Mynd: Heiða Helgadóttir

„Ég hef lært að gefast ekki upp“

Ólafur H. Jónsson greindist með MS-sjúk­dóminn árið 1991, en stundar fjall­göngur af kappi til að bæta sálar­lífið.

Ólafur H. Jónsson er fráskilinn, þriggja barna faðir og býr einn í fallegri íbúð. Tveir rauðir stólar úr Þjóð­leikhúsinu standa í stofunni. Andlitin á áklæðinu sýna annars vegar gleði og hins vegar sorg.

„Ég held að líf mitt sé frekar brosandi heldur en hitt. Ég vil hafa það þannig. En að sjálfsögðu getur maður reiðst,“ segir hann. 

Ólafur greindist með MS-sjúk­dóminn fyrir tæpum þrjátíu árum, þá 23 ára gamall. Hann heldur á bók sem hann hefur skrifað í lýsingar á köstunum sem hann hefur fengið frá upphafi. Hann les. 

„3. mars 1991. Um kl. 12. Byrjaði að sjá tvöfalt og það jókst næstu þrjá til fjóra tímana. Flökur­leiki og óstöðug­leiki kom um kvöldið. Fór í vinnu daginn eftir en varð fljótlega að fara. Fór til augn­læknis í Hafnar­firði. Hann skoðaði mig og sagði mér að ef mér versnaði eða flökur­leikinn myndi aukast þá ætti ég …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár