Sögð njóta sömu réttinda og grískir ríkisborgarar í Grikklandi

Tvær fjöl­skyldur frá Írak, með þrjár ungar stúlkur á sínu fram­færi, voru ekki metnar í nægi­lega við­kvæmri stöðu til að þeim yrði veitt alþjóð­leg vernd á Íslandi. Senda á fjöl­skyld­urnar aftur til Grikk­lands, þar sem þær bjuggu áður í tjaldi í á þriðja ár, við afar slæman aðbúnað. Í fjöl­skyld­unni eru ein­stak­lingar sem eiga við alvar­leg and­leg og lík­am­leg veik­indi að stríða, auk þess sem ein stúlkan, Fatima, glímir við fötlun eftir að hafa orðið fyrir sprengju­árás í æsku.

Sögð njóta sömu réttinda og grískir ríkisborgarar í Grikklandi

Fyrir fimm árum síðan þurfti ungur íraskur faðir, Ali Aljoubi, að bregða sér út af heim­il­inu til að kaupa í mat­inn fyrir fjöl­skyldu sína. Hann tók þriggja ára dóttur sína, Fatimu, með sér í leið­ang­ur­inn. Hann vissi eins og aðrir að hvers­dags­leg ferð eftir mat­vöru gæti verið hættu­för en þannig var lífið sem hann þekkti í Bagdad í Írak. Feðginin voru óheppin. Einhver hafði komið fyrir sprengju, einmitt þar sem þau þurftu að sinna sínum erindum. Fatima varð fyrir sprengj­unni og slas­að­ist alvar­lega, missti bæði fingur og tær. Sú skelfi­lega lífs­reynsla er ekki ástæðan fyrir því að feðginin finna sig nú hér uppi á Íslandi. „Þetta er eðli­legt fyrir okkur,“ segir Aljoubi, þegar hann segir þessa sögu af óförum dóttur sinnar, eins og í hálf­gerðu fram­hjá­hlaupi. Þau flúðu ekki heima­land sitt eftir þetta, heldur eftir lífs­hættu­lega skotárás sem beind­ist beint að þeirra fjöl­skyldu. Þess vegna eru þau nú hér á …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár