Allir helstu lánveitendur búnir að hækka íbúðalánavexti eftir ákvörðun Seðlabankans

Fjórð­ungur heim­ila lands­ins eru með óverð­tryggð lán á breyti­legum vöxtum, og bera fullan þunga af vaxta­hækk­unum Seðla­banka Íslands. Afborg­anir af 50 milljón króna láni hafa hækkað um 69 pró­sent frá því maí í fyrra og 39 pró­sent á rúmu hálfu ári.

Þeir sem eru með óverðtryggð lán á breytilegum vöxtum hafa þurft að eyða miklu hærra hlutfalli af ráðstöfunartekjum sínum í húsnæðiskostnað undanfarna mánuði en áður.
Þeir sem eru með óverð­tryggð lán á breyti­legum vöxtum hafa þurft að eyða miklu hærra hlut­falli af ráð­stöf­un­ar­tekjum sínum í hús­næð­is­kostnað und­an­farna mán­uði en áður. Mynd: Pexels

Arion banki varð á mið­vik­dag síð­astur stóru bank­anna þriggja að hækka íbúða­vexti sína í kjöl­far ákvörð­unar Seðla­banka Íslands að hækka stýri­vexti um 0,25 pró­sentu­stig þann 24. nóv­em­ber, upp í sex pró­sent. Það var tíunda skiptið í röð sem Seðla­bank­inn hækk­aði vexti á vaxta­á­kvörð­un­ar­degi, en þeir voru 0,75 pró­sent í maí í fyrra áður en vaxta­hækk­un­ar­ferlið hófst.

Vextir Arion banka á óverð­tryggðum lánum á breyti­legum vöxtum hækka um 0,25 pró­sentu­stig og verða 7,84 pró­sent. Íslands­banki og Lands­bank­inn höfðu þegar til­kynnt um sömu hækkun en grunn­vextir þeirra á íbúð­ar­lánum. Hjá Lands­bank­anum, sem er með lægstu vext­ina af stóru bönk­unum þremur, eru þeir 7,5 pró­sent.

Stærstu líf­eyr­is­sjóð­irnir sem lána óverð­tryggð á breyti­legum vöxtum hafa líka hækkað síðan vexti. Hjá Líf­eyr­is­sjóði verzlunarmanna hækka þeir um 0,35 pró­sentu­stig og verða 6,91 pró­sent frá 1. febr­úar næst­kom­andi. Gildi var nýbúið að til­kynna um vaxta­hækkun þegar Seðla­bank­inn ákvað að hækka stýri­vexti, og við það fóru vextir á óverð­tryggðum grunn­lánum með breyti­lega vexti í 6,9 pró­sent. Sú breyt­ing tók gildi 12. des­em­ber. Lífsverk var sömu­leiðis búið að hækka sína vexti upp í 7,05 pró­sent en sú hækkun tekur gildi um ára­mót. Brú ákvað að breyta sínum vöxtum í lok nóv­em­ber þannig að óverð­tryggðir breyti­legir vextir á grunn­lánum fóru upp í 6,9 pró­sent.

Fjörðungur heimila undir

Í svörum sem Seðla­banki Íslands tók saman vegna spurn­inga Þor­bjargar Sigríðar Gunn­laugs­dóttur, þing­manns Við­reisnar, og Kjarninn hefur undir höndum, kemur fram að um fjórð­ungur allra íbúða­lána séu óverð­tryggð á breyti­legum vöxtum. Sá hópur tekur því á sig þessar vaxta­hækk­anir af fullum þunga.

[adspot]Í nýj­ustu birtu mán­að­ar­skýrslu Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar (HMS), sem birt var í dag kemur fram að greiðslu­byrði óverð­tryggðra lána væri 63.600 krónur fyrir hverjar tíu millj­ónir króna sem teknar eru að láni. Það þýðir að fyrir þann sem er með 50 milljón króna lán er greiðslu­byrðin á mán­uði 318.000 krónur. Í maí í fyrra, þegar stýri­vextir voru í sögu­legu lág­marki, var greiðslu­byrði af láni upp á sömu upp­hæð 188.500 krónur. Hún hefur því hækkað um 129.500 krónur á einu og hálfu ári, eða um 69 pró­sent. Það er aukin greiðslu­byrði upp á rúm­lega 1,5 millj­ónir króna á ári.

Ef horft er styttra aftur í tím­ann, til maí 2022, hefur greiðslu­byrðin af ofan­greindu láni hækkað um 89.500 krónur á mán­uði, eða um 39 pró­sent.

Í svör­unum sem Þorbjörg Sigríður fékk frá Seðla­bank­anum kemur einnig fram að 4.451 heim­ili séu með óverð­tryggð lán á föstum vöxtum sem komi til end­ur­skoð­unar næsta árið. Fjöldi heim­ila lýkur líka fast­vaxta­tíma­bili sínu á árinu 2024 en alls koma 340 millj­arðar króna í óverð­tryggðum íbúða­lánum til vaxta­end­ur­skoð­unar á þessum tveimur árum. Á árinu 2025 koma svo lán upp á 250 millj­arða króna í við­bót til end­ur­skoð­unar, en þorri þeirra lána eru óverð­tryggð.

Því er ljóst að stór hluti heim­ila í land­inu annað hvort býr við veru­lega auk­inn hús­næð­is­kostnað eða sér fram á veru­lega aukn­ing­u.

Fjár­mála­leg skil­yrði heim­ila versnað

Í nýjasta riti Pen­inga­mála Seðla­banka Íslands, sem kom út í lok nóv­em­ber, kom fram að fjár­mála­leg skil­yrði heim­ila lands­ins hafi versn­að. Vaxta­gjöld heim­ila í hlut­falli við ráð­stöf­un­ar­tekjur hafi hækkað frá því í fyrra eftir mikla lækkun í kjöl­far lækk­unar vaxta í heims­far­aldr­inum Vaxta­gjöldin eru þó enn undir sögu­legu með­al­tali þrátt fyrir mikla hækkun vaxta í ár enda hafa ráð­stöf­un­ar­tekjur hækkað umtals­vert.

[links]Í rit­inu segir að áhrif vaxta­hækk­ana á greiðslu­byrði skuldugra heim­ila gætir fyrr nú en áður þar sem lið­lega fjórð­ungur íbúða­lána ber breyti­lega óverð­tryggða vexti og óverð­tryggð lán á föstum vöxtum séu að stærstum hluta með fasta vexti til ein­ungis þriggja ára. „Greiðslu­byrði lán­tak­enda sem festu vexti á fast­eigna­lánum þegar vextir voru í sögu­legu lág­marki mun því að öðru óbreyttu aukast þegar tíma­bil fastra vaxta rennur út. Á sama tíma hefur hlutur verð­tryggðra íbúða­lána af nýjum lánum auk­ist þótt verð­tryggðir vextir hafi einnig hækkað frá fyrri hluta árs í takt við almennt hækk­andi raun­vext­i.“

Hlut­deild verð­tryggðra lána af úti­stand­and­andi lánum er nú um 56 pró­sent.

Greiðslu­byrði þeirra er lægri en óverð­tryggðra fyrstu árin eftir að lánin eru tek­in, en eykst svo skarpt séu þau látin lifa allan sinn líf­tíma. Í verð­bólgu­á­standi líkt og nú rík­ir, þar sem verð­bólgan er 9,6 pró­sent, leggj­ast hins­vegar miklar verð­bætur á höf­uð­stól lána.

Í skýrslu HMS segir að greiðslu­byrði 50 milljón króna láns til 30 ára á verð­tryggðum vöxtum sé nú um 192 þús­und krón­ur, eða um 119.500 krónum lægri en í dæm­inu um óverð­tryggt lán á breyti­legum vöxtum sem tekið var hér í upp­hafi.

Kaupmáttur ekki dregist jafn mikið saman í tólf ár

Kjarninn greindi frá því um liðna helgi að það hafi gerst í fyrsta sinn frá lok árs 2012 og byrjun árs 2013 á þriðja árs­fjórð­ungi 2022 að kaup­máttur ráð­stöf­un­ar­tekna hafi dreg­ist saman tvo árs­fjórð­unga í röð. Þá dróst hann saman um 6,1 pró­sent sem er mesti sam­dráttur sem mælst hefur á þremur mán­uðum frá lokum árs 2010.

Ráð­stöf­un­ar­tekjur eru þeir pen­ingar sem standa eftir þegar búið er að draga skatta og önnur gjöld frá launum við­kom­andi og kaup­máttur þeirra lýsir því hvað hver getur keypt fyrir þær tekjur. Þegar kaup­mátt­ur­inn dregst saman þá getur við­kom­andi keypt minna fyrir krón­urnar sem hann hefur til ráð­stöf­unar í hverjum mán­uði.

Í töl­unum eru vaxta­gjöld heim­il­anna dregin frá tekjum við útreikn­ing ráð­stöf­un­ar­tekna. Þannig er í töl­unum tekið til­lit til áhrifa vaxta­hækk­ana á heim­il­in.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár