N4 náði fram 100 milljóna styrk úr ríkissjóði eftir að hafa einfaldlega beðið um hann

Fjöl­mið­ill­inn N4 sendi beiðni um sér­stakan styrk til fjár­laga­nefndar. Beiðnin er rök­studd með upp­lýs­ingum sem eru að hluta til rangar. Meiri­hluti fjár­laga­nefndar ákvað að veita 100 milljón króna styrk til lands­byggð­ar­fjöl­miðla.

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, er formaður fjárlaganefndar. Hún er einn þeirra nefndarmanna stjórnarflokkanna sem stendur að því að veita N4 rekstrarstyrk. Fjölmiðlafyrirtækið er staðsett í kjördæmi Bjarkeyjar.
Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir, er for­maður fjár­laga­nefndar. Hún er einn þeirra nefnd­ar­manna stjórn­ar­flokk­anna sem stendur að því að veita N4 rekstr­ar­styrk. Fjöl­miðla­fyr­ir­tækið er stað­sett í kjör­dæmi Bjarkeyjar. Mynd: Eyþór Árnason

Meiri­hluti fjár­laga­nefndar, sem sam­anstendur af þing­mönnum Vinstri grænna, Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks, ákvað að veita 100 milljón króna fram­lag úr rík­is­sjóði „vegna rekst­urs fjöl­miðla á lands­byggð­inni sem fram­leiða eigið efni fyrir sjón­varps­stöð“ með breyt­ing­ar­til­lögu á fjár­lögum sem lögð var fram á þingi 5. des­em­ber síð­ast­lið­inn.

Í áliti meiri­hluta fjár­­laga­­nefndar var ekki gerð grein fyrir því hvort eða hvaðan beiðni um þetta fram­lag hafi kom­ið. Heim­ildir Kjarnans herma að breyt­ing­ar­til­lagan um að veita 100 milljón króna styrk á þessum grund­velli hafi komið frá lands­byggð­ar­þing­mönnum úr röðum stjórn­ar­flokk­anna sem hefðu meðal ann­ars rök­stutt það með því að rík­is­fjöl­mið­ill­inn RÚV sinnti lands­byggð­inni ekki nægi­lega vel.

[links]Kjarninn hefur nú undir höndum beiðni sem send var til fjár­laga­nefndar þann 1. des­em­ber, en hefur ekki verið birt á vef Alþingis. Beiðnin er frá Maríu Björk Ingva­dóttur, fram­kvæmda­stjóra N4 fjöl­mið­ils, sem er með höf­uð­stöðvar á Akureyri. Í beiðn­inni óskar María eftir að rík­is­sjóður veiti N4 100 milljón króna styrk „til að halda úti fjöl­miðlun, þátta­gerð og frétta­miðlun, af lands­byggð­unum árið 2023.“ Sér­stak­lega er til­tekið að María sé stödd í Kaup­manna­höfn þegar beiðnin var send.

N4 er meðal ann­ars í eigu KEA, Kaup­fé­lags Skag­firð­inga og Síld­ar­vinnsl­unn­ar, sem á hlut í gegnum Fjár­fest­ing­ar­fé­lagið Vör. Stærsti eig­andi Síld­ar­vinnsl­unnar er Sam­herji, eitt stærsta fyr­ir­tæki lands­ins sem er með höf­uð­stöðvar á Akur­eyr­i.

N4 hefur fram­leitt kostað efni fyrir ýmsa aðila, meðal ann­ars Sam­herja, og í fyrra var helsti dag­skrár­gerð­ar­maður N4, Karl Eskill Páls­son, ráð­inn í starf upp­lýs­inga­full­trúa Sam­herja. Í við­tali við Stundina í fyrra, áður en hann réð sig til Samherja, tók Karl Eskill það sér­stak­lega fram að N4 væri ekki frétta­stöð.

Fyrir þing­kosn­ing­arnar í fyrra­haust var svo greint frá því að N4 hafi ætlað að rukka fram­boð fyrir að fá að vera með í kosn­inga­um­fjöllun sem stöðin ætl­aði að vera með. Eftir að málið varð opin­bert var hætt við umfjöll­un­ina.

Yrði langstyrkjahæsti einkarekni fjölmiðillinn

Skömmu áður en að fjár­laga­nefnd ákvað að verða við beiðni N4 um sér­stakan rekstr­ar­styrk upp á 100 millj­ónir króna var lagt frum­varp um að fram­lengja styrkja­kerfi til einka­rek­inna fjöl­miðla til tveggja ára. Samkvæmt því munu einka­reknir miðlar skipta með sér 377 millj­ónum króna á næsta ári. Í ár fengu 25 fyr­ir­tæki styrk. Alls 53 pró­­sent upp­­hæð­­ar­innar fór til þriggja stærstu einka­reknu fjöl­miðla­­­fyr­ir­tæki lands­ins, Árvak­­­urs, Sýnar og Torgs, en hvert þeirra fékk 66,7 millj­ónir króna.

[adspot]N4 fékk 20,7 millj­ónir króna af þeirri upp­hæð sem var til skipt­anna í ár. Ekki er skýrt sam­kvæmt fyr­ir­liggj­andi frum­varpi hvort geta N4 til að sækja áfram­hald­andi rekstr­ar­styrk í rík­is­sjóð á grund­velli styrkja­kerf­is­ins, þrátt fyrir að fá þann sér­staka styrk sem fjár­laga­nefnd hefur nú sam­þykkt að veita fjöl­miðla­fyr­ir­tæk­inu.

Ef fyr­ir­tækið, sem var með tíu árs­verk á síð­asta ári og skil­aði þá hagn­aði upp á 824 þús­und krónur, fengi svip­aða greiðslu úr styrkja­kerf­inu til við­bótar við 100 milljón króna styrk­inn myndi N4 fá rúm­lega 120 millj­ónir króna úr rík­is­sjóði á næsta ári, eða mesta allra einka­rek­inna fjöl­miðla á Íslandi. Sú greiðsla yrði um 80 pró­sent hærri en stærstu fjöl­miðlar lands­ins myndu fá.

Rökstuðningur byggður á röngum upplýsingum

Í beiðni Maríu er settur fram fjór­þættur rök­stuðn­ingur fyrir því að N4 eigi að fá sér­stakan rekstr­ar­styrk úr rík­is­sjóði. Annars vegar segir að skil­yrði fyrir rekstr­ar­styrk úr rík­is­sjóði á und­an­förnum árum hafi verið að N4 fram­leiddi eða sýndi 365 þætti á ári, eða að með­al­tali einn nýjan þátt á dag. Þetta er ekki rétt. Í lögum um fjöl­miðla segir að skil­yrði fyrir styrk séu að prent­miðlar komi út að lág­marki 20 sinnum á ári og að net­miðlar, hljóð- og mynd­miðlar og aðrir sam­bæri­legir miðlar skuli miðla nýju efni á virkum dögum í 20 vikur á ári.

Í öðru lagi til­tekur María að mörg sveit­ar­fé­lög hafi verið til­búin að styrkja þátta­gerð af sínum svæðum, ýmist með beinum styrkjum til þátta­gerðar eða kaupum á þjón­ustu. „Nú bregður svo við að aðal­baklandið, Norð­ur­land allt, hvarf frá þessu 2022 en hélt okkur volgum fram eftir ári. Það komu að lokum rúmar 4 millj­ónir sam­tals í þjón­ustu­kaup frá 12 sveit­ar­fé­lögum á Norð­ur­landi eystra nú í lok árs. ( ca 26.000.- að með­al­tali á mán­uði frá hverju þeirra ). Þetta hefur sett rekstur stöðv­ar­innar í algjört upp­nám.“

Þá segir hún aug­lýs­inga­tekjur hafa stór­minnkað á þessu ári. Þar komi tvennt til, ann­ars vegar stór­aukið hlut­fall aug­lýs­inga sem fari til erlendra sam­fé­lags­miðla, sem María segir í beiðn­inni að taki til sín 55 pró­sent aug­lýs­inga­fjár. Hið rétta er að 43,2 pró­sent, eða 9,5 af 22 millj­örðum króna sem varið var til aug­lýs­inga­kaupa í fyrra, fór til erlendra aðila. Hitt sé að stærstur hluti þess sem eftir verði í land­inu fari til RÚV „ þar sem með­al­laun sölu­manna eru 1,2 millj­ónir á mán­uði“. Aug­lýs­inga­tekjur RÚV í fyrra voru rúm­lega tveir millj­arðar króna, sem er undir 20 pró­sent þeirra aug­lýs­inga­tekna sem fóru til inn­lendra aðila í fyrra.

Fjórða og síð­asta atriðið sem María nefnir til stuðn­ings þess að N4 eigi að fá sér­stakan rekstr­ar­stuðn­ing er að fyr­ir­tæki séu ekki lengur jafn áfjáð í að kosta þætti eftir að kór­ónu­veiru­far­aldr­inum lauk og þau voru áður. Það’ hafi orsakað mik­inn tekju­sam­drátt.

Þingmenn utan af landi mynda uppistöðu meirihlutans

Á grund­velli þessa rök­stuðn­ings ákvað meiri­hluti fjár­laga­nefndar að veita N4 100 millj­ónum króna úr rík­is­sjóði. Meiri­hlut­ann skipa Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir, for­maður fjár­laga­nefndar og þing­maður Vinstri grænna, Haraldur Bene­dikts­son, Bryndís Har­alds­dóttir og Vil­hjálmur Árnason úr Sjálf­stæð­is­flokki og Þórarinn Ingi Pét­urs­son og Stefán Vagn Stef­áns­son úr Fram­sókn­ar­flokki.

Allir þessir þing­menn utan Bryn­dísar, sem kemur úr Suð­vest­ur­kjör­dæmi, eru þing­menn lands­byggð­ar­kjör­dæma. Þeir Stefán Vagn og Haraldur eru úr Norð­vest­ur­kjör­dæmi, en fram­kvæmda­stjóri N4 er búsett á Sauð­ár­króki sem er í því kjör­dæmi. Þau Bjarkey og Þórarinn Ingi eru úr Norð­aust­ur­kjör­dæmi, þar sem höf­uð­stöðvar N4 eru.

Í Frétta­blað­inu í dag er haft eftir Bjarkeyju að það væru fleiri fjöl­miðlar úti á landi sem fram­leiddu sjón­varp en N4, meðal ann­ars Vík­ur­fréttir á Suð­ur­nesjum. „Við vildum auk­inn stuðn­ing við lands­byggðar­miðl­ana. Það er ekk­ert laun­ungar­mál, það er bara þannig.“

Ekkert erindi barst frá Vík­ur­fréttum eða öðrum lands­byggð­ar­fjöl­miðlum utan N4 til fjár­laga­nefndar um beinan rík­is­styrk. Í beiðni N4 bað mið­ill­inn um nákvæm­lega þá tölu sem fjár­laga­nefnd ákvað að veita í styrk vegna rekst­urs fjöl­miðla á lands­byggð­inni sem fram­leiða eigið efni fyrir sjón­varps­stöð.

Hjá Vík­ur­fréttum voru fjögur árs­verk í fyrra og mið­ill­inn skil­aði næstum 14 milljón króna hagn­aði á árinu 2021, sem var um 16 pró­sent af veltu. Allt hlutafé þess er í eigu Páls Ket­ils­sonar, rit­stjóra Vík­ur­frétta. Vík­ur­fréttir sinna frétta­flutn­ingi af Suð­ur­nesjum auk þess sem fyr­ir­tækið rekur golf­vef­inn www.kylfingur.is.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár