120 starfsmenn Samherja sagðir skildir eftir í óvissu með lifibrauð sitt

Togari Samherji í Namibíu hélt ekki til veiða í Namibíu á mið­viku­dag­inn. 120 starfs­menn í Namibíu eru í óvissu um fram­tíð sína. Þeir fengu sms um að fjar­lægja eigur sínar úr tog­ar­anum sem far­inn er af landi brott.

120 starfsmenn Samherja sagðir skildir eftir í óvissu með lifibrauð sitt
Óvissa um fram­tíð sjó­mann­anna Samkvæmt frétt í namibísku blaði ótt­ast 120 sjó­menn sem starfa hjá félagi Samherja í Namibíu um afkomu sína vegna afleið­inga mútu­máls­ins í Nambíu en Samherji ætlar að yfir­gefa landið. Þor­steinn Már Bald­vins­son og Kristján Vil­helms­son eru stærstu eig­endur Samherja. Mynd: Skapti Hall­gríms­son

120 sjó­menn sem vinna hjá félagi Samherja í Namibíu eru í óvissu með störf sín og fjár­hags­lega afkomu vegna þess að tog­ar­inn Saga eru hættur veiðum í land­inu. Saga hét áður Blue Wave og var í eigu íslenska líf­eyr­is­sjóða í gegnum félag í skatta­skjól­inu Tortólu. Félag Samherja í Namibíu heitir Saga Seafood og er eitt af félög­unum sem er miðju Sam­herja­hneyksl­inu í Namibíu, hund­ruð millj­óna króna mútu­greiðslum til ráða­manna í Afr­íku­rík­inu í skiptum fyrir hesta­makríl­skvóta sem sagt var frá í Kveik, Stund­inni og Al-Jazeera í nóv­em­ber á grund­velli gagna frá Wikileaks. 

Þetta kemur fram í namibíska blað­inu New Era Live í dag. Samkvæmt frétt blaðs­ins sigldi tog­ar­inn frá Namibíu á mið­viku­dags­morgun og hélt til veiða í Márit­aníu eða í slipp á Kanarí­eyjum, sam­kvæmt frétt blaðs­ins.

Fyrr í jan­úar sagði Samherji frá því að fyr­ir­tækið væri að draga saman seglin í Namibíu með það fyrir augum að yfir­gefa landið alveg. „Samherji er um þessar mundir að draga úr starf­semi sinni í Namibíu með það að mark­miði að hætta alfarið rekstri í land­inu. Hins vegar er ljóst að það mun taka ein­hvern tíma. Allar ákvarð­anir vegna starf­sem­innar í Namibíu verða teknar í nánu sam­ráði við þar til bær stjórn­völd og í sam­ræmi við gild­andi lög og reglur,“ sagði í frétt á heima­síðu Samherja. 

„Okkur þótti þetta ein­kenni­legt þar sem við vorum á leið til veiða“

Fengu sms um að fjarlægja eigur sínar

Í frétt blaðs­ins er við­tal við einn af sjó­mönn­unum 120, Frans Shilongo, þar sem hann segir sjó­menn­ina hafa fengið sms-skila­boð um að þeir myndu ekki halda til veiða um borð í Sögu og að þeir ættu að fjar­lægja eigur sínar frá borði. „Okkur þótti þetta ein­kenni­legt þar sem við vorum á leið til veiða. Yfir­leitt er það þannig að 15 manna áhöfn fylgir tog­ar­anum ef hann fer í slipp, þess vegna þótti okkur þetta skrítið,“ segir Shilongo. 

Annar sjó­maður, Leonard Shinedima, segir við blaðið að sjó­menn­irnir hafi ekki fengið nein svör frá Sam­herj­a­fé­lag­inu um fram­tíð sína, ein­ungis að skipið yrði í burtu í sex mán­uði. „Svo virð­ist vera sem það eng­inn kvóti til að veiða, þess vegna mun skipið halda til veiða í Márit­aníu. Við heyrðum einnig að skipið sé á leið­inni í slipp í Las Palmas á Kanarí­eyjum. Þessir menn veita bara ekki skýr svör,“ segir sjó­mað­ur­inn. 

Enginn af for­svars­mönnum Sam­herj­a­fé­lags­ins í Namibíu, sem Egill Helgi Árnason hefur stýrt, vildi tjá sig við New Era Live þegar eftir því var leitað. 

Samkvæmt frétt New Era Live hafa starfs­menn­irnir áhyggjur af því að þeir muni ekki fá nein laun, eða upp­sagn­ar­frest, ef störfum þeirra fyrir Sam­herj­a­fé­lagið í Namibíu er nú lokið. 

„Sjó­mönn­unum hefur enn ekki verið sagt upp en ef það ger­ist þá verður gert upp við þá í sam­ræmi við þeirra laga­legan rétt og eftir namibískum lögum.“

Samherji: Réttindi starfsmanna virt

Í svari frá Samherja kemur fram að tog­ar­inn Saga hafi verið leigður til fyr­ir­tækis í Namibíu. „Skipið Saga var leigt til Namibísks fyr­ir­tækis sem hefur ekki fengið kvóta á skipið í Namibíu og getur þess vegna ekki veitt í lög­sögu lands­ins. Við getum ekki svarað fyrir þá útgerð, hún er ekki á okkar vegum. Laun hafa verið gerð upp við áhöfn skips­ins sam­kvæmt samn­ingum og engar skuldir eru útistand­andi.“

Í svari Samherja, frá Björgólfi Jóhanns­syni for­stjóra í gegnum rit­ar­ann Margréti Ólafs­dóttur, kemur fram að gert verði upp við sjó­menn tog­ar­ans sam­kvæmt þeim lögum og reglum í Namibíu. „Sjó­mönn­unum hefur enn ekki verið sagt upp en ef það ger­ist þá verður gert upp við þá í sam­ræmi við þeirra laga­legan rétt og eftir namibískum lögum. Samherji hefur greitt öll gjöld, skatta, veiði­heim­ildir, laun osfrv. Samherji hefur og mun upp­fylla allar laga­legar skyldur í Namibíu.“

Björgólfur svar­aði ekki þeirri spurn­ingu hvort Saga hefði farið frá Namibíu til að veiða í Márit­aníu. 

Hafnar kaupum á togaranum

Í frétt blaðs­ins er einnig við­tal við fram­kvæmda­stjóra útgerð­ar­fé­lags­ins Tunacor sem sagt hefur verið eiga í við­ræðum við Sam­herj­a­fé­lagið í Namibíu um kaup á þessum tog­ara félags­ins en þeir eru þrír í heild sinni í Namibíu: Saga, Heinaste og Geysir. Þessu hafnar fram­kvæmda­stjór­inn í grein­inni og virð­ist því ekki vera neinn kaup­andi að Sögu innan Namibíu. „Við ræddum þessi mál almennt en það þýðir ekki að við ætlum að taka togar­ann yfir. Þetta hefur ekki náð neitt lengra. Menn eru greini­lega komnir á aðra skoðun núna og ef við hefðum vijað kaupa togar­ann þá hefðum við nú þegar gert það...“, segir fram­kvæmda­stjór­inn, Peya Hitula. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórnvöld axli siðferðislega ábyrgð á Samherja“
FréttirSamherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórn­völd axli sið­ferð­is­lega ábyrgð á Samherja“

Leiðtogi namibísku stjón­ar­and­stöð­unnar segir landa sína undr­ast þögn íslenskra stjórn­valda um þá stað­reynd að stærsta spill­ing­ar­mál í sögu Namibíu hafi orðið til fyrir til­stilli íslensks fyr­ir­tækis. Spyr hvort hund­rað millj­óna styrkur Orku­sjóðs sé rík­is­styrkt spill­ing og sendir for­sæt­is­ráð­herra opið bréf og óskar lið­sinnis hennar við að fá Samherja til að greiða bætur og svara til saka.
Samherji sakaður um stórfelld skattalaga- og gjaldeyrisbrot í Namibíu og framsalskrafa væntanleg
RannsóknirSamherjaskjölin

Samherji sak­aður um stór­felld skatta­laga- og gjald­eyr­is­brot í Namibíu og fram­sal­skrafa vænt­an­leg

Rík­is­sak­sókn­ari Namibíu er enn ákveð­inn í því að óska eftir fram­sali þriggja stjórn­enda Sam­herj­a­fé­laga í Namibíu og segir brot á skatta- og gjald­eyr­is­lögum muni mögu­lega bæt­ast við sak­ar­efnin á hendur þeim. Stór­felld skatta­laga­brot Sam­herj­a­fé­laga sögð til rann­sóknar. Sam­herj­a­maður segir íslensk yfir­völd þegar hafa neitað að fram­selja sig.
Íslandsvinkona svo gott sem orðin forseti Namibíu
FréttirSamherjaskjölin

Íslands­vin­kona svo gott sem orðin for­seti Namibíu

Netumbo Nandi-Ndaitwah, utan­rík­is­ráð­herra Namibíu, sem kom hingað til lands í júní og ræddi Sam­herj­a­málið við íslenska ráð­herra og aðstoð­ar­mann eins þeirra, er nú svo gott sem búin að tryggja sér for­seta­emb­ættið í Namibíu. Hún var í morgun kjörin arf­taki for­manns flokks­ins, sitj­andi for­seta sem hyggst setj­ast í helgan stein. Flokk­ur­inn nýtur slíks yfir­burð­ar­fylgis að inn­an­flokks­kosn­ingin er sögð raun­veru­legt for­seta­kjör.
„Þetta eru glæpamenn og hegða sér eftir því“
ViðtalSamherjaskjölin

„Þetta eru glæpa­menn og hegða sér eftir því“

Jóhannes Stef­áns­son, upp­ljóstr­ari í Sam­herj­a­mál­inu, er sáttur við gang rann­sókn­ar­innar hér á landi og segir að fátt geti komið í veg fyrir að málið endi með dómi. Hann gagn­rýnir þó aðgerð­ar­leysi yfir­valda við því þegar Sam­herj­a­menn hafa áreitt, njósnað um eða reynt að hræða hann frá því að bera vitni. Fátt í við­brögðum Sam­herj­a­fólks hafi þó komið honum á óvart, enda fái þau að ganga mun lengra en öðrum lið­ist.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár