Eigendur Bláa lónsins spara sér nærri 200 milljónir á mánuði með ríkisaðstoðinni

Grímur Sæmundsen, forstjóri og stærsti eigandi Bláa lónsins, hefur rökstutt þá ákvörðun fyrir­tækisins að nýta sér hlutastarfs­leiðina með því að verið sé að verja 600 störf. Eigendur Bláa lónsins spara sér einnig hundruð milljóna króna með því að sleppa því að hafa fólk á launaskrá eða segja því upp.

Bláa lónið sparar sér líka fé
Bláa lónið sparar sér líka fé Grímur Sæmund­sen hefur sagt að fyr­ir­tækið nýti sér hluta­bóta­leið­ina til að vernda 600 starfs­menn. Fyr­ir­tækið sjálft sparar sér einnig fjár­muni með þessu.

Eigendur Bláa lónsins geta sparað sér nærri 600 milljónir króna í beinar launa­greiðslur til 400 starfs­manna sinna á þriggja mánaða tímabili með nýju hluta­bóta­leiðinni í stað þess að segja fólkinu upp og greiða því laun út uppsagnar­frestinn. Sparnaðurinn nemur 197 milljónum króna á mánuði. Þetta er mat sem byggir á reiknuðum meðal­launum starfs­manna Bláa lónsins árið 2018, en þau námu þá 657.168 krónum. 

Bláa lónið greindi frá því í síðustu viku í tilkynningu til starfs­manna að 164 starfs­mönnum fyrir­tækisins hefði verið sagt upp og að 400 starfs­menn myndu fara á hluta­bætur í gegnum íslenska ríkið. Ástæðan er tekjufall Bláa lónsins og lokun þess vegna Covid-faraldursins.  Í hluta­bóta­leiðinni felst að atvinnu­rekandi greiðir einungis hluta launa starfs­mannsins, í minnsta lagi 25 prósent, á meðan ríkið greiðir allt að 75 prósent upp að vissu marki.

Starfs­menn með ríflega 657 þúsund krónur á mánuði verða fyrir 150 þúsund króna launa­skerðingu við þetta, saman­borið við að halda störfum sínum eða að fá greidd laun á uppsagnar­fresti í þrjá mánuði. En á móti kemur að þeir halda störfum sínum meðan vinnu­veitandi þeirra nýtir sér úrræðið.

„Við erum að reyna að verja þessi 600 störf“

Vinnu­veitandinn sleppur þá líka við að greiða starfs­mönnum sínum full laun á uppsagnar­fresti sem og að halda mannauði inni í fyrir­tækinu sem starfs­mönnum á erfiðum óvissu­tímum. 

Launagreiðslan lækkar um rúma hálfa milljón

Tekið skal fram að þetta er mat og kann að vera að meðal launa­kostnaður þessara 400 starfs­manna sé lægri en meðal­launa­kostnaður allra hjá fyrir­tækinu á árinu 2018. Þá er einnig óljóst hversu lengi Bláa lónið mun þurfa að nýta sér hluta­bótaleiðina og byggir það á því hversu langvinnar aðstæðurnar verða.

Grímur Sæmundsen, forstjóri og stærsti hluthafi Bláa lónsins, hefur ekki svarað spurningum Stundarinnar um kostnaðar­sparnað fyrir­tækisins við að fara hluta­bótaleiðina. 

Þetta mat byggir hins vegar á þeim opinberu tölum sem fyrir liggja um starfsemi Bláa lónsins í síðasta birta ársreikningi félagsins. Einnig er gengið út frá því að uppsagnar­frestur þessara starfs­manna sé þrír mánuðir eins og reglan er hjá fastráðnum starfs­mönnum fyrir­tækja að öllu jöfnu. 

Með hluta­bóta­leiðinni, og að því gefnu að starfs­hlutfall viðkomandi fari niður í 25 prósent, þarf Bláa lónið einungis að greiða hverjum starfs­manni 164.292 krónur að meðaltali á mánuði. Ríkið greiðir svo 342.303 krónur til hvers starfs­manns í gegnum Vinnumála­stofnun, samkvæmt reiknivél um hluta­bæturnar sem finna má á heimasíðu Bandalags háskóla­manna. Launa­greiðslur Bláa lónsins til hvers starfs­manns lækka því um rúmlega 500 þúsund krónur að meðaltali. 

Á þriggja mánaða tímabili þýðir þetta að Bláa lónið þarf að greiða þessum 400 starfs­mönnum samtals rúmlega 197 milljónir króna í bein laun stað þess að greiða þeim nærri 789 milljónir króna í laun á uppsagnar­fresti ef þeim hefði verið sagt upp eða ef þeir hefðu haldið störfum sínum óbreyttum. Munurinn á milli þessara upphæða er 591 milljón króna.

Arð­greiðsl­urnar 12 millj­arðarArð­greiðslur Bláa lóns­ins 2012 til 2019.

Umdeild ríkisaðstoð

Þessi aðgerð Bláa lónsins að vera eitt fyrsta fyrir­tækið á Íslandi til að ætla að notfæra sér hluta­bótaleiðina sem lögfest var til að aðstoða fyrirtæki, og starfs­menn þeirra, sem verða fyrir barðinu á efnahags­legum afleiðingum Covid-faraldursins hefur vakið mikla athygli.

Áhrifin af Covid-faraldrinum á rekstur Bláa lónsins eru sannarlega snörp og mikil þar sem um 98 prósenta gesta lónsins eru erlendir ferðamenn. Vegna faraldursins er nær engin flug­umferð til og frá Íslandi og engir ferðamenn á landinu. Fyrir­tækið er því sannarlega í erfiðri stöðu, það missir tekju­grundvöll tíma­bundið nánast á einnu nóttu og neyðist til loka hjá sér.

Hins vegar hefur Bláa lónið verið arðbært fyrirtæki á liðnum árum enda er lónið einn vinsælasti og þekktasti ferðamanna­staður Íslands. Á grund­velli hagnaðar fyrir­tækisins, sem numið hefur ríflega 24 milljörðum króna fyrir fjármagns­liði frá árinu 2011, hefur fyrir­tækið getað greitt hluthöfum sínum rúmlega 12 milljarða króna arð. Fyrir­tækið á miklar eignir og var eiginfjár­staða þess jákvæð um ríflega 12 milljarða króna í árslok 2018.

Ein af spurningunum sem vaknað hefur vegna þessarar ákvörðunar Bláa lónsins er hvort félagið hafi ekki getað nýtt sitt eigið fjármagn lengur til að standa við skuld­bindingar gagnvart starfs­fólki. Eins af hverju eigendur félagsins setji ekki meira fé í fyrir­tækið sjálfir nú þegar á móti blæs.  Í staðinn hleypur ríkið undir bagga með þessu stöndugu fyrirtæki strax í upphafi Covid-krísunnar. 

Eigendur og arð­greiðslur Bláa lóns­ins 2018Myndin sýnir eig­endur Bláa lóns­ins og arð­greiðslur til þeirra í fyrra fyrir árið 2018.

Grímur: Snýst um starfsmennina

Í viðtali við Morgun­útvarp RÚV á mánudaginn sagði Grímur Sæmundsen, aðspurður um af hverju fyrir­tækið nýtti ekki sitt eigið fé í þessari stöðu í stað þess að leita til ríkisins eftir aðstoð, að ákvörðun Bláa lónsins snérist um að verja 600 störf hjá fyrir­tækinu: „Já það er svo sem alveg eðlilegt að menn spyrji að þessu. […] En kjarninn er sá að við erum að reyna að verja þessi 600 störf. Og ef við hefðum ekki nýtt þetta úrrræði, sem ég tel að hafi verið mjög gott útspil hjá ríkis­stjórninni, að reyna að tryggja ráðningar­samband milli fyrir­tækja og starfs­manna sem lengst, og minnka þörf á uppsögnum, þá hefðu í okkar tilfelli uppsagnirnar verið meiri, og höggið þeim megin bara meira. Þannig að við teljum okkur vera að vinna með stjórn­völdum í að reyna að verja þessi störf. Og það er okkar verkefni.“

Grímur undir­strikaði því að fleiri starfs­mönnum hefði verið sagt upp án hluta­bóta­leiðarinnar. Hann minntist hins vegar ekkert á að það getur einnig verið hagkvæmt fyrir eigendur Bláa lónsins að nýta sér hluta­bótaleiðina í stað þess að segja fleiri starfs­mönnum upp.

Á meðan á óvissunni út af Covid-faraldrinum stendur - óljóst er hvort hún verður til staðar lengur en þrjá mánuði á þessari stundu - þá geta þeir sparað sér launa­greiðslur til 400 starfs­manna og þar af leiðandi ekki gengið eins mikið á eignir Bláa lónsins.  Lögin um hluta­bótaleiðina gilda til 1. júní. Óljóst er á þessari stundu hvort Bláa lónið mun geta opnað aftur þá eða ekki og er mögulegt að gildis­tími laganna verði þá fram­lengdur og að starfs­mennirnir 400 haldi áfram að fá greidd laun frá ríkinu að mestu. 

Í viðtali við Stundina sagði Grímur jafnframt að til greina kæmi hjá hluthöfum að setja meira fé inn í félagið. 

Hafa ekki svarað spurningunum

Stundin hefur sent Grími Sæmundsen, stærsta hluthafa Bláa lónsins og forstjóra þess, tölvupóst með spurningum um áætlaðan sparnað Bláa lónsins af því að setja starfs­mennina 400 á hluta­bætur í stað þess að segja þeim upp. Spurningarnar voru sendar og var beiðni um að þeim yrði svarað ítrekuð tvisvar. 

Grímur hafði ekki svarað spurningunum þegar fréttin var birt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár