Útlendingar á Íslandi öryggislausir í faraldrinum

Sex útlendingar sem hafa búið mislengi á Íslandi deila með Stundinni reynslu sinni af COVID-19 faraldurinum og þeim ótta og valda­leysi sem hefur fylgt honum og aðstæðum þeirra hérlendis.

COVID-19 farsóttin hefur kippt fótunum undan ferða­þjónustunni og leitt til þess að veitinga­geirinn og fjölmörg þjónustu­störf standa á brauð­fótum. Án ferða­manna hefur stór iðnaður hrunið, iðnaður sem er sjálfur rekinn af vinnu­framlagi innflytjenda. Tölur Vinnumála­stofnunar frá apríl sýndu að 33.637 manns, eða 17,8 prósent af vinnuafli landsins, hefðu farið á bætur frá hinu opinbera. 10,3 prósent voru á hluta­bótum ríkisins og 7,5 prósent á atvinnu­leysis­bótum.

Hluta­bótaleið íslenska ríkisins hefur verið umdeild. Ráðamenn hafa sagt að fyrirtæki sem nýta sér skatta­skjól eða greiði sér arð geti ekki notið hana, en slík ákvæði er hvergi að finna í lögum. Nágranna­ríki eins og Danmörk og Svíþjóð hafa sett skilyrði sem banna nýtingu skatta­skjóla, en þrátt fyrir hávær mótmæli hefur slíkum skilyrðum ekki verið komið fyrir. Ríkis­endur­skoðandi hefur einnig gert athugasemd við það að mörg fyrirtæki hafi nýtt sér þetta úrræði án þess að þurfa þess.

Þrátt fyrir þessa vankanta er augljóst …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....

Mest lesið undanfarið ár