A-Dash hóp­ur­inn Þær Eva Ísleifs­dóttir, Noemi Nieder­hauser, Zoe Hatziyannaki og Catriona Gallag­her mynda A-Dash hóp­inn sem gerði upp sögu­frægt hús í Aþenu og breytti því í frjótt lista- og verk­efna­rými. Mynd: Angelos Giotopoulos

Sagan af húsinu í Aþenu sem listamenn lífguðu við

Sögufrægt hús í Exarchia-hverfinu í Aþenu hafði verið autt og yfirgefið í meira en fimm ár þegar fjórir alþjóð­legir listamenn tóku sig til og gerðu það upp. A-Dash hópurinn hefur hýst á þriðja tug lista­manna og haldið fjölda sýninga síðan þá. Jón Bjarki Magnússon ræddi við þær Zoe Hatziyannaki og Evu ísleifs­dóttur um verkefnið sem mun senn ljúka í núverandi mynd. (Ljósmynd: Angelous Giotopoulos)

Á horni gatnanna Asklipiou og Isavron í hverfinu Exarchia í miðborg Aþenu stendur tveggja hæða hús í nýklassískum stíl. Það lætur ekki mikið fyrir sér fara enda töluvert lágreistara en byggingarnar í kring – hvítt með rauðu hellu­lögðu húsþaki og gömlum hlerum fyrir gluggum. Á undan­förnum árum hafa alþjóð­legir myndlistar­menn átt hérna athvarf fyrir verkefni sín og hugðar­efni. Það iðar allt af lífi þegar best lætur og bakgarðurinn fyllist af fólki víðsvegar að úr heiminum, sem er komið til að virða fyrir sér nýjustu myndlistar­sýninguna þá og þá stundina. Umræðu­efnið eftilvill nýjasti skúlptúrinn, gjörninga­listaverkið sem var að klárast, eða bara sú spennandi og skapandi orka sem er á sveimi í Aþenu.

Húsið var reist fyrir um 130 árum síðan, árið 1890, og hefur þjónað ýmsum og ólíkum tilgangi síðan þá. Síðast var þarna kínverskur veitinga­staður til húsa eða allt til ársins 2010 þegar efnahags­kerfi Grikk­lands riðaði til falls. Eigendur staðarins yfirgáfu húsið í flýti án þess einu sinni að greiða vangoldna reikninga og það stóð autt og yfirgefið árin á eftir. Þrátt fyrir að húsið væri friðað þá höfðu húseigendur hreinlega ekki efni á að halda því við, svo það drabbaðist niður með tímanum. Hefði hópur alþjóðlegra lista­kvenna ekki tekið sig til og komið þar á fót sérstöku verkefna­rými, væri það eflaust ennþá í algjörri niður­níðslu.

Íslenska myndlistar­konan Eva Ísleifs­dóttir er ein þeirra fjögurra lista­kvenna sem standa að lista­hópnum A-Dash, sem hefur rekið lista­rýmið og residensíu í umræddu húsi síðastliðin ár. Verkefnið má rekja aftur vinnustofu­dvalar Evu í Aþenu í upphafi árs 2015, þar sem hún kynntist svissnesku lista­konunni Noemi Niederhauser. Þær náðu mjög vel saman, kolféllu fyrir borginni og sóru þess eið að snúa aftur í þeim tilgangi að koma á fót verkefna­rými. Stuttu síðar bættust þær Zoe Hatziyannaki og Catriona Gallagher í hópinn, og áður en þær vissu af höfðu hugmyndir þeirra fundið sér farveg í hinu sögufræga húsi. Síðan þá hefur A-Dash hýst á þriðja tug alþjóðlegra lista­manna og haldið fjölda sýninga. Ég hitti þær Evu og Zoe í Aþenu og ræddi við þær um verkefnið sem mun senn ljúka í núverandi mynd.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár