Bjarni Benediktsson: „Þessi tillaga er ekkert annað en lýðskrum“

Alþingi sam­þykkti gerð skýrslu sem ber saman greiðslur Samherja fyrir veiði­heim­ildir í Namibíu og á Íslandi. Fjár­mála­ráð­herra greiddi atkvæði gegn því að heim­ila skýrslu­beiðn­ina.

Sagði þingmenn þyrla upp moldviðri Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra greiddi atkvæði gegn því að tekin yrði saman skýrsla með samanburði á því hvað Samherji greiddi í veiðigjöld í Namibíu annars vegar og á Íslandi hins vegar. Sagði hann skýrslubeiðnina lýðskrum.

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra kall­aði beiðni þing­manna stjórn­ar­and­stöð­unnar um skýrslu þar sem bornar væru saman greiðlsur Samherja fyrir veiði­rétt í Namibíu ann­ars vegar og á Íslandi hins vegar, „ekk­ert annað en lýð­skrum“. Stjórn­ar­þing­menn köll­uðu skýrslu­beiðn­ina leik­ara­skap, popúl­isma og sýnd­ar­mennsku. Skýrslu­beið­inin var engu að síður sam­þykkt. Níu stjórn­ar­þing­menn greiddu atkvæði á móti því, þar á meðal Bjarni.

Hart var tek­ist á í umræðum á Alþingi fyrir hádegi í umræðum um hvort heim­ila ætti beiðni um skýrslu hvar sam­an­burður væri gerður á greiðslum Samherja fyrir veiði­rétt í Namibíu og Íslandi. Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir for­maður Við­reisnar var fyrsti flutn­ings­maður skýrslu­beiðn­innar en þing­menn úr Viðreisn, Sam­fylk­ingu og Pírötum, auk Andrésar Inga Jóns­sonar sem stendur utan flokka, studdu beiðn­ina.

Vilja að mútugreiðslur verði reiknaðar með

Í grein­ar­gerð með skýrslu­beiðn­inni kom fram að ákvörðun veiði­gjalda hefði lengi verið ágrein­ings­mál í íslenskum stjórn­málum, end­ur­gjald fyrir afnot af sam­eig­in­legri auð­lind þjóð­ar­innar hafi verið háð póli­tísku mati. „Það póli­tíska mat hefur aftur í veru­legum atriðum byggst á áliti þeirra hags­muna­að­ila í útgerð sem eru full­trúar þeirra fyr­ir­tækja sem gjaldið greiða. Með öðrum orðum hafa verið bein tengsl á milli þess sem útgerð­irnar hafa talið sig geta greitt og þess sem meiri hluti á Alþingi hverju sinni hefur talið að þær gætu greitt,“ segir í grein­ar­gerð­inni.

Skýrslu­beið­endur telja að best færi á því að fá óháða aðila til að bera saman hvað Samherji væri reiðu­bú­inn til að greiða fyrir veiði­rétt í Namibíu ann­ars vegar og á Íslandi hins vegar. Tiltekið er að rétt sé að draga saman bæði beinar greiðslur Samherja fyrir veiði­rétt og einnig greiðslur sem inntar voru af hendi beint til aðila sem fóru með úthlutun veiði­rétt­ar­ins fyrir hönd namibíska rík­is­ins. 

„Hérna er þyrlað upp póli­tísku mod­viðri út af ágrein­ings­efni sem hefur verið um veiði­gjöld á Íslandi“

Stjórn­ar­þing­menn gangrýndu bæði inn­tak og fram­setn­ingu skýrslu­beiðn­innar á meðan að þing­menn stjórn­ar­and­stöðu bentu á að skýrslu­beiðnir væru mik­il­vægur þáttur þegar kæmi að mögu­leikum þing­manna til að sinna eft­ir­lits­hlut­verki sínu. Þá var orða­lag grein­ar­gerð­ar­innar gagn­rýnt af mörgum.

„Þessi skýrslu­beiðni eru auð­vitað ekk­ert annað en ákveðið lýð­skrum,“ sagði Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra í umræð­unum. „Hérna er þyrlað upp póli­tísku mod­viðri út af ágrein­ings­efni sem hefur verið um veiði­gjöld á Íslandi og því haldið fram að útgerðin skammti sér veiði­gjöld eftir því sem hún telur að sé hæfi­legt hverju sinni. Hérna er verið að rugla saman ger­ó­líkum kerfum og beðið um að þingið sam­þykki að þessi ger­ó­líku kerfi séu tekin til sam­an­burðar og í sam­an­burð­inum séu meintar mútu­greiðslur hafðar með í reikn­ingnum til þess að þetta komi sem best út í póli­tískri umræðu á Íslandi.“ Sagði Bjarni enn fremur að til­lagan væri ekki boð­leg og ekki hægt að styðja hana. Hann sá sig svo knúin til að stíga aftur í pontu og ítreka afstöðu sína. „Þessi til­laga er ekk­ert annað en lýð­skrum,“ sagði Bjarni.

Á erindi við almenning

Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, sagði að skýrslu­beiðnin væri „póli­tískur lodd­ar­skapur“ og Óli Björn Kárason, Sjálf­stæð­is­flokki, kall­aði beiðn­ina „leik­ara­skap“.

Þor­steinn Víglunds­son, þing­maður Við­reisnar, benti hins vegar á að upp­lýs­ing­arnar sem um væri beðið ættu erindi til almenn­ings. „Er útgerðin ekki sam­kvæm sjálfri sér um það aðgangs­gjald sem að hún er reiðu­búin að greiða ann­ars staðar sam­an­borið við það aðgangs­gjald sem hún er reiðu­búin að greiða hér og kvartar hástöfum undan að sé allt of hátt? Sé það raunin að aðgangs­gjaldið fyrir skamm­tíma veiði­heim­ildir í Namibíu séu tvisvar sinnum hærri heldur en veiði­gjöldin hér á landi, þá er það eitt­hvað sem á erindi við almenn­ing hér á landi.“

Í atkvæða­greiðslu var sam­þykkt að leggja mætti fram beiðni um umrædda skýrslu með 27 atkvæðum. Tíu greiddu ekki atkvæði en sjö þing­menn sögðu nei, þeir Ásmundur Frið­riks­son, Bjarni Bene­dikts­son, Brynjar Níelsson, Haraldur Bene­dikts­son, Jón Gunn­ars­son, Óli Björn Kárason, allir í Sjálf­stæð­is­flokki, og Þórarinn Ingi Pét­urs­son Fram­sókn­ar­flokki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

Lögreglan á nýrri slóð: Fundu skilaboð Þorsteins
AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.
Lögmaður namibískra sjómanna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“
RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár