

Skiptar skoðanir um myndband KSÍ: „Þetta er hámark heimskunnar“
Segir mynd­band KSÍ bara vera þjóð­rembu Goddur er ekki hrif­inn af því mynd­máli sem not­ast er við í nýju kynn­ing­ar­mynd­bandi KSÍ. „Ég veit ekki hvort þarna eru börn að verki eð van­vitar, eða hvort það er virki­lega verið að meina þetta.“

Knatt­spyrnu­sam­band Íslands (KSÍ) kynnti í gær nýtt merki sam­bands­ins, byggt á land­vætt­unum íslensku. Til að kynna merkið til leiks birti KSÍ kynn­ing­ar­mynd­band þar sem beitt var mjög áhrifa­miklu mynd­máli. Fjöldi fólks lýsti því í gær á sam­fé­lags­miðlum að það væri stór­hrifið, hug­hrifin væru til­komu­mikil og mynd­bandið fyllti fólk stolti af því að vera Íslend­ingur. Aðrir voru ekki eins hrifnir og lýstu því að mynd­málið væri upp­fullt af þjóð­rembu, svo jaðr­aði við fasískt mynd­mál.

Í kynn­ing­ar­mynd­band­inu eru land­vætt­irnar kynntar ein af öðrum og sagðar vernda landið fyrir árásum. „Hetjur koma og fara en liðið stendur að eilífu saman sem ein heild, til­búið til að berj­ast undir töfrum verndar­anna sem að eilífu vaka yfir þjóð­inni,“ segir í mynd­band­inu. „Einn hugur, eitt hjarta sem slær fyrir Ísland“.

„Gerði fólk þetta bara edrú og án lyfja?“

„Myndband KSÍ er eins og Leni Riefenstahl hafi fengið teikni­teymi Ahnenerbe í lið með sér til að búa til kynn­ing­ar­stiklu fyrir fjölda­fund Norð­ur­landa­deildar SS. Gerði fólk þetta bara edrú og án lyfja?“ spurði Kristján B. Jónasson bóka­út­gef­andi á Facebook í gær. Leni Riefen­sthal var þýskur kvik­mynda­leik­stjóri sem er hvað fræg­ust fyrir að leik­stýra nas­ista áróð­urs­mynd­inni Sigur vilj­ans á fjórða ára­tug síð­ustu aldar, auk þess sem hún kvik­mynd­aði fleiri áróð­urs­myndir nas­ista í nánu sam­starfi við Adolf Hitler. Ahnenerbe, sem Kristján minn­ist einnig á, var hug­veita sem starf­rækt var í Þriðja rík­inu á árunum 1935 til 1945 með það að mark­miði reyna að færa sönnur á að hið nor­ræna aríska kyn hefði áður ráðið heim­inum.

Ungmennafélagsandinn í sinni verstu mynd

„Ég kann ekk­ert illa við merkið og það getur alveg staðið sem prýð­is­merki en mér finnst svo­lítið sér­kenni­legt að það minni hvergi á fót­bolta,“ segir Guð­mundur Oddur Magn­ús­son, Goddur, sem er rann­sókn­ar­pró­fessor við Lista­há­skóla Íslands og sér­fræð­ingur í mynd­máli.

„Þetta er botn­inn í greind þjóð­ar­innar, þetta er alveg með ólík­indum“

„Þegar drambið eða þjóð­remban spilar á hæstu strengi fiðl­unnar jaðrar þetta auð­vitað við að vera hlægi­legt. Þarna er ekki vottur af dyggðum, þetta er bara remba, þjóð­remba. Senni­lega hefur kommenta­kerfi Mið­flokks­ins farið af stað til að dást að þessu. Þetta er hámark heimsk­u­nnar, að láta svona frá sér. Ég veit ekki hvort þarna eru börn að verki eða van­vitar, eða hvort það er virki­lega verið að meina þetta. Þetta er ekk­ert annað en partur af þess­ari Trumpísku pólarís­er­ingu, að ögra til öfganna, draga upp ung­menna­fé­lags­and­ann í sinni verstu mynd. Þetta er raun­veru­lega ógeð­fellt.“

Meðal þeirra sem lýstu ánægju sinni með merkið og mynd­bandið í gær var einmitt Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, sem sagði bæði merkið og mynd­bandið flott.

Spurður hvort hann telji að birt­ing mynd­bands með mynd­máli af þessu tagi geti verið hættu­leg telur Goddur það tæp­lega. „Sjáðu til, maður veit aldrei hvað verður hættu­legt. Trump hefur til dæmis náð að vekja upp allan heim­inn með vit­leys­unni og hver veit hvað kemur í kjöl­farið þegar kemur við­spyrnan við heimsk­u­nni. Kannski er það bara hið besta mál að leyfa þessum tæpu tíu pró­sentum sem kusu Guðmund Franklín og styðja Mið­flokk­inn að gleðj­ast yfir þessu. Þetta er botn­inn í greind þjóð­ar­innar, þetta er alveg með ólík­indum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár