Kvikmynd Jóhanns Jóhannssonar heitins slær í gegn á Berlinale

Stór­leik­konan Tilda Swinton talar inn á nýja mynd Jóhanns Jóhanns­sonar sem kölluð hefur verið ein frum­leg­asta kvik­mynd á sviði vís­inda­skáld­skapar.

Jóhann Jóhannsson
Jóhann Jóhanns­son Tón­skáldið lést í febr­úar árið 2018. Mynd: Shutterstock

Tveimur árum eftir skyndi­legt frá­fall Jóhanns Jóhanns­sonar tón­skálds hefur nýtt verk eftir hann litið dags­ins ljós, í þetta sinn á hvíta tjald­inu. Myndin Last and First Men var frum­sýnd á Berl­inale-kvik­mynda­há­tíð­inni í febr­úar og hefur fengið ein­róma lof gagn­rýnenda. Ekki hefur enn verið til­kynnt um sýn­ingar á henni á Íslandi.

Tilda SwintonBreska leik­konan flytur text­ann í mynd Jóhanns.

Myndin byggir á 90 ára gam­alli vís­inda­skáld­sögu að sama nafni eftir breska höf­und­inn Olaf Stapledon. Er hún sögð á mörkum skáld­skapar og heim­ild­ar­mynda­gerðar. Jóhann leik­stýrði, skrif­aði hand­ritið og samdi tón­list­ina við verkið, sem var frum­flutt í Manchester árið 2017 með und­ir­leik BBC hljóm­sveit­ar­innar. Sturla Brandth Grovlen sá um kvik­mynda­tök­una, svart­hvíta á 16 mm filmu, og er við­fangs­efnið að mestu styttur reistar í löndum fyrrum Júgóslavíu. Hann hefur áður tekið upp íslensku mynd­irnar Hjarta­stein og Hrúta.

Stór­leik­konan …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár