„Ég er hætt að vera mjó og sæt og meðvirk“

Elísabet Ólafs­dóttir hafði prófað margar leiðir til að takast á við and­lega erf­ið­leika sína með mis­góðum árangri. Nú vinnur hún úr áföllum og kvíða með óhefð­bundnum hætti. Hún seg­ist vera hætt að skamm­ast sín fyrir að vera hún sjálf.

„Ég er hætt að vera mjó og sæt og meðvirk“
Tekst á við áföll Elísabet hefur fundið óhefð­bundna leið til að takast á við and­lega erf­ið­leika. Mynd: Davíð Þór

„Ég reyndi að fá hjálp, ég fór oft niður á geð­deild og líka til sál­fræð­inga,“ segir Elísabet Ólafs­dóttir, sem hefur allt frá ung­lings­aldri glímt við and­lega erf­ið­leika, sjálfs­hatur á stundum, kvíða og þung­lyndi. 

Að hennar sögn má rekja það til ýmissa þátta, bar­áttu við ofþyngd allt frá ung­lings­aldri, með­virkni og mikla þörf fyrir við­ur­kenn­ingu sem hún upp­lifði oft og tíðum að hún fengi ekki. 

Síðasta sumar gerð­ist hins vegar nokkuð sem hefur leitt Elísa­betu til þess að beita öðrum aðferðum til að ná jafn­vægi í líf­inu og hætta að lifa eftir því hvernig aðrir sjá hana.

Vakti athygli með bók í bloggstíl

Ein­hverjir gætu kann­ast betur við Elísa­betu sem Betu rokk, söng­kon­una í hljóm­sveit­inni Á túr, blogg­ara og höf­und fyrstu íslensku bók­ar­innar sem skrifuð var í blogg-stílnum, Vaknað í Brussel. Elísabet var áber­andi í íslensku sam­fé­lagi um og upp úr alda­mótum en hefur látið fremur lítið …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár