Sorphirðufólk með 300 þúsund í grunnlaun

Starfs­fólk sem hefur störf í sorp­hirðu hækkar laun sín úr rúm­lega 300 þús­und króna taxta í ríf­lega 476 þús­und krónur á mán­uði með föstum yfir­vinnu­greiðslum og bónus fyrir að sleppa veik­inda­dögum. Halldór Benjamín Þor­bergs­son, fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins, segir að sorp­hirðu­fólk fái launa­hækkun upp í 850 þús­und krónur á mán­uði með kröfum Eflingar.

Formaður Samtaka atvinnulífsins Gagnrýnir hækkun á launum sorphirðufólks með kröfum Eflingar.

Heild­ar­laun verka­manns sem hefur störf við sorp­hirðu hjá Reykja­vík­ur­borg eru 476.241 krónur á mán­uði, að með­töldum yfir­vinnu­greiðslum og öðrum greiðslum, til dæmis bón­us­greiðslum fyrir að nýta ekki veik­inda­rétt.

Halldór Benjamín Þor­bergs­son, fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins, til­greindi í Kast­ljósi Rík­is­út­varps­ins í fyrra­kvöld að laun sorp­hirðu­fólks myndu hækka úr 630 þús­und krónum á mán­uði í 850 þús­und króna mán­að­ar­laun ef kröfur Eflingar yrðu sam­þykktar, en þær ganga út á hækkun lægstu taxta­launa umfram lífs­kjara­samn­ing­ana.

Sorphirðufólk hækki einnig

Halldór Benjamín mætti Sólveigu Önnu Jóns­dóttur, for­manni Eflingar, í Kast­ljós­inu í fyrra­kvöld þar sem kjara­málin voru til umræðu, einkum hinn svo­nefndi lífs­kjara­samn­ingur en Halldór hélt því fram að Efling hefði lagt til atlögu við hann. 

Halldór Benjamín sagði að Sólveig Anna og hennar félagar kysu að tala ein­göngu um kvenna­stéttir á lágum launum, svo sem starfs­fólk leik­skóla, en minnt­ist ekki á aðra hópa sem einnig væru í verk­falli þessa dag­ana. „Sem dæmi, karla­stéttin sorp­hirða eru þarna undir. Og ef þessar kröfur Eflingar ná fram að ganga munu heild­ar­laun sorp­hirðu­fólks fara rétt úr 630 þús­und í 850 þús­und. En Efling kýs að tala ekk­ert um þetta.“

613 þúsund í meðalheildarlaun

Halldór Benjamín seg­ist í sam­tali við Stundina hafa mis­mælt sig í við­tal­inu og að launin væru í raun 613 þús­und að með­al­tali hjá sorp­hirðu­mönnum Reykja­vík­ur­borgar.

„Ég hafði sam­band við mannauðs­svið Reykja­vík­ur­borgar og bað um útreikn­inga á kröfum Eflingar vegna starfs­manna í sorp­hirðu, nánar til­tekið með­al­heild­ar­laun í dag og í lok fyr­ir­hug­aðs samn­ings­tíma. Til svara var Lóa Birna Birg­is­dóttir, sviðs­stjóri mannauðs- og starfs­um­hverf­is­sviðs. Þær tölur sem hún lét mér í té voru 613 þús­und krónur með­al­heild­ar­laun hjá sorp­hirðu­fólki en ef gengið yrði að kröfu Eflingar þá yrðu með­al­heild­ar­laun 850 þús­und krónur í lok samn­ings­tím­ans. Ég mis­mælti mig í Kast­ljósi og sagði 630 en átti auð­vitað að vera 613 og hækkun í 850 í heild­ar­laun á mán­uði,“ segir Halldór.

Heildarlaun eftir 12 ára vinnu 514 þúsund krónur

Sé horft á kaup­taxta verka­manna við sorp­hirðu sam­kvæmt kjara­samn­ingum Eflingar við Reykja­vík­ur­borg kemur í ljós að grunn­laun þess sem hefur störf við sorp­hirðu eru 300.025 krónur á mán­uði. Við þau laun bæt­ist yfir­vinna sem nemur 9 klukku­stundum á viku, og er hún til­greind í sér­stökum kaupauka­samn­ingi milli Eflingar og borg­ar­innar. Er þar til­tekið að yfir­vinna greið­ist vegna vinnu að morgni fyrir venju­legt dag­vinnu­tíma­bil og einnig fyrir vinnu í matar- og kaffi­tímum. Umrædd laun fyrir yfir­vinnu nema 121.505 krónum á mán­uði. 

Þá fá allir þeir sem starfa við sorp­hirðu fyrir borg­ina greidda kaupauka fyrir hvern dag sem þeir mæta til vinnu. Sá kaup­auki er ekki greiddur við veik­indi eða þegar um aðrar fjar­vistir er að ræða. Kaup­auk­inn nemur 2.524,72 krónum og má því reikna með að heildar kaup­auki á mán­uði nemi 54.711 krónum, séu ekki um neinar fjar­vistir að ræða.

Því eru heild­ar­laun sorp­hirðu­manns sem hefur störf hjá borg­inni 476.241 krónur á mán­uði. Grunn­laun verka­manns sem hefur tólf ára starfs­reynslu við sorp­hirðu eru 327.027 krónur og heild­ar­laun með yfir­vinnu og kaupauka nema 514.178 krónum á mán­uði. Þá eru grunn­laun þess sem hefur störf sem flokks­stjóri við sorp­hirðu hjá Reykja­vík­ur­borg 355.705 krónur. Sá fær greiddar 15 yfir­vinnu­stundir á viku og nema yfir­vinnu­greiðslur því 240.091 krónu. Heild­ar­laun flokks­stjóra, með kaupauka eru því 650.508 krónur á mán­uði.

Greiðslur úr pottum ekki í hendi

Við lok árs eru veik­inda­fjar­vistir teknar saman og þeim starfs­mönnum sem eru í fullu starfi 1.des­em­ber hvert ár greitt úr potti sökum þess að starfs­menn taka á sig óbættar veik­inda­fjar­vistir. Hið sama á við ef starfs­manna­skortur hefur verið á ein­hverjum tíma á árinu, þá er starfs­mönnum greitt úr potti sam­kvæmt ákveð­inni reikni­reglu. Þessar greiðslur eru hins vegar til­fallandi, hafi til að mynda ekki verið starfs­manna­skortur við sorp­hirðu á árinu koma ekki til greiðslur. Þessar greiðslur eru inntar af hendi einu sinni á ári, 1. febr­úar, og eru því ekki reglu­leg laun og þá er það ekki heldur á hendi starfs­manna hversu háar þær eru, eins og rakið er hér að framan.

Starfs­fólk sorp­hirðu Reykja­vík­ur­borgar er rétt um 50 tals­ins, um 40 verka­menn og um 10 flokks­stjórar. Hins vegar eru ófag­lærðir starfs­menn leik­skóla ríf­lega 1.000 tals­ins. Þá er rétt að halda því til haga að sá stóri hópur hefur ekki færi á því að vinna yfir­vinnu til að hækka heild­ar­laun sín, þar eð yfir­vinna er ekki í boði á leik­skólum nema í algjörum und­ar­tekn­ing­ar­til­vikum.

Þar með inni­felur talan yfir 613 þús­und króna með­al­heild­ar­laun sorp­hirðu­fólks ýmsar greiðslur, til dæmis fyrir yfir­vinnu og fyrir að nýta ekki veik­inda­rétt, auk þess sem talan tekur einnig til flokks­stjóra.

Ótíma­bundið verk­fall hefst á mánu­dag, eftir að 95,5% félags­manna Eflingar sam­þykktu það, og hefur Reykja­vík­ur­borg sent frá sér við­var­anir vegna þess. „Á meðan verk­fall Eflingar stendur yfir óska borg­ar­yf­ir­völd eftir því að íbúar fari var­lega þegar þeir eru á ferð um borg­ina, gangi vel um grennd­ar­gáma og ruslastampa og hafi gát á sér og sínum,“ segir í til­kynn­ingu borg­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár