Vesen í Venesúela

Íbúar rík­asta lands Suður-Ameríku eru á flótta, tutt­ugu árum eftir að hafa kosið nýjan for­seta. Páll Stef­áns­son ljós­mynd­ari fór í flótta­manna­búð­irnar.

Vesen í Venesúela
Kominn úr landi Nýtt land, nýtt tungu­mál, í flótta­manna­búðum í Boa Vista, Brasilíu. Mynd: Páll Stefánsson

Það eru 20 ár síðan Hugo Chávez var kos­inn for­seti rík­asta lands Suður-Ameríku, Venes­ú­ela. Síðan hafa 6 millj­ónir lands­manna, 20% þjóð­ar­innar, flúið efna­hags- og félags­legt hrun. Landið er orðið það fátæk­asta í álf­unni, með verð­bólgu sem er 10 milljón pró­sent núna og hæstu glæpa­tíðni í heimi. 

Flestir sem sóttu um alþjóð­lega vernd hér heima á síð­asta ári, eða 180 ein­stak­lingar, komu einmitt frá Venes­ú­ela. 

Í júní, rétt norður af mið­baug, þar sem sólin gengur í hring þráð­beint fyrir ofan hvirf­il­inn, horfði ég á straum­inn af Venes­ú­elum koma yfir til Brasilíu. Fjögur þús­und flótta­menn á dag. Auð­þekkj­an­legir, eins og allt flótta­fólk sem ég hef séð, hvar sem er í heim­inum. Það er þungur bak­pok­inn á hryggnum, sem er þeirra ein­kenni.  

Fann sjón­varpHeppinn; búin að fá sjón­varp gef­ins til að stytta sér stundir í Boa Vista, Brasilíu.

Launin mæld í þyngd

Fyrir framan stærstu flótta­manna­búð­irnar í Boa Vista, …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár