Ein milljón eldislaxa drápust vegna óveðurs í Færeyjum

Færeyska lax­eld­is­fyr­ir­tækið Bakka­frost lenti í skakka­föllum í óveðri um mán­aða­mótin og glatar um 10 pró­sent fram­leiðslu sinnar. Fyr­ir­tækið upp­lýsir um þetta sjálft í til­kynn­ingu á meðan íslenska lax­eld­is­fyr­ir­tækið Arnarlax hefur ekk­ert sagt sjálft um hlut­falls­lega sam­bæri­legan laxa­dauða hjá sér í Arn­ar­firði.

Ein milljón eldislaxa drápust vegna óveðurs í Færeyjum
Fyr­ir­tækið hefur ekk­ert gefið út Arnarlax hefur ekki veitt neinar upp­lýs­ingar beint og sjálft um laxa­dauð­ann hjá sér á heima­síðu sinni heldur hefur upp­lýs­inga­gjöfin um skakka­föll­inn hjá fyr­ir­tæk­inu komið frá Mat­væla­stofnun. Kjartan Ólafsson er stjórn­ar­for­maður Arnarlax og einn stærsti hlut­haf­inn.

Ein milljón eld­is­laxa drápust í sjó­kvíum stærsta lax­eld­is­fyr­ir­tæk­is­ins í Færeyjum um mán­aða­mótin vegna óveð­urs sem geis­aði. Fyrir vikið mun árs­fram­leiðsla Bakka­frosts minnka um 5.000 til 6.000 tonn. Upp­haf­lega stóð til að Bakka­frost, sem er stærsta lax­eld­is­fyr­ir­tækja Færeyja, myndi fram­leiða um 57 þús­und tonn í ár en vegna laxa­dauð­ans hjá fyr­ir­tæk­inu verður fram­leiðslan 51 til 52 þús­und tonn.

Frá þessu greindi Bakka­frost í ítar­legri til­kynn­ingu síð­degis í gær, en fyr­ir­tækið er skráð á markað í Noregi og verður, lögum sam­kvæmt, að veita ítar­legar opin­berar upp­lýs­ingar um starf­semi sína. Vefsíðan Salmon­business segir einnig frá mál­inu á sinni heima­síðu. 

Arnarlax hefur engar upplýsingar gefið

Stærsta lax­eld­is­fyr­ir­tæki Íslands, Arnarlax, hefur einnig glímt við mik­inn laxa­dauða í sjó­kvíum sínum í Hrings­dal í Arn­ar­firði vegna erf­iðra veð­ur­skil­yrða á Vest­fjörðum og sökum þrengsla í kvíum fyr­ir­tæk­is­ins. Samkvæmt síð­ustu tölum,  sem eft­ir­lits­stofn­unin MAST miðl­aði til Stund­ar­innar í síð­ustu …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Laxeldi

SFS gagnrýnir breytingu á gjafakvóta í laxeldi og talar um hann eins og eign
FréttirLaxeldi

SFS gagn­rýnir breyt­ingu á gjafa­kvóta í lax­eldi og talar um hann eins og eign

Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi hafa skilað gagn­rýnni umsögn um laga­frum­varp mat­væla­ráð­herra um lagar­eldi. Einn af rauðu þráðunum hjá SFS er að rekstr­ar­leyfin í grein­inni séu eign lax­eld­is­fyr­ir­tækj­anna og að ef breyta eigi hug­mynd­inni um ótíma­bundin leyfi í frum­varp­inu þurfi að draga úr og milda margt annað í því.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár