Hamingjan er að vera í tengslum við sjálfan sig

Kristín Sig­urð­ar­dóttir slysa- og bráða­læknir hefur haft áhuga á sam­spili heilsu og streitu um ára­bil. Hún segir að lyk­ill­inn að ham­ingj­unni sé vellíðan. Hún notar ákveðin hug­tök, H-in til heilla, til að hjálpa fólki að takast á við lífið.

Hamingjan er að vera í tengslum við sjálfan sig
Hægjum von­andi á Kristín von­ast til þess að kór­óna­veiru­far­ald­ur­inn hafi það í för með sér að við hægjum á okkur og þorum að gefa okkur tíma til að grípa góðu stund­irnar í líf­inu. Mynd: Heida Helgadottir

„Það þýðir lítið að predika yfir full­orðnu fólki. Fólk gerir nefni­lega ekki endi­lega það sem því er sagt að gera, heldur frekar það sem það vill gera. Þess vegna þarf að gefa fólki tækin og tólin og fræðsl­una til að láta sér líða betur og þola erf­ið­leika lífs­ins betur.“ Þetta segir Kristín Sig­urð­ar­dóttir, slysa- og bráða­læknir og leið­sögu­maður, sem árum saman hefur kynnt sér sam­spil streitu og seiglu við heilsu og ham­ingju fólks. Kristín segir að það mik­il­væg­asta sem COVID-19 kór­óna­veiru­far­ald­ur­inn muni hafa í för með sér verði að fólk muni hægja á og þora að gefa sér tíma til að grípa góðu stund­irnar í líf­inu.

Kristín hefur víða komið við í störfum sínum en þegar hún vann á Land­spít­al­anum starf­aði hún á neyð­ar­bílum, sem læknir á þyrlu Land­helg­is­gæsl­unnar og kenndi í slysa­varna­skóla sjó­manna á Sæbjörgu hér á landi, auk þess sem hún vann sem læknir í afleys­ingum víðs vegar um landið, á Vest­ur­landi, Vest­fjörðum og allt austur um Norð­ur­land eystra. Hún tók sér­nám sitt í slysa- og bráða­lækn­ingum í Bret­landi og bjó síðan á Spáni um ára­bil þar sem hún starf­aði meðal ann­ars fyrir íslensk sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki sem áttu skip að veiðum við Afríku.

Í öllum þessum störfum sínum hefur Kristín því kynnst fólki af öllum stigum sem hefur glímt við ýmis heilsu­fars­leg vanda­mál. Stundum hefur orsök van­líð­unar fólks meðal ann­ars verið að finna í and­legu ástandi þess, og fjöl­mörg dæmi eru um að fólk þjá­ist lík­am­lega vegna streitu. „Það skiptir svo miklu máli hvernig við bregð­umst við streitu varð­andi áhrif á okkur and­lega og lík­am­lega.“

H-in til heilla

Kristín hefur ráð­lagt fólki hvernig takast megi á við streitu, hvernig vinna megi gegn henni en einnig hvernig hægt er að nota streitu sem afl til að takast á við áskor­anir og breyt­ingar. „Mér þykir í raun hafa verið full illa talað um streitu í gegnum tíð­ina. Streita er okkur nauð­syn­leg, við myndum til að mynda ekki lifa af fæð­ingu ef við hefðum ekki þetta kerfi sem gerir okkur kleift að takast á við erf­ið­leika og áskor­anir í líf­inu. Við þurfum hins vegar að finna jafn­vægi milli þeirra kerfa sem eru til staðar í lík­ama okkar, hvetj­andi eða örvandi kerf­is­ins sem við tengjum streitu gjarnan við, og svo róandi kerf­is­ins sem veitir okkur end­ur­heimt og hvíld.“

„Mér þykir í raun hafa verið full illa talað um streitu í gegnum tíð­ina“

Aðferðin sem Kristín beitir eru svokölluð streitu­ráð sem hún kallar H-in til heilla. H-in eru all nokkur en Kristín leggur þó áherslu á fimm þau fyrstu; hvíld, hreyf­ingu, holl­ustu, hugsun og hegðun. Rétt eins og hún nefnir hér að framan er grund­vall­ar­at­riði að finna jafn­vægi milli örvandi kerf­is­ins í lík­am­anum og róandi kerf­is­ins sem veitir fólki hvíld. Þar er svefn lyk­il­at­riði. „Það er ótrú­legt að það hafi verið talin ein­hver sér­stök dyggð að sofa lítið, það að neita fólki um svefn er ein­hver elsta pynt­ing­ar­að­ferð sem þekkt er sem segir okkur hversu mik­il­vægur svefn­inn er fyrir lík­am­lega og and­lega heilsu fólks. Sem betur fer held ég nú að þetta sé breytt, að við séum farin að skilja og við­ur­kenna gildi hvíldar og svefns.“

Hvíld er mik­il­vægKristín segir að sem betur fer sé fólk farið að skilja gildi hvíldar og mik­il­vægi hennar þegar kemur að vellíðan fólks og ham­ingju.

Annað H-ið sem Kristín leggur áherslu á er hreyf­ing. Afskap­lega mik­il­vægt er að fólk finni sér hreyf­ingu sem hentar því, sem því þyki skemmti­leg, og stundi hana reglu­lega. „Við erum hönnuð til að hreyfa okkur en ekki til kyrr­setu. Þess vegna finnst mér að tala ætti um hreyf­ing­ar­leysi sem áhættu­þátt í heilsu fólks, rétt eins og reyk­ingar til dæmis. Hreyfing örvar blóð­rás­ina og boð­efni í lík­am­anum og eykur gleði og ham­ingju.“ Sjálf stundar Kristín sjó­sund af kappi og seg­ist reyna að fara tvisvar til þrisvar í viku. Hún hafi þó farið enn oftar meðan á sam­komu­bann­inu vegna COVID-19 veirunnar stóð. „Þó að lík­ams­rækt­ar­stöðv­arnar hafi lokað og sund­laug­arnar, þá var sjór­inn alltaf opinn og mjög auð­velt að halda meira en tveggja metra fjar­lægð.“

Þriðja H-ið sem Kristín nefnir er holl­usta. Þó að það sé sjálf­gefið að fólk eigi að gæta að holl­ustu þá er að sama skapi ekki alltaf auð­velt að fylgja þeim við­miðum sem fólk setur sér. „Þetta er ein­falt: Við erum raun­veru­lega búin til úr því sem við borðum. Hvort viltu vera búin til úr gæðum eða rusli ?“ Svo er það ytri holl­usta, til að mynda umhverfið og loft­gæðin. Sú holl­usta skiptir ekki síður máli og fólk þarf eftir fremsta megni að reyna gæta þess.“

Fjórða H-ið er þá hugs­unin. Kristín segir að fólk hafi áhrif á hugs­anir sínar og það sé vel hægt að hugsa sig inn í jákvætt ástand, að hugsa sig að ham­ingj­unni. Til að mynda sé hægt að gera þakk­lætisæf­ingar sem hjálpi til við að sjá hið jákvæða í líf­inu. „Það hvernig við bregð­umst við því sem ger­ist í kringum okkur, hvernig við hugsum um hlut­ina, það hefur afleið­ingar. Ef erf­ið­leikar steðja að þá valda nei­kvæðar hugs­anir því að okkur gengur enn verr að vinna okkur frá þeim erf­ið­leikum.“

Fimmta H-ið, hegð­unin er nátengt hugs­un­inni. „Ef við bregð­umst við á ein­hvern þann hátt sem er óheil­brigt fyrir okkur eða umhverfi okkar, þá verðum við að end­ur­skoða þá hegðun. Við getum breytt því, vegna þess að við höfum vald yfir hegðun okkar og hugs­unum.“

Mismunandi þarfir á mismunandi tímum

Spurð hvort henni tak­ist sjálfri að lifa eftir H-unum sínum, þessum gildum, segir Kristín að það sé auð­vitað mis­jafnt eftir dögum. „Ég er bara mann­leg eins og allir aðrir og fer stundum út af lín­unni. Ég held þó að ég geti sagt að ég hafi alla tíð, alveg frá því ég var barn, verið þakk­lát fyrir lífið og það sem það hefur boðið mér. Ég hef líka stundað heil­brigt líf­erni og það hefur hjálpað mér við að takast á við lífið. Stundum gleymir maður sér samt eins og aðrir, auð­vitað. Svo er það auð­vitað mis­mun­andi hverju við þurfum á að halda á hverjum tíma, við gerum aldrei allt í einu af því sem ég hef verið að nefna. Það þýðir lítið að predika yfir full­orðnu fólki. Fólk gerir nefni­lega ekki endi­lega það sem því er sagt að gera, heldur frekar það sem það vill gera. Þess vegna þarf að gefa fólki tækin og tólin og fræðsl­una til að láta sér líða betur og þola erf­ið­leika lífs­ins betur.“

„Lífið er ekki auð­velt“

Kristín segir að fyrir henni hafi alltaf verið aug­ljóst að lík­am­inn er tengdur hug­anum og sál­inni. Vanlíðan á einum stað valdi van­líðan ann­ars staðar en hið sama megi líka segja um vellíð­an­ina. Þessu reyni hún að koma á fram­færi þegar hún ræðir við fólk um sam­spil heilsu og streitu. Þá nefnir Kristín gjarnan seiglu. „Þegar ég tala um seiglu þá á ég við hæfni ein­stak­linga eða sam­fé­laga til að styrkj­ast í glímunni við mót­læti og erf­ið­leika. Hug­ar­farið er lyk­il­at­riði í þessum efnum, hvernig lítum við á erf­ið­leika, sjáum við tæki­færi í þeim en ekki bara basl? Lífið er ekki auð­velt, það þýðir ekki að gefa sér það vegna þess að það er hrein­lega erfitt að vera mann­eskja oft og tíðum. Við þroskumst líka í gegnum erf­ið­leika. Það koma alls konar dagar. Það er hins vegar svo margt sem við getum gert til að grípa góðu stund­irnar.“

Kristín segir að til að verða ham­ingju­samur þurfi fólki að líða vel. „Vellíðan og ham­ingja eru bein­tengd. Þótt ham­ingja sé að sumu leyti órætt hug­tak, því ham­ingjan er auð­vitað upp­lifun fólks, þá finnst mér ham­ingjan vera þegar við erum í tengslum við lífið sjálft. Ham­ingjan er ekki áfanga­staður heldur ferða­lagið sjálft og ég held að við þurfum að taka eftir góðu stund­unum á leið­inni en ekki rjúka fram­hjá þeim af því hrað­inn er of mik­ill, eins og ég held að hafi verið orðið. Það er auð­vitað hrika­legt að það hafi þurft heims­far­aldur til að við hægðum á.

Ég held, eða vona alla vega, að það sem við tökum með okkur út úr þessum far­aldri verði að sýn okkar á lífið breyt­ist kannski aðeins, að við sjáum betur hvað það er sem gerir lífið í raun og veru þess virði að lifa því og að við metum sam­skipti okkar við aðra betur en var orðið. Ég á von á að við náum kannski aðeins hæg­ari og heil­brigð­ari takti.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hamingjan

Fjallgöngur veita hamingju
Hamingjan

Fjall­göngur veita ham­ingju

Jóhanna Fríða Dalkvist segir að sér finn­ist að fólk geti ekki alltaf verið „sky high“; það sé ekki ham­ingjan að vera alltaf ein­hvers staðar á bleiku skýi. Hún segir að fólk þurfi að kunna og ákveða hvernig það ætli að bregð­ast við ef það finnur fyrir óham­ingju. Það þurfi að ákveða að vinna sig út úr því og tala um hlut­ina. Fjall­göngur hjálp­uðu Jóhönnu Fríðu í kjöl­far sam­bands­slita á sínum tíma og síðan hefur hún gengið mikið á fjöll og er meira að segja farin að vinna sem far­ar­stjóri í auka­vinnu.
„Ég þurfti að samþykkja sjálfa mig fyrir það sem ég er“
Hamingjan

„Ég þurfti að sam­þykkja sjálfa mig fyrir það sem ég er“

Ingileif Frið­riks­dóttir var góð í að fela það hvernig henni leið í æsku. Um ára­bil var hún skot­spónn bekkj­ar­fé­laga sinna og upp­lifði sig eina þótt hún ætti vin­konur. Hún þorði ekki að koma út úr skápnum en til að losna við til­finn­inga­doð­ann varð hún að horfa í spegil og finna sjálfa sig. „Það var risa­stórt og ótrú­lega ógn­væn­legt skref,“ segir Ingileif sem er nú ham­ingju­sam­lega gift. Fjöl­skyldan er henni allt.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár