Bangsar í gluggum gleðja börn sem leiðist í samkomubanninu

Bangsar í hund­raða­tali sitja nú í glugga­kistum víða um höf­uð­borg­ar­svæðið og bíða þess að börnin í hverf­inu komi auga á þá. „Ég er sjálf með eina sex ára sem leið­ist,“ segir Oddný Arn­ar­dóttir, mamman sem setti við­burð um bangsa­leit á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í loftið.

Bangsar í gluggum gleðja börn sem leiðist í samkomubanninu
Beðið eftir börnum Fólk í flestum hverfum hefur tekið bangsa­leit­inn fagn­andi og sett bangsa út í glugg­ann hjá sér. Mynd: Heiða Helgadóttir

Á tímum sam­komu­banns og strangra til­mæla um að halda fjar­lægð við annað fólk eiga margir for­eldrar í fullu fangi með að hafa ofan af fyrir börnum sínum og forða þeim frá leiða. Þá liggur flest allt íþrótta­starf niðri eða hefur verið yfir á netið, með til­heyr­andi skorti á hreyf­ingu og úti­veru. Margir for­eldrar hafa því brugðið á það ráð að fara út að ganga með börni,n til að viðra þau og hressa þau við. Hugmynd einnar mömmu í Hlíðunum hefur eflaust haft hvetj­andi áhrif á mörg börn og for­eldra þeirra. Oddný Arn­ars­dóttir tók eftir því að nokkrir vina hennar á Facebook dreifðu mynd þar sem fólk var hvatt til þess að setja bangsa út í glugg­ann sinn, svo börnin í hverf­inu þeirra gætu nýtt göngut­úr­inn í bangsa­veiðar.

Oddnýju fannst þetta sniðug hug­mynd og ákvað að gera við­burð á Facebook, svo að enn fleiri …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár