Samherji ræður fyrrverandi fjölmiðlamann til að sjá um upplýsingamál

Karl Eskil Pálsson seg­ist „fullur til­hlökk­unar og þakk­látur fyrir að hafa verið munstr­aður um borð“ eftir að hafa verið ráð­inn til Samherja til að sinna upp­lýs­inga­málum.

Samherji hefur ráðið Karl Eskil Pálsson til að skrifa efni á heima­síðu og sam­fé­lags­miðla sam­stæð­unnar og sinna öðrum verk­efnum á sviði upp­lýs­inga­mála. Karl Eskil starf­aði síð­ast sem dag­skrár­gerð­ar­maður hjá sjón­varps­stöð­inni N4 á Akureyri, sem er að hluta til í eigu Samherja og hefur meðal ann­ars unnið keypta umfjöllun um sam­stæð­una fyrir þá stöð. Áður starf­aði hann í um tvo ára­tugi á frétta­stofu RÚV á Akureyri og var rit­stjóri hér­aðs­frétta­blaðs­ins Vikudags.

Í til­kynn­ingu á vef Samherja seg­ist Karl Eskil vera „fullur til­hlökk­unar og þakk­látur fyrir að hafa verið munstr­aður um borð“. Mörg stór verk­efni séu í far­vatn­inu hjá Samherja sem sam­stæðan vilji „segja frá og upp­lýsa með vönd­uðum og traustum hætti.“

Bæði emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara og emb­ætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra eru með sam­stæðu Samherja, og ýmsa starfs­menn hennar, til rann­sóknar. Sú rann­sókn hefur staðið yfir frá lokum árs 2019, en hún hófst eftir að Kveikur og Stundin opin­ber­uðu að grunur væri á að Samherji hefði greitt mútur, meðal ann­ars til hátt­settra stjórn­mála­manna, til að kom­ast yfir fisk­veiði­kvóta í Namibíu og Angóla. Á sama tíma voru birtar upp­lýs­ingar sem bentu til þess að Samherji væri mögu­lega að stunda stór­fellda skatta­snið­göngu og pen­inga­þvætti.

[adspot]Kjarninn greindi frá því í ágúst að yfir­heyrslur hafi staðið yfir hjá emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara vegna rann­sóknar máls­ins í sumar. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans þá er þeim að mestu lokið. Alls fengu sex núver­andi og fyrr­ver­andi starfs­menn stöðu sak­born­ings við yfir­heyrslur í fyrra­sumar og sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans fjölg­aði þeim í lot­unni sem fór fram í ár.

Á meðal þeirra var Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, sem var fyrst yfir­heyrður í byrjun júlí 2020.

Skæruliðadeild og afsökunarbeiðni

Í maí fjöll­uðu Kjarninn og Stundin um hóp á vegum Samherja sem rak áróð­urs­stríð fyrir hönd sam­stæð­unnar gegn ákveðnum fjöl­miðlum.

[links]Í sam­tölum lýsti hóp­ur­inn sér sem .„skæru­liða­deild Samherja“. Í gögnum sem Kjarninn hafði undir höndum, og sýndu meðal ann­ars sam­skipti milli þessa hóps og helstu stjórn­enda Samherja, mátti sjá hversu mikið var lagt í að safna upp­lýs­ingum um blaða­menn, reyna að gera þá ótrú­verð­uga og jafn­vel van­hæfa til að fjalla áfram um Samherja.

Nokkrum dögum eftir að umfjöll­unin birt­ist sendi Samherji frá sér yfir­lýs­ingu þar sem sagði að stjórn­endur félags­ins hefðu gengið „of langt“ í við­brögðum við „nei­kvæðri umfjöllun um félagið“.

„Af þeim sökum vill Samherji biðj­ast afsök­unar á þeirri fram­göngu,“ sagði í yfir­lýs­ingu fyr­ir­tæk­is­ins, en ekki er útskýrt í frek­ari smá­at­riðum að hvaða leyti gengið hafi verið of langt eða nákvæm­lega hverju verið sé að biðj­ast afsök­unar á.

Samherji vís­aði þó til fjöl­miðlaum­fjöll­unar um þau sam­skipta­gögn fyr­ir­tæk­is­ins sem Kjarninn og Stundin hafa undir höndum og fjallað um und­an­farna viku í fréttum og frétta­skýr­ingum. Fyr­ir­tækið segir að „þau orð“ og „sú umræða sem þar var við­höfð“ hafi verið „óheppi­leg“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sjávarútvegsmál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár